Home › Umræður › Umræður › Skíði og bretti › Bláfjöll › Re: svar: Snjóframeiðslu þráhyggja
19. janúar, 2008 at 02:16
#52242
0801667969
Meðlimur
Í kvöld var í fjölmiðlum enn eitt viðtalið við einn af forsvarsmönnum skíðasvæðisins í Bláfjöllum þar sem fram kemur að gervisnjór og snjóbyssur eru það sem bjarga eigi svæðinu.
Svo skemmtilega vill til að á sama tíma og viðtalið er sýnt á Stöð 2 þá eru þúsundir eða milljónir rúmmetra af snjó að fjúka af stað í norðanáttinni úr brekkunum eitthvert út á heiði fáum til gagns.
Nú hefði verið betra að ná þessum snjó með snjógirðingum inn í skíðaleiðirnar. Þessir snjóflutningar eru einnig ókeypis.
Af hverju minnast þessir forsvarsmenn aldrei á snjógirðingar?
Kv. Árni Alf