Leiðir í SA hlíðum
Leiðir merktar inn sem 8
Gráða 1 – 100-200 m
Fjölmargar snjólænur liggja upp SA-hlíðar Skarðshyrnu, allar þó af svipuðum erfiðleikum. Þessi afbrigði eru velþekkt.
| Klifursvæði | Skarðsheiði |
| Svæði | Skarðshyrna |
| Tegund | Alpine |
Leiðir merktar inn sem 8
Gráða 1 – 100-200 m
Fjölmargar snjólænur liggja upp SA-hlíðar Skarðshyrnu, allar þó af svipuðum erfiðleikum. Þessi afbrigði eru velþekkt.
| Klifursvæði | Skarðsheiði |
| Svæði | Skarðshyrna |
| Tegund | Alpine |
Leið númer 6
Gráða 1 – 150 m –
FF: Ari Trausti Guðmundsson og Olgeir Sigmarsson, maí 1979.
Snjólæna norðan við leið nr. 1 sem liggur upp á Skarðshyrnu.
| Klifursvæði | Skarðsheiði |
| Svæði | Skarðshyrna |
| Tegund | Alpine |
Leið merkt sem 7.
Gráða I/II – 400 m – 1-3 klst.
FF: Ari Trausti Guðmundsson, 1969.
Fjölbreytt og skemmtileg leið. Frá Efraskarði er stefnt á Skessusæti (702 m), sem er lítill tindur undir Miðhrygg og er öllu léttara að koma austan að honum en vestan. Haldið er upp og yfir tindinn og að miðhrygg Skarðshyrnu. Upp hrygginn eru afbrigði að vali fjallamannsins. Þá er oftast farið austan við hrygginn.
| Klifursvæði | Skarðsheiði |
| Svæði | Skarðshyrna |
| Tegund | Alpine |
Leið merkt sem 5.
Gráða 2 -200 m – 1-2 klst.
FF: Ari Trausti Guðmundsson og Peter Wiedthaler, apríl 1975.
Falleg auðrötuð leið, aðallega snjóleið með nokkrum léttum íshöftum
Best er að ganga niður leið 37 um Skessusæti
| Klifursvæði | Skarðsheiði |
| Svæði | Skarðshyrna |
| Tegund | Alpine |
Leið merkt sem 4.
200M. Berg klifur leið í gráðu III. með nokkrum IV. hreyfingum. Hóflega erfið klifurleið. Tvær fyrstu spannirnar eru erfiðastar með hreyfingum af IV. gráðu í þeirri efri. Leiðin byrjar hægra megin á rifinu, í mynni A-Miðgils. 3-4 spannir með léttara brölti í efri hluta. Þokkalegar megintryggingar.
Best er að ganga niður leið 37 um Skessusæti
FF. Jón Geirsson og Snævarr Guðmundsson 25. sept. 1982
Athugið að þetta er ekki eini Giljagaurinn á landinu, það er einn inni í Þórsmörk og annar í Fljótshlíð, passið að rulga þeim ekki saman. Ísalp telur að nú sé nóg komið af Giljagaurum, nú sé komið að öðrum jólasveinum sem ekki hafa fengið leiðir nefndar eftir sér, s.s. Hurðaskellir eða Skyrgámur.
| Klifursvæði | Skarðsheiði |
| Svæði | Skarðshyrna |
| Tegund | Alpine |
Leið merkt sem 3.
Gráða: 2/3 -200 m – 2-3 klst.
Fyrst farin: Jón Geirsson og Snævarr Guðmundsson, 3. jan. 1982.
Mjög falleg klifurleið upp vestara gilið af tveim sem ganga upp á tind Skarðshyrnu. Auðrötuö. Brött höft í neðri hluta leiðarinnar.
Best er að ganga niður leið 37
| Klifursvæði | Skarðsheiði |
| Svæði | Skarðshyrna |
| Tegund | Alpine |
Leið merkt inn sem 1a
Læna þessi telst við vetraraðstæður ná 1. gráðu að erfiðleikum, en bæta má því við að skíðað hefur verið niður hana.
Þægilegast er að ganga niður eftir leið 37 um Skessusæti
| Klifursvæði | Skarðsheiði |
| Svæði | Skarðshyrna |
| Tegund | Alpine |
Leið merkt inn sem 16
Gráða 1-2 – 500 m – 2-3 klst.
FF: Jón Geirsson og Snævarr Guðmundsson, 8. okt. 1983.
Löng, en skemmtileg leið. Auðrötuð, en brött í efsta hluta. Að jafnaði fær allan ársins hring.
Frá Mórfellstaðakoti er haldið inn með Mófelli að vestan, upp Mógil og yfir Ok (523 m) að fjallsrótum (1-2 klst). Yfir létt klettabelti, upp hjarnskaflinn og inn i augljóst gil. Oft hengja við toppinn.
| Klifursvæði | Skarðsheiði |
| Svæði | Kaldárdalur |
| Tegund | Alpine |
Leið merkt inn sem 15
Gráða 2 -600 m-ca.2 klst.
FF: Þorsteinn Guðjónsson, desember 1983.
Gengið inn Kaldárdal þar til komið er rétt innan við Mórauðahnúk. Þar er haldið beint upp hlíðina og er hún auðfarin uns kemur efst við brúnina. Þar er klettabelti af 2. gráðu. Til niðurferðar er best að fara norður af Mórauðahnúk vestan megin við Seldal.
| Klifursvæði | Skarðsheiði |
| Svæði | Kaldárdalur |
| Tegund | Alpine |
Leið merkt sem 19
Gráða 1 – ca 500 m – 2-5 klst.
Úr botni Hornsdals er stefna tekin á krikann sem gengur niður úr Katlaklauf. Snjólænan er án allra hindrana, en þó skal hafa gaða gát á snjóflóðahættu í gilinu. Fáfarin leið. Úr skarðinu má halda á tind Skessuhorns eða Þverfjallskamb, þá eftir leið nr. 28.
| Klifursvæði | Skarðsheiði |
| Svæði | Hornsdalur |
| Tegund | Alpine |
Leið merkt sem 18.
Gráða II. 500m, sirka 3klst. Áhugaverð og fjölbreytt snjóleið. Hægt er að fylgja klettarifinu vinstra megin við gilið í neðri hluta og er þar klifur af IV. gráðu – hættulegt. Leiðin er auðrötuð og fylgir gilinu upp á hrygginn austan við Katlaklauf og þaðan eftir leið 28 á Þverfjallskamb
| Klifursvæði | Skarðsheiði |
| Svæði | Hornsdalur |
| Tegund | Alpine |
Leið merkt sem 17
Gráða 1-500m-1-2klst.
Áberandi heilleg snjórás, klofin i tvær lænur í efri hluta, býður upp á auðrataða snjó- eða hjarnleið. Brattast 45° efst við hábrúnina.
| Klifursvæði | Skarðsheiði |
| Svæði | Hornsdalur |
| Tegund | Alpine |
Leið númer 30 í leiðavísi, mynd óskast
Gráða 2 – 1-3 klst.
Enn eitt afbrigðið er að fara um snjólænu utan til á hryggnum. Brött er ofar dregur og að vetri til er hengja við brúnina.
| Klifursvæði | Skarðsheiði |
| Svæði | Skessuhorn |
| Tegund | Alpine |
Leið merkt inn sem 29
Gráða I/II – 400 m – 1-3 klst.
Fallegra afbrigði á Þverfjallskamb er tvímælalaust, ef haldið er næstum beint upp hrygginn úr Katlaklauf. Þessi leið er mun brattari en aldrei torkleif. Að sumarlagi er hryggurinn einnig vel fær. Leiðin liggur nánast alltaf vestan megin á hryggnum.
| Klifursvæði | Skarðsheiði |
| Svæði | Skessuhorn |
| Tegund | Alpine |
Leið númer C11.
Mix leið fyrri hluta veturs en verður svo pjúra ísleið þegar að tekur að líða á veturinn, WI 3/4
FF: Óþekkt
| Klifursvæði | Múlafjall |
| Svæði | Testofan |
| Tegund | Mix Climbing |
Leið númer C10
Mix leið fyrri hluta veturs en verður svo pjúra ísleið þegar að tekur að líða á veturinn, WI 3/4
FF: Óþekkt
| Klifursvæði | Múlafjall |
| Svæði | Testofan |
| Tegund | Mix Climbing |
Leið númer D8.
WI2-3.
Stutt leið upp rennu. Fyllist sennilega af snjó þegar líður á vetur og verður léttari. Hægt er að ganga niður gilið hægra megin við þessa leið.
FF: Óþekkt
| Klifursvæði | Múlafjall |
| Svæði | Leikfangaland |
| Tegund | Ice Climbing |
Leið númer D5.
Hægt að fara amk 2 afbrigði. Léttara afbrigðið fylgir ísramp fyrir miðju og til hægri. WI4. Ein spönn
FF: Óþekkt
| Klifursvæði | Múlafjall |
| Svæði | Leikfangaland |
| Tegund | Ice Climbing |
Allar upplýsingar eru fengnar úr leiðavísi Sigurðar Tómasar Þórissonar um Kerlingareld.
Klifurleiðin Kerlingareldur er í fjallinu Kerlingu (1.114m) sem skilur að Svarfaðardal og Skíðadal á Tröllaskaga við Eyjafjörð. Hún er framan á berggangi sem gengur fram í dalhvilft eða skál, sem er á milli fjallsins Stóls og Kerlingar og sést greinilega alla leið frá Dalvík og þegar keyrt er fram Svarfaðardal að vestan.
Gengið er upp frá bænum Melum í Svarfaðardal, en þangað er 10-15 mín akstur frá Dalvík, inn Svarfaðardalsveginn ýmist austan eða vestan við ána. Gangan upp í skálina tekur rúma klukkustund og rúma klukkustund í viðbót inn skálina, upp snjóbrekkuna og að bergganginum. Ekki er úr vegi að hafa með sér ísöxi, vera með hjálm og hlusta vel eftir hruni úr klettaveggjunum sem er mjög mismikið eftir aðstæðum og árstíma. Einnig er vert að athuga að snjóflóðahætta
getur verið í skálinni ef farið er snemmsumars. Best er að bera með sér a.m.k. tvö half-rope og hefðbundinn dótaklifurrakk. Litlir vinir koma oft að góðum notum. Sumar spannir eru talsvert langar svo það borgar sig að hafa nóg af tvistum og slingum. Einnig er gott að vera með nokkra fleyga til að gera bráðabirgðastans undir leiðinni. Lítið er um staði fyrir annað dót fyrir ofan snjóbrekkuna.
1. spönn. 5.5, 35m
Byrjar framan á bergganginum á sæmilegum tökum og þokkalegum tryggingum,
upp á slabb með smá hliðrun til hægri í lokin. Hér verður að setja upp stans með
eigin tryggingum.
2. spönn. 5.7, 25m
Ofan slabbsins verður klifrið brattara. Þá taka við tvær rennur hlið við hlið.
Varúð, nokkrar lausar flögur í rennunni! Endar á smá sikk-sakki ofan við
rennurnar upp á augljósa góða syllu með tveggja bolta stans.
3. spönn. 5.6, 30m
Farið er u.þ.b. 5m beint upp frá stansinum, upp lausar flögur inn í stóra rennu og
áfram u.þ.b. 10m upp hana til vinstri að jaðri berggangsins. Handan við hornið
taka við 15m langar, 1-2m breiðar en brattar svalir, með þokkalegum tökum upp
í tveggja bolta stans.
4. spönn. 5.9, 20m
Beint upp bratt haft hægra megin við stansinn á mjög tæpum tök næstu 5-6m
(hér er kominn bolti á tortryggðasta og erfiðasta kaflann). Ofan haftsins tekur við
léttara klifur á slabbi upp að tveggja bolta stansi.
5. spönn. 5.8, 35m
Þessi spönn er sú alvarlegasta í leiðinni og liggur upp síðasta haftið upp á brún í
heldur lakara bergi en víða annars staðar í leiðinni. Spönnin byrjar á nokkuð
vafasömum en skemmtilegum flögum upp á hallandi syllu á miðri leið. Hér eru
tryggingar vandasamar og verður að passa að taka ekki of hraustlega á
flögunum, því sumar eru mjög lausar.
Upprunalega afbrigðið í lokahaftinu er að fara af hallandi syllunni ofan flaganna til
hægri út á jaðar berggangsins. Þar eru staðsettir 2 fleygar upp erfiðasta og
tortryggðasta kaflann. Einnig er hægt að fara lengst vinstra megin á syllunni inn í
bratt horn undir litlu þaki. Hornið er klifið upp að þakinu og þaðan er hliðrað út til
vinstri framhjá því.
Ofan þessa hafts tekur við stór sylla og smá sikk-sakk kemur manni upp síðasta
smá haftið, u.þ.b. 4m upp á stóra syllu með tveggja bolta sigstans.
6. spönn. 10-15m
Frá sigstansinum er svo 10-15m brölt upp á topp berggangsins. Toppurinn er
ákaflega “exposed” og þar er mikið af lausu grjóti þannig að það er vissara að
tryggja á leiðinni
Eftir að hafa spókað sig á toppnum er tilvalið að bakka niður að stansinum og
síga niður leiðina og er það gert í þremur 40-60m sigum
• úr toppstans (ofan 5. spannar) niður í 4. stans
• úr 4. stans beint niður í 2. stans
• úr 2. stans niður að snjó
Eða elta rauðu örina sem er merkt N fyrir niður
| Klifursvæði | Tröllaskagi |
| Svæði | Kerling |
| Tegund | Alpine |
WI 3+ ein stutt spönn
Við veginn. Fyrst farið á ísklifurnámskeiðinu Chicks with picks
FF: Kitty Calhoun og Dawn Glanc
| Klifursvæði | Ísafjarðardjúp |
| Svæði | Súðavíkurhlíð |
| Tegund | Ice Climbing |