Gummi St

Svör sem þú hefur skrifað

25 umræða - 76 til 100 (af 252)
  • Höfundur
    Svör
  • in reply to: Ísfestival 2011 #56287
    Gummi St
    Participant
    in reply to: Peter Habeler á Íslandi #56243
    Gummi St
    Participant

    Ótrúlega flottur fyrirlestur hjá Peter í gærkvöldi og frábær karakter sem skemmtilegt var að hlusta á.

    Hvernig fannst ykkur?

    in reply to: Klifur um helgina #56220
    Gummi St
    Participant

    Það eru nokkrar myndir frá helginni inná http://www.climbing.is fyrir áhugasama úr Single malt on the rocks og Óríon sleepoverinu um helgina.

    in reply to: Klifur um helgina #56193
    Gummi St
    Participant

    Við sváfum til 11 í gær og fórum svo í óríon eftir spennandi upplýsingar á isalp.is en snerum við í testofunni þegar skollið var á svartamyrkur og slydda. Frábært klifur annars og sáum við greinilega förin eftir Dóra og félaga frá deginum áður.

    in reply to: Æfingaraðstæður í Rvk til íslifurs #56175
    Gummi St
    Participant

    Þess má geta að ég fór í kvöld eftir vinnu á Torgið og þar eru fínar aðstæður, bæði þykkur og þunnur mjúkís/jólaís í boði og hægt að tryggja í ís ofaná brún.

    in reply to: Klifur í Brynjudal #56146
    Gummi St
    Participant

    Neibb ekkert online, Gummi T. var aðallega að mynda þó ég stælist aðeins í það… Sé til hvort ég set eitthvað inn, læt þá vita..

    -GFJ

    in reply to: Turninn í grafarvogi #55918
    Gummi St
    Participant

    Það er frosið í lögninni, því miður. Kíkti þarna við á föstudag og reyndi að koma þessu á.

    in reply to: Kuldaklifur á þrettándanum #56095
    Gummi St
    Participant

    ég býst við að þetta lagist í vikunni, er hálf flekkóttur og bólginn og skilst að þetta sé eins og 1. stigs bruni

    -GFJ

    in reply to: [ÓE] Fjallaskíðaskór #56092
    Gummi St
    Participant

    Takk fyrir þetta Maggi, þetta eru miklar pælingar, það erfitt að finna skó sem passa í búðunum sem eru að halda lagerstöðu í lágmarki fyrir utan hvað þetta er orðið svakalega dýrt… ég meina þetta eru skór en ekki bíll :)

    mbkv,
    Gummi St.

    in reply to: Turninn í grafarvogi #56089
    Gummi St
    Participant

    Það tekur yfirleitt um viku að byggjast upp, ekki er sniðugt að klifra þarna í of þunnum ís þar sem það fer ekki vel með axarblöð að þeim sé dúndrað í járngrindina… né vel með grindina og hænsnanetið sem bindur ísinn.

    Ég bað um að það yrði skrúfað frá á mánudaginn, hef ekki farið í vikunni til að kanna aðstæður en það hefur verið reynslan að þetta taki ca. viku.

    Þetta er snilldar æfing fyrir klifrið og flott að kíkja þarna eftir vinnu þegar aðstæður eru klárar!

    -GFJ

    in reply to: Ísaðstæður yfir hátíðarnar #56035
    Gummi St
    Participant

    snilld, það væri gaman að fá smá klifur áður en árinu lýkur… Það er samt svo hlýtt orðið að það er spurning hvort þetta verði nýja trendið: http://forums.climbing.com/photopost/showphoto.php/photo/6799

    in reply to: Til hvers isalp.is? #56027
    Gummi St
    Participant

    Fínasta og hin þarfasta umræða sem hér er komin upp.

    Til hvers erum við að halda úti isalp.is? Þetta er spurning sem okkur er hollt að velta aðeins upp.
    Ég kíki á isalp.is næstum daglega þegar ég er við tölvu og það sem ég býst við og finnst skemmtilegast að sjá eru fréttir af ferðum og aðstæðum. Myndir sem fólk hefur verið að taka og jafnvel video. Fyrir utan svo auðvitað dagskrána og fréttirnar.

    Hér Rúnar strax komnar hugmyndir um úrbætur. Eru einhverjir með fleiri hugmyndir sem gætu nýst við þetta? Það var minnst á facebook tengingu, ég væri jafnvel til í að sjá eitthvað vægt eins og „læk“ takka eða svo fyrir þá sem eru að fésast hvað mest.

    Í langan tíma höfum við á climbing.is verið að þróa ísklifur-leiðarkerfi sem fer nú brátt að vera notkunarhæft þegar ég er búinn að forrita innskráningarformið sæmilega. Á þessu byrjuðum við fyrir einu og hálfu ári en kannski ekki sett nógu mikin þunga á þróunina til að klára hana. Þetta er auðvitað eitthvað sem við viljum að nýtist ísalpfélögum og væri bara sjalfsagt að tengja þetta hérna inná vefinn þegar það er klárt. Fyrir þá sem ekki hafa séð þetta þá geta þeir kíkt á:
    http://www.climbing.is/gspot2.php?page=climb&svaedi=SV&spot=Buahamrar
    Þetta er Búahamrasvæðið, setti nokkrar leiðir þar inn til prufu, einnig er hægt að skoða Kjós, Bíldudal og Köldukinn.. þar er eitthvað efni komið inn.

    Lengi lifi isalp.is!

    in reply to: Klifur-landakort #55990
    Gummi St
    Participant

    Við höfum verið að gera tilraunir með svona ísklifurkort… það er eitthvað á http://www.climbing.is/gspot2.php?page=climb&svaedi=SV

    in reply to: Upplýsingar fyrir eigendur Nomic #55980
    Gummi St
    Participant

    Góður punktur, Addi braut nú efra gripið á gömlu Nomic sinni sem er ekki stillanlegt heldur fast.

    in reply to: Aðstæður. Taka 2 #55937
    Gummi St
    Participant

    Fórum að Háafoss í dag, þar er allt hrunið nema Þráin sem hélst uppi á lyginni einni saman meðan vatnið fossaðist bæði utaná og undir leiðinni sem vonandi stendur af sér hitann og frýs aftur föst. Gerðum okkur þess í stað glaðan dag körfubolta í sundlaug í Hveragerði

    in reply to: Aðstæður. Taka 2 #55921
    Gummi St
    Participant

    Við Addi fórum í Háafoss gilið í dag og þar eru fínar aðstæður og góðar drunur með tilheyrandi gusugangi í Granna af og til. Fínt færi eftir veginum, nánast snjólaust, bara föl.

    -GFJ

    in reply to: Epík í Þilinu #55784
    Gummi St
    Participant

    Við fórum nokkrir í Glymsgil í dag, gengum þurrum fótum alveg inn að glym sjálfum. Hvalirnir eru alls ekki tilbúnir en það er ís í skorunni við Glym og fínt í Krók. Erum svo að taka stöðuna um hvað hægt er að gera á morgun.

    in reply to: Spori og co. #55776
    Gummi St
    Participant

    jæja, það þorir enginn að segja neitt þannig að gangi þér bara vel í Spora á morgun Ívar :)

    kveðja,
    Tillitsamur

    in reply to: Spori og co. #55774
    Gummi St
    Participant

    Sæll Ívar,

    Því miður er búið að bæði panta og borga fyrir Spora á laugardag, en nokkrar leiðir eru eftir í Múlanum

    kveðja,
    Stjórnin

    in reply to: Haustkveðja að sunnan #55591
    Gummi St
    Participant

    Þessi staður er frábær, fyrir þá sem þekkja til erum við búnir að klifra aðeins á Ahri, tókum Thetis 6b sem er ein mesta snilldar leið hérna og tókum þar líka nokkrar auðveldari.

    Á Kasteli tókum við Pillar of the sea 6a+ eftir léttari upphitun.

    Í dag vorum við í Symblegades rocks sem er frábært svæði, tókum Phineas 5c, Drama 6a og eina aðra 6b sem við rétt slefuðum upp. Enduðum svo í þrem fínum leiðum á sama stað gráðaðar frá 5b – 6a.

    Erum búnir að komast að þeirri vísindalegu niðurstöðu að okkar limit sé svoldið stökkið frá 6a í 6b hérna en ætlum að reyna að push’a okkur uppí 6c áður en við flýjum burt…

    Á morgun er planið að fara í Odyssey og Grande Grotta og reyna við fleiri gamla fjendur sem stoppuðu okkur af hérna 2007.

    in reply to: Lofoten 2010 #55545
    Gummi St
    Participant

    Snilld, góða ferð strákar og takið vel á því!

    in reply to: Slovak direct á Denali #55544
    Gummi St
    Participant

    Jebb þetta er snilld, takk fyrir að deila þessu !

    in reply to: Kirkjufell um helgina #55533
    Gummi St
    Participant

    já, endilega meldið ykkur inn,
    sunnudagurinn er klárlega betri!
    Segjum brottför uppúr kl. 8 á sunnudagsmorgun frá Select uppá höfða ef einhverjir ætla með

    kv. Gummi St.

    in reply to: Alpaævintýri Ágústs og félaga #55518
    Gummi St
    Participant

    Við Maggi komum aftur til landsins í nótt, en Jón og Ágúst eru komnir í frí á Ítalíu.

    Við fórum Monte Rosa traversuna frá Breithorn til Margherita hut. Á fimmta degi (og síðasta í traversunni) fór að snjóa svo við héldum niður frá Margherita án þess að taka Dufourspitze sem er hæsti tindur Monte Rosa og næst hæsti á eftir Mt. Blanc. Og eftir orkusöfnun í Zermatt var ákveðið að sleppa Matterhorninu þar sem það var ennþá hvítt eftir ofankomuna.

    Eftir þetta fórum við suður til Ítalíu í klettaklifur við Como vatn. Héldum til í þorpi sem heitir Lecco og þarna eru flottir klettar útum allt, prufuðum mesta slab klifur sem ég hef prufað á æfinni og alveg uppí vel slúttandi deep water solo. Frábær ferð !

    Er að taka inn myndirnar, ég þvældist með rúm 3 kg af ljósmyndabúnaði alla ferðina og vona því að eitthvað verði nothæft úr safninu.

    smá teaser:
    http://www.flickr.com/photos/gummistori/4841123032/sizes/l/in/photostream/

    kv. Gummi St.

    in reply to: Borea adventures, fyrsti túr 2010 video #55419
    Gummi St
    Participant

    Geggjað video, þetta hefur verið frábær ferð !

25 umræða - 76 til 100 (af 252)