Miðhálendi

Miðhálendið eins og það er skráð hjá Ísalp skiptist í minni svæði sem hefur verið klifrað á.

Eins og stendur afmarkast skráningasvæðið við Laugavatn og Langjökul til vesturs, Hofsjökul til norðurs, Vatnajökul til austurs og Tindfjöll til suðurs.

Hvítárgljúfur
Hvítá rennur úr Hvítárvatni, sem er í raun lón úr Langjökli. Hvítá rennur frá Langjökli, niður Gullfoss og sameinast Soginu rétt fyrir ofan Selfoss. Eftir að Sogið úr Þingvallavatni blandast við Hvítá, þá er útkoman kölluð Ölfusá. Ölfusá rennur í gegn um Selfoss og þaðan út í sjó.

Eins og er eru ekki margar skráðar leiðir í Hvítárgljúfri, en þar eru margar ófarnar línur. Til dæmis hefur enginn klifrað Gullfoss, þ.e. úðann frá Gullfossi.

Eitthvað er um stakar leiðir á svæðinu nálægt gljúfrinu, uppi við suður hluta Langjökuls og í Biskupstungum, við látum þær flokkast með undir þetta svæði.

Háifoss
Háifoss er foss í Fossárdal, innst í Þjórsárdal, er talinn þriðji hæsti foss landsins, 122 metrar á hæð. Við hlið hans er fossinn Granni .

Þar eru fjórar leiðir.

Sigöldugljúfur

Sigöldugljúfur var að megninu til undir Tungná, þangað til Sigöldustöð var tekin í gagnið 1978 og lækkaði þar með vatnsmagnið sem flæðir í gegnum gilið. Nálægt Hrauneyjarlóni er Sigöldufoss og neðar í gljúfrinu áleiðis að Krókslóni eru smærri fossar, kallaðir Lekafossar eða Tungnárfossar.

Kerlingafjöll
Kerlingarfjöll eru fjallgarður á hálendi Íslands, nálægt Kili og mitt á milli Langjökuls og Hofsjökuls. Kerlingafjöll eru nefnd eftir dranga við Kerlingartind sem heitir Kerling.

Á Kerlingafjallasvæðinu er aðeins ein klifurleið þekkt, en það er á drangan Kerlingu.

Kort

Skildu eftir svar