0304724629

Svör sem þú hefur skrifað

25 umræða - 101 til 125 (af 131)
  • Höfundur
    Svör
  • in reply to: Forsíðumyndir næstu dagana #49393
    0304724629
    Meðlimur

    Það er töluvert síðan að ég sendi inn nokkrar myndir sem ég var búinn að sníða til. Var þeim bara kastað eða…?

    kv

    rok

    in reply to: Ísklifurfestival #49307
    0304724629
    Meðlimur

    …af því að það er lengra austur á firði

    Reykjavík – Egilsstaðir um suðurland= 698km
    Reykjavík – Ísafjörður um Strandir og Djúp= 490km

    Myndi samt kíkja austur ef farið verður þangað. Líst vel á það.

    in reply to: Mont Blanc #48738
    0304724629
    Meðlimur

    Ef þið hafið farið á Hvannadalshnjúk er þetta ekkert mál. Ef ekki, þá ættuð þið að gera það með lokaðan munninn og límt fyrir aðra nösina. Þá sjáið þið hvaða áhrif minnkandi loftþrýstingur hefur á líkamlega getu!!!!

    Au revoir

    in reply to: Fjall dagsins #48656
    0304724629
    Meðlimur

    Takk fyrir bökuna meistari. Hún rann ljúft niður en var óneitanlega farinn að kólna. Kom samt ekki að sök.

    rok

    in reply to: Björgunartryggingar Stórabróður #48575
    0304724629
    Meðlimur

    Það væri gaman að vita hvar þjóðagarðsvörður ritaði þetta. Hver er hans skoðun?

    Er í alvöru verið að spá í þetta? Ef svo er, þá flyt ég til Texas.

    rok

    in reply to: Banff #48567
    0304724629
    Meðlimur

    runaroli@isafjordur.is

    Best væri að fá þetta í Freehand eða PSD zippað til að auðvelda flutning.

    in reply to: Banff #48565
    0304724629
    Meðlimur

    Takk fyrir þetta. Ég skal kanna málið.

    Eruð þið með smart poster eins og í fyrra til að auglýsa herlegheitin?

    rok

    in reply to: Telemarkhelgin á Akureyri 2004 #48557
    0304724629
    Meðlimur

    Ókei, ég læt ykkur um þetta. Ég nenni ekki norður fyrir einn dag. Þarf að fljúga vestur á sunnudeginum þannig að Sigló er úr myndinni. Ekki eru allir að fara suður…
    Samt gott að halda þessu til streitu.
    Böbbi minn, þú mátt eiga bikarinn þetta árið…!

    rok

    in reply to: Ísklifurfestival myndir o.fl. #48486
    0304724629
    Meðlimur

    Þetta er neðst á forsíðunni

    in reply to: Ísklifurfestivali lokið #48468
    0304724629
    Meðlimur

    Sæll Andri

    Þetta eru áhugaverð skrif hjá þér. Ég var reyndar að komast að því í dag að maður hefði borist með flóðinu niður!!!
    Samkvæmt þeim uplýsingum sem ég og þeir menn sem voru efst fengu, hafði ástralinn lent aðeins í jaðrinum á flóðinu en tekist að stökkva út úr því eftir nokkra metra. Ég var greinilega alveg að misskilja þetta. Ég var sammála þér að snúa við eftir flóðið og kallaði það til efstu manna að snúa við. Hinsvegar áttum við einungis 20 metra upp að ísnum og hægt að koma sér vel fyrir bakvið stórt kerti og sötra teið, sem við og gerðum. Síðan átti að halda niður. En þegar menn tóku að róast (en þar var ástralinn með í för. Ekki furða að hann var svona rólegur fyrst hann lenti ekki í flóðinu), var ákveðið að klifra eina spönn eða svo til að gera eitthvað úr deginum. Varð úr hin besta skemmtun, en eins og ég segi, þá hafði ég ekki hugmynd um að þetta hefði staðið svo tæpt eins og þú segir og víst að við hefðum snúið við og hugað að bretanum Russel ásamt öðrum. Á sunnudeginum var ég að forvitnast hvar Russel væri vegna þess að ég sá hann ekki. Mér var sagt að hann væri að hvíla sig eftir laugardaginn og ég hugsaði með mér að hérna væri ekki mikil hetja á ferð sem gæti ekki farið á fjöll tvo daga í röð!!!
    En nú veit ég hið rétta. Það var reyndar hringt í mig frá bb.is sem er lókal fréttavefurinn hér á Ísafirði. Blaðamaður spurði mig hvort að maður hefði borist alla leið niður með snjóflóði í Naustahvilft á laugardeginum. Ég sagði við hann að það væri algjör vitleysa og hér væri greinilega búið að stórlega ýkja söguna. Nú er hægt að lesa lygasögu mína á bb.is sem ég hélt að væri sannleikurinn. Höddu hringdi síðan í mig og spurði hvern fjandann ég væri að bulla og ég kom bókstaflega af fjöllum.

    Já það má örugglega læra af þessu og það sem mér finnst kannski eitt sem ætti að spá í, er að þegar hópurinn er jafn breiður og hann var í þetta sinn; allt frá nánast byrjendum upp í atvinnumenn, þarf að tryggja það að einhver hafi umsjón með þeim sem eru skemur komnir í sportinu. Því ef slys gerast við svona ,,official“ aðstæður í nafni klúbbsins er það slæmt og gæti orðið hafarí.
    Það hefði að vísu ekki breytt neinu hér um en kannski hefði verið meiri stjórn á þessum höfuðlausa her sem þrammaði þarna upp Erninn. Já þetta var höfuðlaus her sem enginn hafði beðið mig eða einhvern annann að stjórna. Kannski hefði maður átt að taka af skarið. Gott að vera vitur eftir á.

    Ég vill enda þessa löngu ræðu á því að þakka þeim sem heimsóttu okkur sveitalarfana um helgina. Það eru allri velkomnir hvenær sem er.

    p.s. Einar Öræfingur og svíarnir fóru ansi sæta leið í Seljadal á sunnudeginum meðan við Eiríkur ákváðum að máta okkur við tesmökkun og myndatökur í hæfilegri fjarlægð.

    Góða stundir

    rok

    in reply to: Myndirnar hans Palla #48443
    0304724629
    Meðlimur

    Gott framtak hjá Palla

    Ég þekki ekki margar. Samt sé ég GHC og Jeff Lowe á ísfestivali í Haukadal. Eins eru Christophe Moulin og Manu Ibarra að klifra leiðina við hliðina á Glym. Man ekki hvað hún heitir. Djöfull var kalt þann daginn…!

    Svo sá ég Oríon. Veit ekki hver klifraði hann fyrstur. Býst við að það sé Palli ásamt fleiri góðum mönnum fyrst hann er að minnast á það!

    rok

    in reply to: Er eitthvað að frétta fyrir westan? #48441
    0304724629
    Meðlimur

    Það er búið að vera svo mikið að gera í vinnunni hjá mér að ég hef ekki komist út til að mynda. Það er komið myrkur þegar ég kem heim og myrkur þegar ég mæti í vinnu. Næ að taka rúnt á morgun. Ekki halda samt í ykkur andanum…

    Þið getið tékkað á http://www.skidavikan.is til að létta ykkur stundirnar. Ég var að setja inn nokkrar myndir á vefinn. Fleiri bætast við fljótlega.

    in reply to: Vantar myndir #48287
    0304724629
    Meðlimur

    Langar að minna á að a.m.k. ég persónulega gaf eingöngu leyfi fyrir að birta mínar myndir í ársritinu en ekki í auglýsingum frá Klifurhúsinu. Vildi bara vara þig við Jónki áður en þú ferð að dæla myndum í allar áttir sem aðrir í raun eiga.

    En ef maður er beðinn fallega, þá….

    rok

    in reply to: Síður erlendis! #48266
    0304724629
    Meðlimur
    in reply to: Þilið #48243
    0304724629
    Meðlimur

    Það er rétt Karl.

    Ívar hringdi í mig og bað mig að hafa samband við lögregluna í Mosfellsbæ til að tryggja að þeir sendu almennilegan bíl inneftir og hvar ætti að fá lykil af keðjunni. Þeir sendu Chukaranna hjá Slökkviliðinu í Reykjavík á staðinn. Efsta spönnin brotnaði víst í mola og Ívar tók víst góðann sving. Hann slasaðist á læri líklega af ísskrúfu sem var í beltinu hjá honum. Hann hélt hann væri tognaður en var annars bara í góðum fíling. Hann var sem betur fer búinn að hreinsa út skrúfurnar áður en þetta gerðist. Þeir ætluðu að ganga niður brekkuna og bíða eftir bílnum.
    Þeir félagar skrifa líklega meira þegar þeir koma til byggða.

    kv

    rok

    in reply to: Frettir ad handan #48227
    0304724629
    Meðlimur

    Olli minn farðu nú í kalda sturtu.
    Er ekk rétta að þú hafir auðgað andann með lestri amerískra skrudda og dvalið langdvölum á skólabekkk vestanhafs?

    Það er gott að þeim tókst ekki að beygja þig helv. imperíalistunum.

    in reply to: Vestan ís #48222
    0304724629
    Meðlimur

    Nei það er ekki opið í Tungudal. Reyndar eru gönguskíðamenn farnir að renna sér. Nú er við frostmark og snjóar töluvert til fjalla og slydda í bænum.

    in reply to: Í hlekkjum #48218
    0304724629
    Meðlimur

    Það er gott að Ívar er loksins búinn að læra að skrifa Eilífsdalur. Þess ferð var þá ekki til einskis.

    rok

    in reply to: Jæja krakkar #48179
    0304724629
    Meðlimur

    Way to go hardcore!

    Þetta eru allt aumingjar…nema þú…og kannski ég…og nokkrir aðrir!

    Nú er maður búinn að leggja PlayStation tölvunni og farinn að brýna klærnar enda vetur í bæ. Vona að það endist fram yfir hádegi.

    Herra Ís land

    in reply to: Myndasýningar og humar #48163
    0304724629
    Meðlimur

    Hver er humarstrákurinn og hvaða dal er átt við?
    Nú er maður greinilega ekki að fylgjast nógu vel með.

    rok

    in reply to: Vaðalfjöll, Sauratindar og Hrafnfjörður #48098
    0304724629
    Meðlimur

    Hva…er SSS farinn að mýkjast á seinni árum?

    SSS gleymdi líka að minnast á eldabuskurnar í fyrstu ferðinni í Hrafnfjörð, þær Nanný og Lilju. Þakka ég þeim góðan viðurgjörning. Án þeirra hefðu leiðirnar ekki orðið að veruleika…

    in reply to: Einfara „Solo Climbing“ #47936
    0304724629
    Meðlimur

    Nei Palli ég átti ekki við þig sérstaklega. Eiginlega frekar við mig enda neita ég því ekki að maður öfundi stundum þessa stráka sem virðast hafa allan tíma í heiminum til að leika sér.
    Svo hefur veturinn verið ansi aumkunarverður hér fyrir vestan og útþráin farinn að gera vart við sig en lítið hægt að gera í því.

    kv

    rok

    in reply to: Einfara „Solo Climbing“ #47934
    0304724629
    Meðlimur

    Ég er sammála Andra.

    Mér finnst það vera einkamál hvers og eins hvaða stíl hann velur sér svo lengi sem hann/hún veldur öðrum ekki skaða, þar með talið ættingjum sínum. Ég veit ekki hvort að góður félagi minn hann Ívar hafi verið að sækjast eftir viðurkenningu þeirra sem telja sig meiri spekinga í íslenskri fjallamennsku, allavega vissi ég ekki af þessu…!
    Getur verið að það gæti öfundar þeirra sem nú eru fjölskyldufeður og mega ekki gera svona hluti?

    kv

    rok

    in reply to: Ísalp 2001-2002 #47900
    0304724629
    Meðlimur

    Frábært

    Ég er ekki viss um hvort ég borgaði árgjaldið. Hver getur staðfest það?

    rok

    in reply to: Segðu mér allt… #47879
    0304724629
    Meðlimur

    Djöf…ég sem er búinn að selja mínar footfangs gripgeiflur. Kannski hægt að verða sér úti um slík tól í útilíf á góðum prís…

25 umræða - 101 til 125 (af 131)