Bláfjöll

Home Umræður Umræður Skíði og bretti Bláfjöll

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46979
    0703784699
    Meðlimur

    Já er það ekki æðislegt að vera með skíðasvæði sem loksins sér snjó, en þá vantar starfsmennina?

    Himmi

    #52235
    3008774949
    Meðlimur

    Já það er alveg klárt mál að þetta er verst rekna skíðasvæði í Evrópu þessa dagana. Alltaf sagan með þetta blessaða svæði, það er aldrei hægt að ráða mann með viti til að reka þetta almennilega.

    Gærkvöldið var náttúrulega bara rugl,varla hægt að bjóða fólki upp á svona kjánalæti. Mér skildist að það hafi verið 4 starfsmenn á svæðinu!!!! Hressandi

    #52236
    0112873529
    Meðlimur

    Ja tel mig góðan að hafa mætt kl 1600 og náð nokkrum ferðum áður en allt pakkið kom. Þeir sem mættu kl 1800 hafa örugglega ekki náð mörgum ferðum.

    Kv Danni G

    #52237
    0808794749
    Meðlimur

    Ég gaukaði þeirri hugmynd að nýja framkvæmdastjóranum að ráða kannski eins og nokkra pólverja í vinnu…
    Annars líst mér vel á hann þó svo það sé óneitanlega klúður að vera ekki með fólk í vinnu til að halda öllu opnu.

    #52238
    Smári
    Participant

    Maður þarf ekkert starfsfólk ef maður býr á Laugarvatni… Gekk á Laugarvatnsfjall, skíðaði niður og konan tók myndir út um eldhúsgluggann.

    myndir á http://www.flickr.com/photos/22925172@N03/sets/72157603745570225/

    Smári

    #52239
    0801667969
    Meðlimur

    Hér hefur mökksnjóað í allan dag. Nýstytt upp, heiðskýrt, logn og Fjallið í einum flottustu aðstæðum sem ég hef séð. Færið er mergjað sérstaklega á í púðrinu á troðnu brautunum. Þó ekki verði opið í kvöld mæli ég með að menn labbi upp og njóti færisins. Hugsanalega hvasst á morgun og því púðrið á bak og burt.

    Kv. Árni Alf.

    #52240
    0703784699
    Meðlimur

    Setning dagsins…“Samt betra að eiga rispuð skíði en skíði sem maður notar ekki vegna hræðslu við að rispa þau „

    Fyrsta rispan er alltaf erfiðust en svo venst það….var ekki í einhverju dægurlaginu…..það er vont en það venst,

    Frábært að sjá hvað landinn tekur við sér þegar viðrar,

    kv.Himmi

    #52241
    0808794749
    Meðlimur

    engar rispur eftir púðurrispuna sem ég og björk tókum í Kóngsgilinu í kvöld. ef einhver hafi efast um að það sé hægt að lenda í púðri í bláfjöllum þá hefði hann átt að vera á svæðinu. alveg fáránlega flottar aðstæður.

    þeir sem stefna utanbrautar þessa helgina ættu að vera vakandi vegna snjóflóðahættu. mikill snjór og nokkur vindur geta verið hættuleg blanda…

    #52242
    0801667969
    Meðlimur

    Í kvöld var í fjölmiðlum enn eitt viðtalið við einn af forsvarsmönnum skíðasvæðisins í Bláfjöllum þar sem fram kemur að gervisnjór og snjóbyssur eru það sem bjarga eigi svæðinu.

    Svo skemmtilega vill til að á sama tíma og viðtalið er sýnt á Stöð 2 þá eru þúsundir eða milljónir rúmmetra af snjó að fjúka af stað í norðanáttinni úr brekkunum eitthvert út á heiði fáum til gagns.

    Nú hefði verið betra að ná þessum snjó með snjógirðingum inn í skíðaleiðirnar. Þessir snjóflutningar eru einnig ókeypis.

    Af hverju minnast þessir forsvarsmenn aldrei á snjógirðingar?

    Kv. Árni Alf

    #52243
    0801667969
    Meðlimur

    Það sem vantaði kannski inn í þetta hjá mér er að þessi frétt kemur þegar allt er hér á kafi í snjó og menn eiga í vandræðum með hann.

    Það tæki allar snjóbyssur landsins mörg ár að framleiða það magn sem er hér er og á ég við það sem eingöngu er í skíðaleiðum.

    Þegar ég sá stafsetninguna á þessu þurfti ekki að bæta við L-i heldur setja bara Y – lon inn í þetta. Á miklu betur við.

    Kv. Árni Alf.

10 umræða - 1 til 10 (af 10)
  • You must be logged in to reply to this topic.