Home › Umræður › Umræður › Almennt › Hvað er að gerast ? › Re: svar: Hvað er að gerast ?
27. mars, 2008 at 21:37
#52607
2006753399
Meðlimur
Syðri tindur Hrútfjallstinda lá í valnum eftir páskana, þrælfín ferð upp klassísku-leiðina stóragil á eystra Hrútfjalli. Fór við annan mann með Guðjóni Erni og hittum hressa reykjavíkur skátana á leiðinni.
Fjallið er í góðum „alpa“ aðstæðum, mjög hart færi og hvergi má renna á rassgatið nema þá til að slá hraðamet niður á Svínafellsjökul. Þurftum því að tryggja víða þar sem þess er yfirleitt óþarft með hlaupandi tryggingum.
Fórum uppfyrir vestari tindinn og niður á hafrafellið þaðan að Svínafellsjökli, 16 tímar frá tjaldi með canyoning-skemmtiferð í endann.
http://picasaweb.google.com/robert.teiknari/HrutfjallstindarPaskar2008?authkey=Un5MqMeQk4Q