2911596219

Svör sem þú hefur skrifað

25 umræða - 1 til 25 (af 39)
  • Höfundur
    Svör
  • in reply to: Enn ein ástæða til að fara með á Skessuhorn #51235
    2911596219
    Meðlimur

    Er það kannski bara væl að benda á að veðurspáin er ekki með bezta móti … og hvernig er með snjóflóðahættu, eru þetta ekki kjöraðstæður fyrir svoleiðis – ef veðrið gengur eftir?

    Einn sem ekki hefur farið þarna upp – ennþá!

    … bara að spá í þetta með samviskuna!!!

    in reply to: Helgarmontið #51210
    2911596219
    Meðlimur

    Já … tek undir það með Ingvari. Þetta eru ótrúlega vel samsett myndasería – maður gat hreinlega lifað sig inní klifrið með ykkur.
    Svona eiga myndaseríur að vera – svo aftur, flottir!

    kv. GHS

    in reply to: Aðstæður á SV. horninu #51199
    2911596219
    Meðlimur

    Takk Olli … en hvar er Villingardalur?

    kv. GHS

    in reply to: NIce photos #51182
    2911596219
    Meðlimur

    Hi Helen, hope you had a fun at last weekend. Like you know, I was´t able to come because of my workplan. It´s terrible that I could´t get there to climb with you and the other guy (I have forgot his name) and of cause not meeting all the other guy´s from Ísalp.
    Here is the linc to Gummi´s website and there is some photos of everyone that was climbing that sunday.

    http://php.internet.is/gummistori/

    best regards,

    Gísli Hjálmar

    in reply to: Húsafell #51143
    2911596219
    Meðlimur

    … má þá segja að þú hafir andast í leiðinni – eða?

    Hvernig væri að láta mann vita þegar verið er að fara í svona leiðangra – ha!

    kv. GHS

    in reply to: Nördar í Ísalp #51125
    2911596219
    Meðlimur

    … þá förum við bara í það að gróðursetja meira – ekki rétt?

    Kanski að það verði til þess að við getum hulið öll þessi álver sem eiga að rísa á næstu árum – eftir því sem núverandi stjórnarliðar vija!

    kv. GHS

    in reply to: Nördar í Ísalp #51123
    2911596219
    Meðlimur

    Ég er svolítið sammála síðasta ræðumanni. Það er að segja, hvernig væri að afmarka ökuleiðir um náttúruperlur okkar Íslendinga og þá er ekki vitlaust að malbika þær.

    Þetta fyrirkomulag virðist vera víða erlendis þar sem menn vilja ekki spilla náttúrunni með óheftri umferð ölutækja og þar með halda náttúrunni og lífríkinu í sem næst sínu upprunalega formi.

    … ekki spillir fyrir svona hugmyndum að það eru kosningar framundan og sumir stjórnmálaflokkar eru nánast í því að kaupa sér áframhaldandi stjórnarsetu með fjárframlögum hingað og þangað í samfélaginu – því ekki til svona þarfra málefna sem náttúruvernd er!

    Eru menn ekki annars búnir að fá uppí kok af þessari gegndarlausu virkjunaráformum og svo maður tali nú ekki um allt það peninga-flóð sem allar þessar athuganir og rannsóknir kosta samfélagið. Væri ekki nær að nota þá peninga í td. landgræðslu og náttúruvernd – eða kannski setja Ómar Ragnarson á launaskrá hjá Landsvirkjun …

    kv. GHS

    in reply to: Axir #51017
    2911596219
    Meðlimur

    Nei nei Gummi … Viðar er hættur að klifra með axir einsog við hinir aumingjarnir – hahhahahahah

    Sorry Viðar ;=)

    kv. GHS

    in reply to: Fundinn BD-hjálmur #50898
    2911596219
    Meðlimur

    … en Gummi er kominn útúr Byrginu, og hefur hann verið að stunda ísklifur með okkur hinum – sem eigum hvergi skjól!

    in reply to: Fundinn BD-hjálmur #50896
    2911596219
    Meðlimur

    Þetta er alveg örugglega hjálmurinn hans Gumma!

    Við vorum fjórir á ferðinni þarna í nóv sl. og eftir ferðina varð Gummi þess áskynja að hjálminn hans vantaði í dótið.

    kv. Gísli Hjálmar

    in reply to: Marðará fljótshlíð #50862
    2911596219
    Meðlimur

    Þetta eru merkilega þroskaðar umræður …

    Ég verð að játa það að ég skil ekki upp né niður í þessum umræðum!

    ps.
    Kannski er ég bara svona þroskaheftur!

    in reply to: Vefurinn #50849
    2911596219
    Meðlimur

    Góður Ívar …

    Ég ætla líka að nota tækifærið og óska þér og þínum – ásamt öllum sem ég hef kynnst í Ísalp á árinu – gleðilegra jóla og klifurríks-nýárs.

    kv,

    GHH

    in reply to: Vefurinn #50847
    2911596219
    Meðlimur

    Jamm … tek undir það, hvað kom fyrir?

    in reply to: Gott sprell í Stíganda #50806
    2911596219
    Meðlimur

    … nema Viðar

    hahahhaha …

    in reply to: Tilkynningar um ísklifur … #50787
    2911596219
    Meðlimur

    Ekki mæta fullur í prófin Ívar …

    Ekki vissi ég að það væri samkeppni á milli manna í ísklifrinu – finnst það eitthvað svo fáranlegt! Sérstaklega, þar sem við höfum ekki mikinn tíma í það sport vegna veðurfarsins hérna á Fróni.

    Menn ættu miklu meira að stuðla að samvinnu, og þá sýna félagsandann í verki … ekki satt?

    GHH

    in reply to: Tilkynningar um ísklifur … #50783
    2911596219
    Meðlimur

    Djöf…. er ég sammála þér Ívar, og velkominn heim frá Danaveldi (ertu ekki örugglega kominn heim aftur?).

    Hvernig var að klifra HIMMELBJERGET – þvílíkt og annaðeins nafn á 50 metra háum hól; einhverjir Danir með minnimáttar-komplexa, eða hvað!

    … menn mættu einnig vera duglegri að kommenta hérna á vefinn, og þá er ekki vitlaust að láta vita af hugsanlegum ferðum.

    Verum minnugir þess að: „sameinaðir stöndum vér, sundraðir bla bla …

    kv
    Gísli Hjálmar (rosalega sameinaður sjálfum mér …)

    in reply to: Grafarfoss #50772
    2911596219
    Meðlimur

    Já … það hlýtur að vera gaman í útlandinu Ingvar.
    Nei það er ekki frost á fróni – allt farið!

    … en það spáir vel yfir helgina, og við verðum bara að treysta því að það komi, það er að segja frostið okkar kæra –

    Hvernær kemur kappinn aftur heim á frón?

    kv. GHH

    in reply to: Grafarfoss #50765
    2911596219
    Meðlimur

    Gummi minn …

    … maður þarf ekkert nema góðan vilja og markvissa stefnu í norður!

    Grínlaust, þá er þetta afleggjari sem þú tekur til vinstri við fornbílaklúbbin á hæðinni þarna fyrir utan Mosfellsbæ sem er leiðin. Þú heldur svo bara áfram þann vegspotta alveg að húsinu sem er uppundir fossinum, ca. 10 mín keyrsla þangað frá afleggjaranum.

    … og drífa sig svo

    Hvernær ertu að spá í að fara? Mig dauðlangar aftur í þessar aðstæður – eru alveg meiriháttar …

    kv. GHH

    in reply to: Aðstæður um helgina #50749
    2911596219
    Meðlimur

    Það var mikið að sá sem öllu fjarðarfokinu olli, lét loksins í sér heyra …

    Ég er til í að hittast við klifurhúsið kl. 8.00 – stundvíslega!!!

    Viðar er handónýtur eftri byltuna í Stíganda og kemst ekki með samkv. símtali við hann í dag (reyndar bara aumur, sem betur fer).

    Gummi ert þú með nóg af skrúfum?

    kv. GHH

    in reply to: Aðstæður um helgina #50745
    2911596219
    Meðlimur

    Amma mín sagði alltaf: kapp er bezt með forsjá …

    … en það var ekki fyrr en undanfarin ár sem ég er virkilega að „fatta“ hvað hún amma mín – ágæt – átti við!

    Gott að þú slappst með skrekkinn Viðar :)

    kv. GHH

    in reply to: Aðstæður um helgina #50742
    2911596219
    Meðlimur

    Er þá ekki bara málið að fara í Múlann, ha?

    En hvernær og hvar eiga menn að hittast?

    Ég mæli með sunnudeginum og kannski að hittast við klifurhúsið, hvað segja menn við því?

    kv. GHH

    in reply to: Aðstæður um helgina #50738
    2911596219
    Meðlimur

    Hvernig er það með þessa „reynslubolta – eða skrúfur“ í ísklifrinu …

    Finna menn ekki bara á sér hvert er bezt að fara (af gefinni reynslu). Annars er bara að keyra inn Hvalfjörðinn og kíkja á aðstæður.

    Olli, þú ert svolítið forskrúfaður í þessu … hvert er bezt að fara?

    Gummi mundu svo eftir hattinu þínum, hahahah ..!

    kv. GHH

    in reply to: Aðstæður um helgina #50734
    2911596219
    Meðlimur

    … nú líst mér á „BOXARANN“

    Endilega förum þá á sunnudaginn, er það möguleiki?

    Hvernig hafið þið það félagarnir, sá myndir af ykkur á … æiii þarna á fjallinu fyrir vestan, þarna í Borgafirði.

    kv. Gísli Hjálmar

    in reply to: Var að berast – notum hjálma #50701
    2911596219
    Meðlimur

    hahaha … algjörlega sammála Gummi ..!

    Þetta var nú meiri þvælan þarna í fyrra „hjálmalausir“ og vitlausir, en klifrið var alveg meiriháttar …

    Hey, komið þið ekki með á Þórisjölull, ha?

    in reply to: Var að berast – notum hjálma #50698
    2911596219
    Meðlimur

    … nema í topprope, hvað meinarðu?

    Svona til að styðja þessa spurningu mína þá get ég upplýst það að í sumar vorum við, ég og félagi minn, að klifra í Gígjöklli og festum í topprope.

    Það er engum blöðum um það að flétta að hefði ég ekki verið með hjálminn á höfðinu í klifrinu, þá væri ég ábyggilega ekki að skrifa þessa grein.

    Það sem skeði var einfaldlega það: að í miðju príli þá losnaði önnur ísöxin úr, og var það einmitt sú öxi sem ég var með allan þungan á, og skiptir það engum togum, að hún hreinlega dúndrast af miklu afli í höfuðið á mér, en þar var sem betur fer hjálmurinn …

    Svona til gamans, þá var ég töluvert lengi, eftirá, að spá í það hvernig það hefði farið ef ég hefði ekki verið með hjálminn – það hefði allavega ekki litið vel út, svo mikið er víst.

    … ég hef nefnilega gerst sekur um að klifra hjálmlaus – en aldrei aftur!

25 umræða - 1 til 25 (af 39)