Hvalfjörður
Í Hvalfirði hefur mikið verið klifrað og teljast mörg svæði til hans eða nágrenisins. Áberandi meira hefur verið klifrað í Glymsgili, Brynjudal og Múlafjalli og fá þeir því sér síður tileinkaðar sér. Einnig er Kjósin mjög nálægt og má þess geta að Hvalfjörður og Kjós voru gefin út í sama leiðarvísi árið 1990. Í Hvalfirði má einnig finna sportklifursvæðið Valshamar og Hnefa. Nánari upplýsingar um Valshamar má finna á klifur.is/crag/valshamar
Undirsvæði Hvalfjarðar eru:
Brekkukambur
Stök leið eins og er, hugsanlega leynast þarna fleiri gersemar.
Litlasandsdalur og Gljúfurdalur
Litlasandsdalur er rétt vestan við Þyril, dalurinn fyrir aftan Þyril og fyrir ofan tankana. Flestar leiðirnar eru austan megin í dalnum en ein stök leið er vestan megin í dalnum, Flöskuháls. Í dalinn renna tvær ár Gljúfurá og Bláskeggsá. Til að komast í Gljúfurdal þarf að ganga eins og verið sé að stefna á Flöskuháls en fylgja síðan Gljúfuránni upp gljúfrið rétt hægra megin við Flöskuháls. Gangan upp í Gljúfurdal tekur um klukkutíma.
Sögusagnir herma að á tímabili hafi þessi dalur verið einskonar leynisvæði klifrara úr Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík. Engar upplýsingar hafa hinsvegar fengist um þessa laumupúka og því er dalurinn nánast „óklifraður“ eins og er.
0. Flöskuháls – WI 3
1. –
2. –
3. Fyrstur upp að veggnum – WI 3
4. –
5. Enginn er verri þó hann vökni – WI 4
6. Kælivökvi – WI 3-4
7. –
Þyrill
Áberandi hamrar ofan við Þyrilsnes, sem er mjög áberandi kennileiti í Hvalfirði. Hér er nokkuð af ís og snjóleiðum en líka fjölspanna dótaklifurleiðir sem hafa ekki verið farnar á síðustu árum eða áratugum, hugsanlega vegna þéttninar í berginu.
Glymsgil
Fær sér síðu vegna vinsælda, sjá Glymsgil
Múlafjall
Fær sér síðu vegna vinsælda, sjá Múlafjall
Brynjudalur
Fær sér síðu vegna vinsælda, sjá Brynjudalur
Kjósaskarð
Fær sér síðu vegna vinsælda, sjá Kjós
Reynivallaháls
Stakar leiðir hér og þar yfir ágætlega stórt svæði
Leiðarlýsing
Frá Reykjavík er þjóðvegi 1 fylgt í norður. Í stað þess að fara göngin er beygt inn fjörðinn. Um klukkustundar akstur er inn í botn fjarðarins frá Reykjavík.