Re: svar: Umræðusíðan

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Umræðusíðan Re: svar: Umræðusíðan

#48141
0405614209
Participant

Kvöldið.

Sammála að það er stórfínt að fá umræðurnar í gang aftur.

Ég hef ekki glóruhugmynd um það hvernig aðstæður eru í Þórisjökli en var að spá í að fara í könnunarleiðangur í Kerlingarfjöll bráðlega. Það er búið að vera viðloðandi frost á miðhálendinu í nokkurn tíma og ég veit að þarna eru stór gil sem eiga að halda frosti og ís.

Ef einhver er til í 2ja daga könnunarleiðangur í Kerlingarfjöll þá væri gaman að heyra í viðkomandi.