Hestadalur
Áður en komið er í Villingadal þarf að fara yfir Hestadalsána rétt við veg. Í ánni hefur verið klifraður einn foss og er aðkoman einstaklega þægileg.
Villingadalur
Villingadalur er Austasti hlutinn undir norðurhlíðum Skarðsheiðar, djúp dalhvilft sem gegnur SV inn í meginfjallið og rennur Villingadalsá eftir honum. Í botni dalsins má finna 5 ísklifurleiðir auk þess sem hægt er að finna auðvelt stöllótt klifur í gili sunnan við fossana. Ísþilið sunnan megin í dalnum er nokkuð samfellt og hefur mikið verið klifrað í því, samt hafa engar línur fengið nöfn en klifrið er nokkurn veginn WI 2 á flestum stöðum.
- Styx – WI 4
- Hades – WI 4
- Kharon – WI 4+
- Kerberos – WI 3
Villingadalur er merktur inní Ísalp leiðavísi frá 1987, sem sector í Skarðsheiði og hér fyrir neðan má sjá þá mynd úr leiðavísinum.
13. Um Hábrúnir Skarðsheiðar – gönguleið (13km)
14. Villingadalsfossar
15. Mórauðihnúkur – Snjór (600M II.)










