Boreal
Rauð lína á mynd
Fundin boltuð og frumfarin af Guðjóni Snæ Steindórssyni og Snævarri Guðmundssyni.
Fyrst klifruð í maí 2013
Aðkoman tekur um það bil 90 mín og er það brött ganga upp grýtta fjallshlíð. Grjótið er allt laust en er það stórt að gangan er ekki eins og að ganga í skriðu. Einhver teymi hafa átt í erfiðleikum með að finna leiðina, vonandi kemur myndin af góðum notum. Það á að vera blátt prússik í fyrsta bolta, það er til að gera leiðina sýnilegri ef verið er að leita af henni, það táknar ekki að leiðin sé project.
Leiðin er þægilega boltuð alla leið og er því “byrjendavæn” ef svo má að orði komast. Leiðin er samt sem áður alvarleg, hún er langt af jörðinni og það er laust grjót á vissum stöðum. Því ber augljóslega að klifra með hjálm eins og venjan er í fjölspannaklifri.
Ekki er þörf á að taka með sér dótaklifurbúnað, hnetur vini eða fleyga. Þetta er hins vegar langt slabbklifur svo að klifurskór í víðari kantinum eru sniðugir.
1. spönn –30m 5.5 – 5 boltar, slab
2. spönn– 40m 5.5 – 6 boltar, slabb
3. spönn– 50m 5.7 – 10 boltar, slabb/þrep
4. spönn– 50m 5.7 – 14 boltar, slabb/horn
5. spönn– 35m 5.3 – 1 bolti, skriða/þrep
6. spönn– 45m 5.5 – 12 boltar, slab
7. spönn– 30m 5.7 – 7 boltar, slabb/sprunga
8. spönn– 40m 5.4 – 8 boltar, slabb/grófir
9. spönn– 48m 5.4 – 5 boltar, slabb/grófir
10. spönn– 55m 5.3 – 4 boltar, slabb/gróið
11. spönn– 55m 5.3 – 3 boltar, slabb/skriða
Alls 478 m
Tveir boltar í öllum megintryggingum, 4 í brattasta kaflanum. Meðaltalsbil á milli bolta segir ekkert til um þéttleikan en boltar raðst eftir því hve erfitt klifrið er.
Frá enda leiðar eru ca 30 m á toppinn á Kambhorni.
Hægt er að síga beint niður leiðina, búið er að koma fyrir sigakkerum fyrir það, best er samt að síga úr toppakkerinu niður norður hliðina á Kambhorni. Þá þarf bara að síga einu sinni og svo rölta niður skriður.
Við bendum á facebooksíðuna Klifur í Vestrahorni, hún hefur að geyma skemmtilegar myndir frá frumferðinni, ásamt ferðasögum frá ýmsum teymum sem hafa látið vaða í hana.
Klifursvæði | Vestrahorn |
Svæði | Kambhorn |
Tegund | Alpine |
Merkingar |
Myndbönd
Vel boltuð og flott leið, algjört stórvirki að græja þetta. Þriðja spönn, (fyrsta 5.7) er krefjandi og einnig 6. spönn (5.5) sem hefur lítið af handfestum.
Í 9. spönn er ankerið í slabbi fyrir neðan framhaldshrygginn, pínu erfitt að koma auga á það. Aðeins lengra til hægri og neðar en ég bjóst við.
Í 10. spönn er klifrað aðeins upp og svo hliðrað yfir hrygginn á næsta hrygg, ekki fylgja fótsporunum áfram upp mosahrygginn, þar er ekkert. Frekar löng hliðrun til hægri í ankerið, langt hægra megin við það sem maður býst við. Það var rauður prússik í því sumarið 2019.
11. spönn upp vinstra megin við ankeri, langt í fyrsta bolta. Topp ankeri sést vel til vinstri úr síðasta bolta.
Sigið af toppnum norður yfir er fínt, skriðan þar fyrir neðan er brött en að er hægt að brölta niður hana. Síðan er best að ganga alveg yfir söðulinn í greinilegt niðurgöngugil til suðurs.
Má búast við 9 tímum úr bíl í bíl fyrir tveggja manna teymi og 11-12 fyrir þriggja manna teymi.