Gummi St

Svör sem þú hefur skrifað

25 umræða - 226 til 250 (af 252)
  • Höfundur
    Svör
  • in reply to: Grafarfoss #50768
    Gummi St
    Participant

    við förum á morgun eitthvað… múli, flugugil, eða grafarfoss..?? kemur bara í ljós láttu heyra í þér ef þú vilt kíkja

    in reply to: Grafarfoss #50764
    Gummi St
    Participant

    Hvar kemur maður að Grafarfossi? og hvernig er færðin þangað? hvernig bíl þarf maður til að komast þangað..

    kv. Gummi St.

    in reply to: Hvernig fer? #50756
    Gummi St
    Participant

    Þetta var bara nokkuð skemmtilegur dagur, þrátt fyrir smá ófærð… við fórum í einhverja smá leið í Úlfarsfelli (já þið lásuð rétt.. hehe) og komum svo við í Ráðhúsinu á leiðinni heim…

    php.internet.is/gummistori ef þið viljið sjá/lesa meira..

    kv. Gummi St.

    in reply to: Aðstæður um helgina #50748
    Gummi St
    Participant

    Jæja…
    með sunnudaginn,

    Er ekki bara best að hittast niðrí Klifurhúsi kl. 8 ?? hvað segið þið um það, er það ekki bara fínn tími…?

    Viðar, þú verður að koma með og vinna upp stoltið aftur, ég efast ekkert um að þú náir því! Gott að heyra samt að þú hefur komið heill útúr hremmingunum… ég komst ekki um síðustu helgi útaf veikindum..

    kveðja,
    Gummi Stóri

    in reply to: Aðstæður um helgina #50737
    Gummi St
    Participant

    Þetta verður glæsilegt, spurning hvert er best að fara… það eru auðvitað þessir helstu staðir…

    Múlafjall, Eilífsdalur, Glymsgil og Flugugil hérna í nágrenninu til að nefna eitthvað, það væri fínt ef einhverjir myndu senda komment á hvaða stað þeir eru heitastir fyrir…

    Best væri líka að fara á þannig stað að menn séu helst ekki mjög langt frá hvor öðrum.. halda pínu í hópandann, en þó auðvitað ekki þannig að menn séu að klifra fyrir ofan/neðan hvorn annan… hehe

    kv. Gummi St.

    in reply to: Aðstæður um helgina #50733
    Gummi St
    Participant

    Hvernig væri að fara hópferð um helgina, ef vel viðrar ?

    er einhver heitur fyrir því, hittast einhverjir saman og byrja veturinn…

    það spáir frosti út vikuna, þannig að helgin hlýtur að vera kleif…

    kv. Gummi Stóri

    in reply to: Hvað er að frétta af ísklifuraðstæðum #50711
    Gummi St
    Participant

    það eru líka myndir af trénu í Þórisjökli síðan á lau. síðasta á :
    http://php.internet.is/gummistori/lesa_frett.php?id=71
    ef þið viljið sjá það

    GF

    in reply to: Var að berast – notum hjálma #50700
    Gummi St
    Participant

    já, Gísli.. við pössum okkur á þessu í framtíðinni !! ekkert Eilífsdals-skúnkerí aftur…

    ég myndi örugglega frekar sleppa línunni en hjálminum núna þegar ég er búinn að vera aktívur í þessu í svoldinn tíma og veit hvað getur gerst… hehe

    kv. Gummi St.

    in reply to: Nú er frost á fróni! #50695
    Gummi St
    Participant

    hvað segiði, er einhver búinn að sjá einhverjar aðstæður ?

    kv. Gummi St.

    in reply to: ársrit #50679
    Gummi St
    Participant

    Sæll.

    Það eru til svona pakkar með þessu öllusaman, ég keypti einn á fundinum um daginn.

    Best er að hafa samband við Stefán gjaldkera, hann er með póstfangið gjaldkeri@isalp.is hann allavega afgreiddi þetta fyrir mig!

    kv. Gummi St.

    in reply to: Stuð í Stardalnum? #50609
    Gummi St
    Participant

    Sælir og takk fyrir ábendingarnar..

    Ég vill kannski byrja á að taka það fram að ég var sjálfur ekki í þessari tilteknu ferð, þar sem ég var staddur í Kerlingafjöllum og get því ekki svarað fyrir þetta tiltekna atvik.

    En þetta er auðvitað dáldið crazy, og ég efast stórlega um að þetta hafi verið svona fyndið eins og greinin sem Addi skrifaði gaf til kynna, en hvað veit maður..
    Við erum búnir að vera að þræða Valshamarinn dáldið undanfarið, bæði með dóti og án. Þetta togaði eitthvað í þá pilta að fara þangað í dótaklifur og þetta var útkoman.

    Ég veit nú til þess að umræddur aðili keypti sér leiðarvísi, en ég veit hinsvegar ekkert um hvort hann hafi verið notaður eða hvað, en allavega má auðvitað draga lærdóm af þessu og ein af meginástæðunum að ég heimilaði birtingu á þessu var að fá svona comment og líka kannski svoldið til að aðrir sem eru í þessu fái að vita að þetta er ekki hættulaust.. en alls ekki til að meina að einhver sé „stoltur“ yfir þessu eða að þetta hafi verið „skemmtileg lífsreynsla“ eða eitthvað í þá áttina!

    Ekki hika við að spyrja ef það er eitthvað, ég bendi þeim á ykkar comment sem ég er mjög þakklátur fyrir að hafa fengið!

    Ég held nú reyndar líka að margir eigi sambærilegar reynslur sem þeir liggi mjög fast á, en það er örugglega mjög viðkvæmt umræðuefni.

    bestu kveðjur,
    Gummi St.

    in reply to: Kerlingafjöll #50607
    Gummi St
    Participant

    Þakka þér fyrir það,

    Eins má alveg minnast á það að í skálanum er fyrirmyndar þjónusta og gott starfsfólk..! Bara muna að panta gistingu..

    takk fyrir mig,
    Gummi St.

    in reply to: Glerárdalshringurinn! #50574
    Gummi St
    Participant

    Hefði verið gaman að koma, en ég flýg til Sviss 23. júlí þannig að ég kemst ekki.. en er auðvitað ekki að fara þangað bara til að hanga innandyra!, heldur að ganga og klifra svoldið.

    Ég segi bara góða ferð við ykkur sem ætlið að fara hringinn

    kv. Gummi St.

    in reply to: Kálfafellsdalur #50552
    Gummi St
    Participant

    Sæll !

    já við erum að spá í að fara á eggið um helgina ef veðurspáin svíkur ekki.. vorum að skoða leiðavalið, þessvegna var ég að athuga með færðina inní dalinn.

    En takk fyrir ábendinguna með grjótið, verðum með öryggið á toppstykkinu…

    mbkv. Gummi St.

    in reply to: Nýjar forsíðumyndir #50501
    Gummi St
    Participant

    Flottar myndir hjá þér Ágúst!

    Gaman að sjá svona myndashow… það væri gaman ef fleiri myndu gera það sama…
    hvað eiga þessar myndir að vera? 800×294
    ég get líka alveg hent einhverju saman ef þið hafið áhuga

    mbkv, Gummi St.

    in reply to: Til sölu #50483
    Gummi St
    Participant

    Sæll!

    Já þetta mót var helvíti skemmtilegt, ég vann minn flokk, hvorki bólginn né marinn.. hehe en já verð í bandi ef við förum um helgina, það kemur í ljós… mikið að gera í vinnunni, eigum að skila verki um helgina

    kveðja,
    Gummi Stóri

    in reply to: Til sölu #50481
    Gummi St
    Participant

    glæsilegt, flott hjá ykkur…

    Við fórum þarna um síðustu helgi, en þá fórum við í lítið gil sem er til hægri þegar maður gengur inn Eilífsdalinn, það var helvíti magnað, það eru komnar inn einhverjar myndir á síðuna okkar, http://php.internet.is/gummistori

    við fórum ekkert núna um helgina, því ég var að keppa á íslandsmótinu í gær.

    en var einhver ís eftir að ráði.. helduru að næsta helgi verði fær?

    bestu kveðjur,
    Gummi Stóri

    in reply to: Til sölu #50479
    Gummi St
    Participant

    hva… er verið að endurnýja fyrir sumarið..?

    in reply to: Hrútfellstindar – tímasetning #50460
    Gummi St
    Participant

    hehe.. sæll.. nei ég er nú ekki beint eurovisjón gæjinn… en kærastan er að plana partý þessa helgi og svo er ég að fara að boxa þarna…

    in reply to: Playstation um páskana…. #50458
    Gummi St
    Participant

    Það er bara vinna og hvíld núna um páskana, enda íslandsmeisatarmót um næstu helgi…

    Gummi St.

    in reply to: Nýjustu tölur frá Telemarkhátíðinni #50401
    Gummi St
    Participant

    Vá, rosa stemming fyrir þessu! Góða skemmtun allir á hátíðinni.. ég ligg bara fyrir hérna heima með einhverja helvítis pest og kemst ekki neitt…

    in reply to: Dry-tool mót á fimmtudaginn hjá HSSR #50240
    Gummi St
    Participant

    Það væri gaman að kíkja á þetta já, sérstaklega þar sem maður sér því miður ekki fram á að komast norður á festivalið í ár…

    hvenær á fimmtudeginum er þetta?

    in reply to: ísinn #50177
    Gummi St
    Participant

    Tilvitnun:
    Róbert Halldórsson skrifar:
    Hvernig er það…fór enginn í Múlafjall eða Glymsgil ?
    Robbi

    Ég fór í múlafjall á sunnudeginum… það eru myndir þaðan á http://php.internet.is/gummistori
    fínn dagur og þónokkrar færar leiðir…

    kv. Gummi St.

    in reply to: góður jökull #50091
    Gummi St
    Participant

    sæll… það eru tiltöllega nýlegar myndir af báðum jöklunum á síðunni minni…

    bæði í „Mínar síður“ og einnig fleiri myndir á síðunni minni: http://www.internet.is/gummistori

    vona að þetta geti hjálpað þér eitthvað við þetta…

    kv. Gummi Stóri

    in reply to: Sýnum aðgát #50049
    Gummi St
    Participant

    Sæl öll!

    Já, það er gaman að upp sé komin umræða um þetta og að fá comment á aðfarir… og þetta er alveg rétt það sem Stefán er að skrifa, það verður að brýna það fyrir mönnum að fara varlega, og ég er þar ekkert undanskilinn!

    Umræða um þetta getur verið góð til að minna menn á að aldrei er of varlega farið og líka „auglýsing“ þar sem þetta kann að vekja áhuga manna..

    Það er mjög gaman að setja myndir inn á vefinn þegar maður sér að einhverjir eru að njóta þess að skoða þær, ásamt því að ég fagna því að fá svona comment á þessa hluti!

    mbkv.
    Gummi Stóri

25 umræða - 226 til 250 (af 252)