Hard five M 8
Leið númer A13 á mynd
Fyrsta spönn er M8 upp á áberandi íssyllu og svo er spönn tvö WI 6+
FF: Albert Leichtfried og Benedikt Purner 24. feb 2016
| Klifursvæði | Bolaklettur |
| Svæði | Innri-hvilft |
| Tegund | Mixed Climbing |
Leið númer A13 á mynd
Fyrsta spönn er M8 upp á áberandi íssyllu og svo er spönn tvö WI 6+
FF: Albert Leichtfried og Benedikt Purner 24. feb 2016
| Klifursvæði | Bolaklettur |
| Svæði | Innri-hvilft |
| Tegund | Mixed Climbing |
Númer 5 á yfirlitsmynd.
Áberandi súla fyrir miðjan sector, gekk undir vinnuheitinu Kertasníkir
WI 7-, Þetta er fyrsta leiðin, vonandi af mörgum, til að fá hærri gráðu en WI 6+ og er því erfiðasta leiðin á Íslandi í dag.
FF: Albert Leichtfried og Benedikt Purner 23. feb 2016
| Klifursvæði | Brattabrekka |
| Svæði | Austurárdalur |
| Tegund | Ice Climbing |
Leið númer 2 á mynd
Árið 2016 voru Albert Leichtfried og Benedikt Purner þriðja teymið til að fara leiðina og gáfu henni gráðuna WI 6+, til að staðfesta íslenska „sandbag-ið“ enn og aftur.
FF: Páll Sveinsson & Hallgrímur Magnússon, 25. feb 2000
| Klifursvæði | Öræfi, Vestur |
| Svæði | Bæjargil |
| Tegund | Ice Climbing |
Augljósasta línan upp á topp á Hólmatind við Eskifjörð
WI 5
FF: Albert Leichtfried og Benedikt Purner, febrúar 2016
| Klifursvæði | Fjarðabyggð |
| Svæði | Hólmatindur |
| Tegund | Alpine |
Leiðin sem er lengst hægra megin í sectornum Glassúr, yfir sjónum
Til að klifra þessa leið þarf að gera annað hvort af tvennu, hlaupa milli alda eftir klettafjörunni, sem næst fjöru eða síga ofan frá (toppa úr annari leið). Í frumferðinni var það fyrrnefnda gert.
FF: Albert Leichtfried og Benedikt Purner, 15/02 ’16
| Klifursvæði | Kaldakinn |
| Svæði | Glassúr |
| Tegund | Ice Climbing |
Næst ysta mögulega línan í sectornum Glassúr, ekki almennilega formuð á myndinni
Til að klifra þessa leið þarf að gera annað hvort af tvennu, hlaupa milli alda eftir klettafjörunni, sem næst fjöru eða síga ofan frá (toppa úr annari leið). Í frumferðinni var það fyrrnefnda gert.
FF: Albert Leichtfried og Benedikt Purner, 14/02 ’16

| Klifursvæði | Kaldakinn |
| Svæði | Glassúr |
| Tegund | Ice Climbing |
Vinstra megin við A1, Whish you were here
Þrjár spannir
Leiðin var frumfarin á ísklifurfestivali Ísalp 2016, nafnið er tilkomið út af hreyfingu til að hiðra út í seinustu spönnina, þar sem maður er krossfestur í stóru X-i
FF: Albert Leichtfried og Benedikt Purner, 13/02 ’16
| Klifursvæði | Kaldakinn |
| Svæði | Stekkjastaur |
| Tegund | Ice Climbing |
Leið merkt inn sem A8
Leiðin er næsta leið til hægri við Niflheima (A11). Hægra megin við Mávahlátur er svo áberandi rif (sést illa á mynd, mikið af snjó og hún er aðeins yfirlýst þarna), hinu megin við rifið er svo leiðin Aussie Pickings.
Leiðin byrjar á bröttu hafti, ca 10-12m. Eftir það er leiðin mjög slabbandi, auðveld og með kverk svo að frábært er að stíga. Þegar að leiðin var fyrst farin var ísinn mjög mjúkur og þægilegur svo að leiðin var þægileg WI 4, allar líkur eru á að aðstæður geti auðveldlega gert leiðina erfiðari.
Stór snjóhengja var fyrir ofan leiðina og leiðin slabbaði sífellt meira og meira yfir í snjóklifur, sigum því niður á síðasta áberandi ísbunkanum.
FF: Þorsteinn Cameron og Jónas G. Sigurðsson, 05. feb 2016, ca 30m
| Klifursvæði | Bolaklettur |
| Svæði | Innri-hvilft |
| Tegund | Ice Climbing |
Hægri leiðin á myndinni
Brattur og tæknilegur. Stoppuðum í efsta bunkanum þar sem það var síðasti séns til að koma fyrir tryggingu. (Sem betur fer fannst góður ís þar sem dugði í megintryggingu)
Sögur herma að þetta hafi verið klifrað í fornöld, engar heimildir eru til um það
FF: Freyr Ingi Björnsson, Eyvindur Þorsteinsson og Eyþór Björgvinsson, 6. febrúar 2018, WI 5+
| Klifursvæði | Eyjafjöll |
| Svæði | Seljalandsfoss |
| Tegund | Ice Climbing |
Leiðin er skráð sem fyrsta P6 leiðin á Íslandi. P6 gráðan kemur frá því að Palli notaði lengi vel ekki WI 6 gráðuna, lét skalan bara enda í WI 5.
Eftirfarandi ummæli hafa fallið um leiðina
Siggi Tommi: Ja, hvernig á að meta P6 annars?
Þetta var alla vega alveg óheyrilega yfirhangandi og tæknilegt nánast alla leið.
Fyrsta spönnin var sú allra erfiðasta sem ég hef klifrað (mun erfiðari en fyrsta spönnin í Stekkjastaur á Festivalinu í fyrra en Albert og co. sögðu hana vera WI6) og fær Robsterinn stórt prik fyrir að leiða hana svona glæsilega.
Önnur spönnin var aðeins skárri, „bara“ létt í fangið fyrri partinn og svo lúmskt erfitt lóðrétt restina eftir hliðrun undir tjaldi. Erfiðari en flestar 5. gráður sem ég hef prófað og prýðilega leitt hjá Hr. R.
Þriðja spönnin var svo meira hressandi en leit út fyrir með tveimur 5m létt slúttandi höftum og rest aðeins skárri (samtals 25m brattur ís) og svo 25m skrölt upp fyrir brún. Nokkuð hressandi leiðsla fyrir mig en ætli hún hafi ekki verið svona temmileg WI5 (ætli það sé ekki ca. P3? 
Var Palli búinn að gráða þessa leið annars?
Palli: Til hamingju félagar.
P gráða er gríngráða sem festist á mig þar sem ég gráðaði aldrei hærra er 5. Bjarata hliðin er WI6 en ég hún fékk P til að halda gríninu á lífi.
Neðri hluti leiðarinnar leit út fyrir að vera svipaður og þegar ég fór hana en efrihlutinn leit út fyrir að vera mun erfiðari en um árið.
Þetta gerist nú ekki mikið erfiðar ef þetta á að kallast ísklifur á annað borð.
FF: Palli Sveins og …
| Klifursvæði | Eyjafjöll |
| Svæði | Paradísarheimt |
| Tegund | Ice Climbing |
Leiðin er staðsett í Mjóafirði, tveim fjörðum frá Eskifirði. Við höfum ekki mikið nákvæmari upplýsingar, þær eru vel þegnar.
Nefnd eftir nýfæddri dóttur Harris Berger
FF: Albert Leichtfried og Markus Bendler, 2007
| Klifursvæði | Fjarðabyggð |
| Svæði | Mjóifjörður |
| Tegund | Ice Climbing |
Leiðin er hægri línan á myndinni
Butter And Onions 50M WI5+
It is located on the arête to the left of Lust and about 50 meters to the right of Lost In Iceland. It is an awkward route that follows two different columns. The upper column is very awkward and over hanging. Super fun but steep climbing
Hinu megin við rifið sem skagar út, hægra megin við hægri leiðina, er leiðin Girnd
FA: Wes Bender, Shawn Morgan 2-Feb-2016
| Klifursvæði | Kaldakinn |
| Svæði | Stekkjastaur |
| Tegund | Ice Climbing |
Leiðin er vinstri línan á myndinni
Lost In Iceland 130M WI5+
It is located 100 meters right of Stekkjastaur. It starts as a 50 meter WI5+ climbing on vertical to over hanging ice to a hanging belay due to no anchor ice on flatter ground. Then a 50 meter snow slope leading to a final 30 meter WI3+
Hinu megin við rifið sem skagar út, hægra megin við hægri leiðina, er leiðin Girnd
FF: Wes Bender, Shawn Morgan 1-Feb-2016
| Klifursvæði | Kaldakinn |
| Svæði | Girnd |
| Tegund | Ice Climbing |
Leið D á mynd
Sunnan við Birkitréð
FF: Páll Sveinsson, Guðmundur Helgi og Hallgrímur Magnússon, 16. október, 1993. Tvær spannir
| Klifursvæði | Kaldidalur |
| Svæði | Þórisjökull |
| Tegund | Ice Climbing |
Leið E á mynd
Syðsta leiðin (lengst til hægri við Birkitréð)
Ísleið c.a. 1/2 km hægra megin við Birkitréð, lengst til hægri af ísleiðunum þarna. Rúmlega tvær spannir. Fyrsta spönn er WI 3 brölt og síðan tekur við 4m lóðrétt íshaft og þar fyrir ofan eru stallar með lóðréttum íshöftum. Leiðin endar í smá þaki á brúninni
FF: Þorvaldur Þórsson og Tomas Gronvaldt 20. október. 1993, tvær spannir.
| Klifursvæði | Kaldidalur |
| Svæði | Þórisjökull |
| Tegund | Ice Climbing |
Lína númer 6. á mynd
Ísþil hægra megin við Paradísarheimtina, það næsta augljósa. Leiðin fer beint upp tvær spannir en hliðrar svo aðeins til hægri í síðustu spönn
FF: Páll Sveinsson, Guðmundur Helgi, 1993
| Klifursvæði | Eyjafjöll |
| Svæði | Paradísarheimt |
| Tegund | Ice Climbing |
Leið númer 4 á mynd
Lengst til hægri í breiða Paradísarheimtarþilinu. Fer til hægri og upp í augljósa skoru. Skoran nær að vera í skugga betur en aðrar leiðir undir Eyjafjöllum og er því yfirleitt fyrst í aðstæður
FF: Páll Sveinsson, Guðmundur Helgi Christensen og Hallgrímur Magnússon.
| Klifursvæði | Eyjafjöll |
| Svæði | Paradísarheimt |
| Tegund | Ice Climbing |
Leið númer 3 á mynd
Byrjar á sama stað og Skoran en hliðrar síðan upp til vinstri og inn í sjálfa Paradísarheimt í lokaspönninni.
Varist hrun og bleytu við klifur í Eyjafjöllunum, veggurinn snýr í suður og fær mikla sól.
FF: Páll Sveinsson og Guðmundur Helgi, 1993, 120m
| Klifursvæði | Eyjafjöll |
| Svæði | Paradísarheimt |
| Tegund | Ice Climbing |
Leið númer 2 á mynd
Með klassískari leiðum á Íslandi, þarf talsvert frost í talsverðan tíma til að komast í aðstæður.
Veggurinn snýr í suður og fær því mikið af sól, varist að það er yfirleitt mikil hætta á hruni og það er oftast mikil bleyta í leiðunum
WI 4 – 120m
| Klifursvæði | Eyjafjöll |
| Svæði | Paradísarheimt |
| Tegund | Ice Climbing |
Mynd óskast
Í Hörgárdal við mynni Þorvaldsdals myndast ísfoss í gili sem Syðri Tunguá rennur um. Hann er um 50 m á hæð og um 8 m á breidd og er hægt að velja um leiðir af þriðju til fjórðu gráðu.
FF: Akureyringarnir Óttar Kjartansson, Sigurður Sæmundsson og Ólafur Kjartansson, páskar ’94
| Klifursvæði | Hörgárdalur |
| Svæði | Hörgárdalur |
| Tegund | Ice Climbing |