Undir Árnessýslu falla nokkur svæði með stökum eða fáum leiðum. Helstu svæði innan Árnessýslu eru
Hveragerði
Í nágrenni Hveragerðis eru ágætis byrjendavænar leiðir með stuttri aðkomu. Í ársriti klúbbsins frá 2007 er mynnst á eina klassíska leið þar.
Ingólfsfjall
Í Ingólfsfjalli er allt fullt af alskonar giljum og skorningum, hellingur af viðfangsefnum þar. Einnig er bergið þar bara ágætt á íslenskan mælikvarða.
Rauðsgil í Reyholtsdal
Fyrir miðjum Reykholtsdal sunnanverðum liggur Rauðsgil. Eftir gilinu sjálfu rennur Rauðsgilsá, sem líklega er það vatnsmikil að ekki myndist í henni klifranlegir ísfossar nema hugsanlega í allra mestu frostaköflum. Allmargir fossar og fallegir stallar eru í ánni. Aftur á móti koma á nokkrum stöðum fram mýrarlækir í jöðrum gilsins og mynda klifranlega fossa. Tvær leiðir hafa verið klifraðar í austur vegg gilsins og ein í vesturvegg þess. Leiðirnar austan megin eru eiginlega bara sitthvor lænan upp sama mýrarlækinn en voru hvor um sig leidd hlið við hlið. Aðkoma að gilinu er auðveld upp með því hvoru megin sem klifra skal (erfitt getur verið að komast yfir ána í gilinu þó að dæmi séu þess að það hafi tekist næstum þurrum fótum). Síga þarf af brúninni niður að upphafi leiðanna. Tryggingar á brúninni eru erfiðar beggja megin og gott að vera með vörtusvín, drive inn, spectrur, auka axir eða annan búnað sem hentar vel í gras og mold. Í gilinu eru ekki eru margar aðrar augljósar áhugaverðar línur en þessar, nema að menn séu í leit eftir þunnum ósamfelldum ís og heldur lélegu grjóti þess á milli. Staðsetning leiðanna er u.þ.b.
N64°38.946‘
V21°12.426‘
(64.6491°, -21.2071°).
-…
Mikið er enn af óklifruðum eða ófundnum leiðum á svæðinu.
Leið B6 á mynd.
Mælt er með að fara hægra megin upp á stallinn, sérstaklega ef ekki er búið að vera mikið frost.
Fyrst farin af: Róbert Halldórsson, Sigurður Tómas Þórisson og Matteo Meucci, 29. nóvember 2015.
Leiðin er mest megnis þétt boltuð, nema þar sem bergið bauð ekki upp á það (2 runout í miðri leið). 11 boltar og sigakkeri í toppinn. Leiðin er að mestu leiti þurr en það myndast eitthvað af ís í toppinn, þegar það slaknar á brattanum
Mixklifurleiðin Þyrnigerðið var loksins rauðpunktuð sunnudaginn 29. nóv 2015 eftir nokkrar góðar tilraunir fyrri túra. Sigurður og Matteo boltuðu leiðina í lok ágúst sl. og var það lífsreynsla út af fyrir sig. Mættum uppeftir í 15°C hita með brodda, axir og boltunargræjur. Það var frekar spes að grípa í ístólin á klettaklifurtímabilinu. En hvað um það, úr varð þessi snilldarlína, sem var meira mission og af hærri kalíber en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Leiðin er gráðuð M8+ en gæti alveg eins verið M8 eða jafnvel M9. Kemur í ljós þegar fleiri hafa farið hana (eða reynt amk 🙂
Einnig eru fleiri leiðir í smíðum á þessum nýja sector, Þyrnigerðinu. Leið númer þrjú á mynd er orðin hálf boltuð og hefur fengið vinnuheitið „Tollheimtumaður tízkunnar“ og verður sennilega á bilinu M6-M7.
Fyrir áhugasama hefur Siggi Tommi sett saman myndaalbúm og ferlið frá því að leiðin var uppgötvuð og þar til að hún var farin.
Fossinn er staðsettur í botni Arnarfjarðar og hefur aðeins verið klifinn einu sinni. Fossinn er breiður og er sennilega hægt að klifra mörg afbrygði af honum ef nægilegt frost næst. Vegurinn inn að Dynjanda og yfir Dynjandaheiði er ekki þjónustaður á veturna og því er sjaldgæft að fá fossinn í aðstæður en ekki ófærð inn að honum.
F.F: Rúnar Óli Karlsson og Búbbi febrúar 2010
Videoið er frá einu uppferðinni hingað til, horfið á allt myndbandið.
F.F. 04.12.2010 Bergur Einarsson og Jósef Sigurðsson
Lýsing leiðar:
1. spönn – 3. spönn: WI3, 100m.
4. spönn: WI4 – 20m.
5. spönn: WI4 – 15m.
6. spönn: WI4+ – 25m.
7. spönn: WI3 – 10-12m.
8. og 9. spönn WI3 80m.
Leiðin fylgir sömu leið og Single malt og appelsín þar til komið er að skálinni fyrir ofan 5. spönn. Þar er miðlínan valin en 6. spönn er lykilkafli leiðarinnar, lóðrétt aðeins í fangið stóran hluta spannarinnar. Eftir 6. spönn tekur við stór stallur og upp af honum er 10-12 m haft, 7. spönn. Þar tekur svo við annar stór stallur neðan við langan (~80m) samfelldan 3. gr kafla sem þó er með góðum stöllum. Hægt að velja um nokkra stalla í honum til að skipta kaflanum í 2 spannir en við tókum þann efsta þar sem við vorum að vonast til að ná að klára upp úr honum í einni spönn.
Fórum 100-200m til norðurs og niður brekkurnar þar sem er vel bratt. Líklega er betra að fylgja sömu niðurleið og í Single malt og appelsín.
Niðurleið:
Gangið 100m. til suðurs út á smá nef, skerið síðan til baka niður brattasta kaflann og síðan beint niður í bíl, frekar þægilegt.
Norðan við Bröttubrekku, fjallveginn milli Norðurárdals og Dalasýslu. Nokkurn veginn gengt Austurárdal, en þar eru nokkrar ísklifurleiðir. Leiðin er áberandi gil sem sker alla hlíðina í Hlíðartúnsfjalli og skiptist síðan upp í þrjár íslænur efst í klettabeltinu við toppinn.
Ekið er til vesturs inn slóða gengt afleggjaranum inn í Austurárdal, í gegnum hlið sem merkt er skógræktinni, og um 100 metra. Lagt hinumegin við lækinn. Aðeins fimm mínútna aðkoma að fyrstu höftunum.
B – Banagil
Léttar leiðir á leiðinni inn í Austurárdal, svæði F. Príðis upphitun fyrir daginn. Ekki er almennilega vitað hvaða gil þetta er, þar sem að hið eiginlega Banagil er það sem hér er kallað Austurárdalur.
E – Hvanngil
Þegar komið er langleiðina norður yfir Bröttubrekku sést gil nokkurt vestan vegar. Það heitir Hvanngil. Frá vegi sést í toppinn á þremur ísleiðum innst í þessu Hvanngili. Gangan inn gilið tekur um það bil 10-15 mínútur. Tvær aðrar styttri á leiðinni inn í gilið.
F – Austurárdalur
Dalurinn sem þarf að ganga inn í til að komast í Banagil. Í byrjun janúar 2004 héldu ísklifrarar harða netrimmu á umræðuþráðum heímasiðu Ísalp um ,,leynisvæði“ Ívars. Til að gera langa sögu stutta endadi það á því að Ívar blés til dvergvaxins óvissuísfestivals og bauð klifrurum að skoða dýrðina og Ijóstra upp hvar svæðið væri. Hið meinta svæði er fyrsti dalur til norðurs þegar komið er niður af Bröttubrekku norðan megin og heitir Austurárdalur. Leiðirnar eru flestar í grunnri hvelfingu austan megin í dalnum og sést í toppinn á þeim frá veginum. Reyndar vildu einhverjir haukfráir gamlingjar kannast við kauða þegar að var komið, en það er víst ekki nóg að spotta svæðin, það þarf að gera eitthvað líka. Frá þjóðveginum er um hálftíma léttur
gangur inn að svæðinu, sem sagt ekkert Eilífsdals-söffer.
G – Hvassafell
Rétt áður en komið er að vegamótunum við Bröttubrekku eru nokkuð háir hamrar í nokkuð lágu fjalli, Hvassafellshamrar. Leiðir 1 og 2 hafa verið farnar en Ísalp hefur ekki vitnesku um að leið 3 hafi verið farin.
H – Brúnkollugil – Kósý sectorinn Kósý sektorinn er með fjórar leiðir í WI3 til WI4+. Allar um 15 til 20 metra háar og erfiðleikastig mismunandi eftir því hvar er klifrað í fossunum. Aðkoma er frekar þægileg og tekur um 30 mínútur, eina hindrunin er áin sem þarf að vera frosin. Fyrst er komið að þremur fossum, A. Sófanum WI3 til WI4, B. Kertaljósi WI4 til WI4+ og svo C. Ónefndur foss sem hefur ekki verið klifinn. Sé gengið ofar er hægt að nálgast síðasta fossinn, D. Sængin WI3 til WI4+. Sængin virðist vera mjög hentug fyrir topropetoughguysand gals. Kósí sektorinn erþví klárlega gott æfingar- og upphitunarsvæði sem getur hentað mörgum. Þá hjálpar að svæðið getur verið í aðstæðum þegar önnur svæði eru það ekki, vegna legu og hæðar yfir sjávarmáli.
I. Baula
Svæðið milli Baulu og þjóðvegsins neðst í Bröttubrekku. Eitthvað er um minni og styttri leiðir og þarf að skoða svæðið betur með tilliti til klifurs.
Þetta er erfiðasta mixklifur leið Íslands og þegar hún var sett upp var hún erfiðasta mixklifurleið í heiminum með þá næst erfiðustu M8. Af þeim ástæðum gaf Will leiðinni gráðuna M9+ með þeim orðum að hún væri sennilega erfiðari, hann hefur núna staðfest að leiðin sé M11, töluvert erfiðari en M10-ur frá svipuðu tímabili. Leiðin er einnig ein af fyrstu sprey ísleiðum í heiminum
Í Ísalp ársriti frá 1998 skrifar Guðmundur Helgi:
Ég veit ekki hvað það tók margar tilraunir þessa fjóra daga, en þær voru margar áður en það hafðist að klifra þessa leið. Aldrei áður hafði hann þurft að eyða jafn löngum tíma eða orku í nokkra leið, marinn og skrámaður með brotið nef og bros aftur á hnakka. Hvað heitir svo maðurinn? Jú, Will Gadd, Kanadamaður búsettur i Bandaríkjunum sem kom hingað til lands ásamt ,,tilvonandi“ unnustu sinni, Kim Cizmagia, og kvikmyndagengi i þeim tilgangi að finna og klifra erfiðustu, mixuðu ísleið i heiminum. Hafði það tekist? Um það verða aðrir að dæma en leiðin sem um ræðir heitir Brennivín, nefnd eftir hinum banvæna íslenska snafs eins og Will orðaði það. Leiðin sem er um 50 metrar og því ein spönn, er innst í Skálagili í Haukadal í Dalasýslu. Fyrstu 15-20 metrarnir eru frístandandi kerti upp undir klettaþak sem er um 6 metrar i heildina en klifrið frá kertinu er um 4 metrar út að brún. Erfiðleikarnir eru þó ekki búnir þegar þakinu sleppir því lykilklifurleiðin er að hliðra eftir brúninni að bitastæðum ís til að geta klifrað áfram upp á brún. Á þessum seinni kafla er ísinn í heildina örlitið yfirhangandi og þunnur. Í eina skiptið sem þetta hefur verið klifið þurfti Will að klifra hálfa leiðina upp á brún áður en ísinn varð nægilega þykkur til að hægt væri að koma inn haldbærri tryggingu. Þakið og hliðrunin eru hinsvegar tryggð með fjórum boltum.
FF.: Will Gadd, Kim Csizmazia og Guðmundur Helgi Christensen, 28. mars 1998.
Lóðréttur ísfoss – 10-l5m
FF: Ari T. Guðmundsson og Hreinn Magnússon,
12. jan 1986. Bratt ísþrep i Skiftagili. Sést frá vegi
Þessi leið vekur upp spurningar eins og, hvar er þá ytri tvíburafoss? Ef einhver hefur upplýsingar um það þá óskast þær upplýsingar. Og hversu erfiður er lóðréttur ísfoss sem er 10-15m?
Við setjum bara fjórðu gráðu á það en upplýsingar um það óskast einnig.
Ekki tengd Efri og Neðri tvíburafoss í tvíburagili