Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Klifur í dag › Re: svar: Klifur í dag
7. desember, 2008 at 22:59
#53316
Skabbi
Participant
Hæ
Þakka piltunum sem fjölmenntu á Óríon fyrir snilldardag, og hinum líka sem tóku áðí á Búllunni með okkur. Stormurinn sem feykti okkur næstum niður Flugugil hefur greinilega komið víða við. Annars var Óríon í löðrandi góðum aðstæðum í dag en það gæti breyst hratt í þessari ofankomu.
Þetta hefur verið hardcore dagur víða á suðvestur horninu, hver klassíkerinn af öðrum negldur, Þilið, Óríon, Grafarfoss…
Við hittum stórhuga stelpukrú sem stefndi á Múlafjall í morgunsárið. Gaman þegar allt er að gerast.
Ég er nett spenntur að heyra meira af deginum í Þilinu. Maður sperrir óneitanlega eyrun þegar það ber á góma.
Allez!
Skabbi