2903793189

Svör sem þú hefur skrifað

22 umræða - 1 til 22 (af 22)
  • Höfundur
    Svör
  • in reply to: Bláfjöll 2012-13 #58130
    2903793189
    Meðlimur

    Skíðadeild KR og Opnum Skálafell voru að setja upp vefmyndavél í Skálafelli. Myndin uppfærist á mínútu fresti en veðrið á hálftíma fresti. Veðurupplýsingar eru sóttar niður á Mosfellsheiði frekar en á toppinn því þar er oft hvassara og kaldara en á sjálfu svæðinu.
    Kíkið á opnumskalafell.is og látið ekki bugast í hlákunni.

    in reply to: Tröllaskagamynd síðan í fyrra #58078
    2903793189
    Meðlimur

    Þetta er tekið í lok apríl í fyrra.

    in reply to: Hraundrangi -uppáferðasaga #57871
    2903793189
    Meðlimur

    17. júní (Minnir mig) 1997. Haukur Grönli, Matthías Sigurðarson og Kári J. Sævarsson.

    in reply to: Vorskíðun #57765
    2903793189
    Meðlimur

    Við fórum þrjú Bjallana að Heklu á Uppstigningadag. Renndum frekar blint í sjóinn með færðina en eftir festu og mokstur í brekkunni þar sem farið er upp á hraunið úr gilinu er að leiðin að Litlu Heklu orðin Súkkufær upp að snjó. Það er einn langur skafl í hrauninu sem þarf að taka á ferðinni en annars nokkuð greiðfært.

    Við lögðum af stað upp fjallið um fimmleytið og lentum í mökksnjókomu. Létum nægja að labba upp á hrygginn og skíðuðum 20 cm nýsnævi beina leið niður í bíl.

    Á leiðinni til baka kíktum við á leiðina sem liggur meðfram girðingunni og að Rangárbrúinni. Þar er snjóskafl í gilinu á leiðinni sem við treystum okkur ekki yfir. Einhverjir gætu eflaust þrykkt þarna yfir á öflugri bílum en við snérum við niður í Næfurholt.

    in reply to: Vorskíðun #57758
    2903793189
    Meðlimur

    Veit einhver hvernig færðin er inn að Heklu þessa dagana. Ég heyrði af hópi sem var þarna sunnudaginn 6. maí. Þá var ekki hægt að keyra að brekkunum út af sköflum í hrauninu. Hefur einhver farið í millitíðinni sem getur gefið nýrri upplýsingar.

    Kveðja,

    Kári

    in reply to: Vorskíðun #57688
    2903793189
    Meðlimur

    Við fögnuðum nokkur sumri í austurhvilftinni í Hátindi. Enn fullt af snjó og hægt að skíða niður í dalbotn.

    Fyrir áhugafólk um Skálafell þá settum við í loftið heimasíðu um norðurhlíðina um daginn. Þar væri upplagt að koma upp lyftu og lengja skíðatímabilið. Það eru sennilega fáir staðir jafn vænlegir til að stunda utanbrautarskíðun með lyftuívafi og norðurhlíðin sem gamlir skíðamenn kalla, Shangri-La, fyrirheitna landið.

    http://www.opnumskalafell.is/shangri_la

    Ef einhverjir hafa áhuga á að leggja verkefninu lið með því að senda inn myndir af brekkunni er netfangið shangrilaskalafell@gmail.com.

    in reply to: Vorskíðun #57656
    2903793189
    Meðlimur

    Ég fór í Ufsilonið í Hátindi í gær. Suddi allt í kring en eins og oft var veðrið vel þolanlegt í gilinu sjálfu. Færið var undurmjúkt og það er enn hægt að skíða alla leið niður að á. Það fer nú samt væntanlega að styttast í þeirri skemmtun. Austari greinin er nánast alveg grjótlaus en sú vestari eflaust óskíðandi.

    in reply to: Vorskíðun #57635
    2903793189
    Meðlimur

    Ég fór í norðurhlíð Skálafells á laugardaginn. Það er brekka sem leynir á sér með bröttum stöllum sem eru mjög skemmtilegrir í vorfærinu. Það var hægt að skíða alveg niður í dalbotninn. Ég hef heyrt að sumir sleppi því en það er klárlega einn skemmtilegasti parturinn að mínu mati. Á leiðinni til baka er upplagt að fara upp að mastri og koma niður beint fyrir ofan gamla KR skálann.

    Er ufsilonið sama gil og það sem sumir hafa kallað s-laga gilið eða er það innar í Grafardalnum?

    in reply to: Skálafell #57505
    2903793189
    Meðlimur

    Þetta eru frábærar fréttir. Nú er bara að láta sjá sig allar helgar í Skálafelli og sýna fram á að það hafi verið mikil eftirspurn eftir þessu. Hafa fjallið allt útskíðað og barnalyftuna stútfulla af brosandi krökkum.

    http://www.facebook.com/opnumskalafell

    in reply to: Skálafell #57335
    2903793189
    Meðlimur

    Þetta er náttúrulega gráupplagt. Ég og vinnufélagi minn stofnuðum FB síðu til stuðnings pælingunum. Góð hugmynd að gera like og viðra skoðanir þar líka.

    http://www.facebook.com/opnumskalafell

    in reply to: Utanbrautarskíðun? #57327
    2903793189
    Meðlimur

    Nokkir unnendur Skálafells hafa komið á fót Facebook-síðu til að sýna stuðning við að svæðið verði opnað í einhverri mynd í vetur. Er ekki sjálfsagt að gera like á það?

    http://www.facebook.com/pages/Opnum-Sk%C3%A1lafell/347441925266250

    in reply to: Gufunesturninn #57301
    2903793189
    Meðlimur

    Fór í turninn í gær í fyrsta skipti. Aðstaðan, fyrirkomulagið og aðstæðurnar eru algjörlega til fyrirmyndar. Við vorum líklega þriðji hópurinn þetta kvöldið.

    in reply to: Endursólun klifurskóa? #55736
    2903793189
    Meðlimur

    Ég sendi þessum

    http://www.kletterschuhe.de/

    slatta af skóm í fyrra. Góð þjónusta en það þarf að greiða af þessu virðisaukaskatt þegar skórnir koma til baka. Það gerir aðgerðina nokkuð dýra.

    in reply to: Telemark #54933
    2903793189
    Meðlimur

    Það er að sjálfsögðu best að fá tilsögn en í neyð má lesa sér til.

    Ég lærði sveifluna í þessum bréfaskóla: http://telemarktips.com/Lesson.htm

    in reply to: Telemarkfestivalið #53914
    2903793189
    Meðlimur

    Mæti beint á ballið.

    in reply to: Fórstu í Bláfjöll í gær? #53421
    2903793189
    Meðlimur

    Það var unaðslegt færi. Gilið kostaði mig nokkrar rispur en mér fannst það sanngjarnt verð.

    in reply to: Klifur í dag #53321
    2903793189
    Meðlimur

    Við Haraldur Ingvarsson fórum Krókinn í Glymsgili í gær. Leiðin var í blautum en almennt fínum aðstæðum og lítið athugavert við veðrið.
    Fórum ekkert lengra inn gilið en sáum á leiðinni að Spönnin nær niður en er þunn, Kelda er ekki búin að myndast en einn af fossunum á brúninni er sennilega fær.

    Kári

    in reply to: Utanbrautarbandalag Ísalp #53148
    2903793189
    Meðlimur

    Ég mæti.

    in reply to: Festival-afsláttur fyrir Ísalpara #52475
    2903793189
    Meðlimur

    Fengum okkur borgara báðar leiðir. Þeir stóðu heldur betur undir væntingum. Gott framtak.

    in reply to: La Sportiva Nepal Extreme skór #52322
    2903793189
    Meðlimur

    Ég á Nepal Top sem er ófóðraða útgáfan af Nepal extreme. Þeir hafa reynst mér vel í rúm tíu ár. Reyndar svo vel að ég lét sóla þá þegar þeir voru orðnir slitnir hjá http://www.kletterschuhe.de/. Leðrið á mínum var lítið slitið en sólinn mikið slitinn og broddafestingin að framan gjörsamlega farin. Nýr sóli kostaði ekki nema 7 þús. sem er brot af nýjum skóm.

    Hef ekki notað venjulega brodda en get ekki ímyndað mér að það sé mikið mál

    in reply to: Netverslanir á Ítalíu eða í evrópu #52311
    2903793189
    Meðlimur

    Ég hef notað http://www.cham3s.com og towerridge.co.uk með ágætum árangri. http://www.needlesport.com í Englandi er líka góð no-nonsense klifurbúð á netinu.

    in reply to: Laumuklifrarar ? #52216
    2903793189
    Meðlimur

    Laumuklifrararnir heita Kári Sævarsson og Haraldur B. Ingvarsson. Ég veit nú ekki hvað leiðin heitir en Harri vinnufélagi minn og klifrari af annarri kynslóð benti mér á hana. Þetta er þrælskemmtileg leið sem við tókum í þremur spönnum. Leiðin er hvergi lóðrétt en ísinn var yfirleitt þunnur og lítið hægt að tryggja.

    Ég held að það sé óhætt að mæla með henni ef menn vilja eiga góðan dag á fjöllum, rölta, klifra og enda á toppi.

22 umræða - 1 til 22 (af 22)