Gin Glyms WI 5
Veturinn 2023 var óvenju kaldur; á suðvesturhorninu var talað um kaldasta veturinn í hundrað ár. Þetta skapaði einstakar aðstæður í Glymsgili og þá sérstaklega fyrir vatnsfallið Glym. Þann 17. janúar héldu íslendingur búsettur á ítalíu og ítali búsettur á Íslandi inn gilið, með það að markmiði að klifra eina af mörgum sögufrægum leiðum innst í gilinu. Það fór hins vegar á annan veg. Sökum einstakra aðstæðna og ruglingslegra teikninga þá klifruðu þeir nýja leið. Á meðan klifrinu stóð töldu þeir sig vera á Sacrifice (WI5+) eða tilbreytingu við Draumaleiðina (WI5+) en síðar kom í ljós að um hvorugt var að ræða.
Fyrri helmingur leiðar liggur beint up í „gin“ Glyms – þar sem flæði vatns er sterkast og fossinn er venjulega opinn og vatnið spýtist úr honum eins og úr gapandi munni. Leiðin Sacrifice er á vinstri hönd og Draumaleiðin er töluvert til hægri (hún endar á suðurbarmi gilsins). Þessi fyrri partur innihélt heila spönn af yfirhangandi blómkálshausum sem gerði tryggingar nokkuð snúnar og klifrið krefjandi þar sem hver þrívíddarþrautin tók við af annarri. Það má segja að ísmyndanir á þessum hluti hafi minnt á stórar skakkar tennur í jötni, sem er afar viðeigandi. Á seinni helmingi leiðar þurfti að hliðra til hægri þar sem fossin var ennþá opinn í efri hlutanum. Nafnið „Gin Glyms“ þykir því lýsa leiðinni nokkuð vel, það er stuðlað sem er vinsæll siður í íslenskri tungu, og svo má vera að áhugi klifrara á Gin&Tonic hafi spilað eitthvað inn í.
| Klifursvæði | Glymsgil |
| Tegund | Ice Climbing |
Myndbönd



































