Leið númer 1
Leiðin byrjar upp á stóri sillu vinstra megin í gilinu. Beint upp stórt ísþil. Vinstramegin við þessa leið er önnur léttari sem er óklifin þegar þetta er skrifað.
Byrjar í lóðréttu hafti sem er 10 til 15m langt, eftir það styttri höft og endar í langri snjóbrekku
FF: Haukur Elvar og Ívar F. 25. jan. 2004, 80m
Klifursvæði |
Brattabrekka
|
Svæði |
Austurárdalur |
Tegund |
Ice Climbing |
Merkingar |
|
8 related routes
Áberandi súla fyrir miðjan sector, gekk undir vinnuheitinu Kertasníkir
WI 7-, Þetta er fyrsta leiðin, vonandi af mörgum, til að fá hærri gráðu en WI 6+ og er því erfiðasta leiðin á Íslandi í dag.
FF: Albert Leichtfried og Benedikt Purner 23. feb 2016
Leið ekki merkt inn á mynd
Nokkur lítil íshöft i gili hægra megin við Áætlun B.
FF: 50 m, 7. des. 2004, Tom Gallagher og Ívar F. Finnbogason.
Leið númer 5 á mynd
Létta leiðin lengst til hægri í gilinu.
Byrjar á 5 til 6 metrum af bröttum ís en fer svo út í langa brekku með íshöftum. Auðveld en falleg leið.
FF: Haukur Elvar Harsteinsson og Ívar F. Finnbogason, 25. jan. 2004. um 70m
Leið númer 4 á mynd
Leiðin byrjar rétt hægra megin við yfihangandi kaflann í miðju gilinu. Hægt að fara í efsta kaflanum lengra til hægri og einnig er hægt að fara í mjög brattar leiðir á vinstri hönd þegar upp í miðja leið er komið (Jobbi Dalton, aðrar útgáfur eru líka mögulegar)
Farið upp bratt haft fyrst og síðan aflíðandi kafli beint af augum upp að lóðréttum kafla beint upp á brún.Mjög skemmtileg og frekar létt tveggja spanna leið.
FF: Páll Sveinsson, Þorvaldur Þórsson, Jón Gunnar Þorsteinsson,Haraldur Guðmundsson og Torbjörn Johansson, 25. jan. 2004. um 100m
Leið númer 3 á mynd
Leiðin er á miðjum veggnum, sennilega er auðveldast að byrja á sama stað og túristaleiðin og fara síðan til vinstri.
Einnig væri hægt að fara beint upp kertið sem sést á myndinni eða aðeins hægra megin við það ef það er í aðstæðum. Sú byrjun er með vinnuheitið Kertasníkir (óhentugt nafn, nú þegar í notkun í Brynjudal), ekki tókst að klára þar afbryggði vegna óhuggnalegra bresta í kertinu. Kertið er nokkuð óstöðugt, svo verið viss um að það sé solid áður en lagt er af stað það.
FF: Jón Haukur og Guðmundur Helgi
Leið númer 2
Leiðin fékk nafn sitt vegna þess hve leiðin var áberandi blá og fín, solid ís. Sögur herma að leiðin myndist yfirleitt svona blá þarna.
FF: Guðmundur Helgi og Jón Haukur
Leið númer 1
Leiðin byrjar upp á stóri sillu vinstra megin í gilinu. Beint upp stórt ísþil. Vinstramegin við þessa leið er önnur léttari sem er óklifin þegar þetta er skrifað.
Byrjar í lóðréttu hafti sem er 10 til 15m langt, eftir það styttri höft og endar í langri snjóbrekku
FF: Haukur Elvar og Ívar F. 25. jan. 2004, 80m
Leið númer „0“ á mynd
Leiðin er rétt vinstra megin við leiðina „Kiddi“. Leiðin er ekki merkt inn á myndina.
Þessi leið er inni í horni lengst til vinstri í svæðinu. Byrjar á að klifra bratt kerti, um 7 m. Síðan tekur við smá snjóbrekka upp í megintryggingu í ís. Seinni spönn liggur upp bratta brekku með snjó, ís og smá klettum.
70m