Villingadalur er Austasti hlutinn undir norðurhlíðum Skarðsheiðar, djúp dalhvilft sem gegnur SV inn í meginfjallið og rennur Villingadalsá eftir honum.
Hægt er að leggja bílnum á slóða sem liggur austur af Dragarvegi (520). Þaðan er gengið inn dalinn og þarf að fara yfir Hestadalsá í byrjun (sjá kort). Gangan tekur tæplega 1.5 klst og getur sóst hægt í miklum snjó. Einnig er hækkun talsverð, eða um 330 metrar. Dalurinn safnar talsverðum snjó, sérstaklega þegar líður á veturinn. Klifrið hefst í um 450 metra hæð og ef klifrað er alla leið upp á brún þá er farið upp í 800 metra, en flestir síga niður mun fyrr þar sem ísinn ofan fyrstu skálar er oft minna spennandi og snjórinn vill drekkja honum.
Í botni dalsins má finna fimm ísklifurleiðir auk þess sem hægt er að finna auðvelt stöllótt klifur í gili sunnan við fossana. Ísþilið sunnan megin í dalnum er nokkuð samfellt og hefur mikið verið klifrað í því, samt hafa engar línur fengið nöfn en klifrið er nokkurn veginn WI 2 á flestum stöðum.
- Styx – WI 4
- Hades – WI 4
- Kharon – WI 4+
- Kerberos – WI 3
Villingadalur er merktur inní Ísalp leiðavísi frá 1987, sem sector í Skarðsheiði og hér fyrir neðan má sjá þá mynd úr leiðavísinum.
13. Um Hábrúnir Skarðsheiðar – gönguleið (13km)
14. Villingadalsfossar
15. Mórauðihnúkur – Snjór (600M II.)













