8 related routes

Tungumál WI 2

Leið upp áberandi skoru við hliðina á F2 (Sjávarmál)

Hávamál WI 3

Leið númer F1 á mynd

Stuttur foss sem að bunkast vel suma vetur. Frábær upphitun, mjög stutt frá bílnum og brýtur upp gönguna að klettabeltinu fyrir ofan

FF: Óþekkt

Sjávarmál WI 2

Leið númer F2 á mynd

Stutt upphitunarleið alveg við bílastæðið. Aðeins léttari en Hávamál.

FF: Óþekkt

The Seventh Life of Cats M 4

Leið númer F3 á mynd.

Stutt en áhugaverð mixleið

FF: Matteo Meucci og Marco Porta, maí 2017. M 4, 20m

Mávamál WI 4

Leið númer F4 á mynd

Vatn lekur niður meginn klettaveggin og myndar stuttan en þokkalega brattann ísfoss

FF: Óþekkt

Þorskur á þurru landi M 4

Leið númer F5 á mynd.

Boltuð drytool eða þurrtólunarleið, boltarnir ná bara hálfa leið og svo er efrihlutinn á náttúrulegum tryggingum. Áhugaverður karakter í þessari leið, axafestur eru yfirleitt mjög góðar en fótfestur lélegar. Leiðin liggur í einskonar kverk á milli stuðla og því er hægt að stemma aðeins á stöku stað.

FF: Óþekkt

Ísaðar gellur M 6

Leið númer F6 á mynd.

Hálfboltuð þurrtólunarleið eins og Þorskur á þurru landi (F5). Öfugt við F5 er þessi leið með frekar slökum axarfestum en góðum fótfestum á móti. Erfiðleikinn kemur út á að vera um það bil sá sami

FF: Óþekkt

Messaguttinn M 6

Leið númer F7 á mynd.

Boltað toppakkeri ofan við þrönga krefjandi sprungu í lítilli kverk sem eitthvað hefur verið klifruð í ofanvaði. Leiðin byrjar í yfirhangandi klauf. Þessa línu má bolta og rauðpunkta ef vilji er til að munda rokkinn. Erfiðleiki kringum M6-7.

Smá líkur eru á að þetta sé leið eftir Jón Heiðar Andrésson og heiti Skitið í buxurnar. Jón Heiðar man hins vegar ekki eftir þeirri frumferð.

FF Óþekkt

Skildu eftir svar