Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
Halldór FannarParticipantFór í leiðangur um Vesturland dagana 6. til 12. janúar með Jonathan Lander og Ignacio Livianos. Það var klifrað alla daga og aðstæður mjög góðar. Vissulega hafði frosið snögglega og enginn snjór þannig að leiðir sem myndast þar sem berg er blautt, flæði er lítið eða snjóbráð voru alls ekki inni. En leiðir þar sem kröftug fallvötn flæða voru þvílíkt inni. Við fórum því töluvert af fyrstu ferðum. Ég mun skrá það allt saman inn á næstu dögum.
6. janúar: Ætluðum í Hvarfsgilsfoss en hann var þunnur og efri spannir litu ekki vel út. Við höfðum hugsað okkur skemmtilegt klifur upp á topp og þetta var ekki þannig, við héldum því áfram í Villingadal. Fossarnir þar litu ekkert sérlega vel út (ennþá að bunkast upp) og ég stakk því upp á við skoðuðum fossinn fallega, Kerlingarfoss, neðar í Hestadalsánni, sem ég hef aldrei séð frosinn. Hann var í frábærum aðstæðum og skemmtum við okkur vel (22 m, WI3). Fossinn er við veginn en sést ekki frá vegi. Vonandi verður hann vinsæll staður fyrir fólk sem kýs crag-stemmningu og roadside approach.
7. janúar: Klifruðum nýja leið í Svínadal, sem við skírðum Svínarí (65 m, WI3). Fórum svo helminginn af Drífanda í Svínadal, en efri spönnin var of blaut, og hluti hennar hrundi, þannig að við ákváðum að koma aftur eftir nokkra daga og þá um morgun þegar það væri kaldara.
8. janúar: Klifruðum nýja fallega leið í gili á Skarðsströnd, sem við skírðum Jólabónus (40 m, WI4). Fórum svo í skoðunarferð á Jeppanum með drónana. Fundum stóran flottan foss innst í fallegu gili og fundum svo út úr því eftir ýmsar tilraunir hvernig við gætum komist að gilinu. Ákváðum að fara í hann um helgina, þar sem það hafði hitnað eilítið og best að leyfa þessu ferlíki að kæla sig.
9. janúar: Klifruðum Single Malt on the Rocks (WI4+) í bestu aðstæðum sem ég hef séð í Völsungagili. Allar spannir voru inni, og allt vel frosið. Smá bleyta í nokkrum höftum en allt vel klifranlegt og tryggjanlegt. Einfórum fjórar fyrstu spannirnar en klifruðum svo hinar fjórar á tryggingum. Algjörlega stórkostlegur dagur. Veðrið lék við okkur og óskiljanlegt að fleiri klifrara hafi ekki látið sjá sig.
10. janúar: Fórum núna í fossinn stóra á Skarðsströnd. Hann reyndist í raun fallegri og tilkomumeiri en drónamyndirnar höfðu sýnt. Þetta var ógleymanlegur dagur. Einfórum minni höft eftir því sem við þræddum okkur inn mikilfenglegt gilið, innarlega í Búðardal (já, hinn eiginlegi Búðardalur er á Skarðsströnd). Í lok leiðarinnar er fyrst 30m WI3 haft (síðustu hreyfingar eru kannski nær WI4, en við getum sett WI3+ á þetta). Síðan er beygt fyrir horn og þá blasir við aðalspönninn, fossinn breiði sem er yfir 50 metrar og má klifra sem WI3+. Þessi leið fékk nafnið Fáfnir. Enda var þetta eins og að finna dreka á gulli, í botni gilsins.
11. janúar: Fórum snemma af stað úr bækistöðvum okkar í Búðardal (kaupstaðnum, ekki hinum eiginlega dal sem við höfðum klifrað i daginn áður) til að nýta okkur frostið, sem var þá -8c. Nú var verkefnið að klifra Drífanda alla leið upp á topp. Aðkoman að fyrsta haftinu er undir 10 mínútum. Það er frábært flennistórt bílastæði við fossinn, enda vinsælt að skoða hann. Við komum að fyrsta haftinu þegar það var ennþá myrkur. Það var farið í miklu snarhasti og næsta haft líka, enda hafði ég klifrað þetta nokkrum dögum áður. Þetta er þægileg WI3 og ef maður er ekki að tryggja mikið þá kostar þetta ekki nema 50 eða 55m af línu. Þá var komið að aðalhaftinu og klifruðum við það bæði sem WI3 og sem WI4. Við komumst að því að 60m lína passaði ákkúrat. Þessi leið fékk nafnið „Perlur fyrir svín“ (WI3) enda í Svínadal. Sennilega ólíklegasta WI3 sem ég hef nokkurn tímann barið augum. Við vorum einmitt alltaf að vona að það væri hægt að klifra hana sem WI3. Ég held því fram að hver sá WI3 klifrari sem fer þessa leið mun taka miklu ástfostri við ísklifur, ef viðkomandi hefur ekki gert það nú þegar.
12. janúar: Nú var mál að klifra Pilsner (WI4+). Leiðin hafði kallað á okkur allan daginn sem við vorum að klifra Single Malt. Þetta er svakalega flott leið en janframt lítið skjöluð á vefnum hérna. Ég mun bæta úr því.
Eftir að hafa teygað Pilsnerinn þá keyrðum við aftur í bæinn. Þetta voru sjö daga af sælu. Frábært ísklifur í því besta vetrarveðri sem ég hef nokkurn tímann upplifað á þessu skeri okkar.
-
This reply was modified 1 week, 6 days síðan by
Halldór Fannar.
Halldór FannarParticipantFór með Ignacio og Jonathan að klifra Hvarfsgilsfoss í dag. Hann var heldur þunnur þannig að við fórum í Villingadal í staðinn. En við fórum ekki inn dalinn heldur klifruðum fossinn í Hestadalsánni sem var vel frosinn. Þetta var draumur sem loksins rættist. Mun skrá leiðina hér fljótlega. Frábær dagur.
Halldór FannarParticipantVið Ágúst fórum í Villingadal sl laugardag. Þar var var gott að klifra og rákumst við á tvö önnur teymi þegar leið á daginn. Við vorum mættir við sólarupprás enda sólgnir í góðan ís. Klifruðum Hades í góðum aðstæðum og tókum efstu spannirnar líka sem voru frábærar. Þetta urðu 240 metrar af ánægulegu ísklifri, reyndar bætti Ágúst 50 metrum við hjá sér þar sem línan fraus í v-þræðingunni á þriðja síginu og Ágúst fór upp á prússik til að greiða úr því. Það var lærdómsríkt.
Halldór FannarParticipantEkki svo vitað sé til. Það er amk engin skráning um það hér. Endilega að klifra hann ef þú finnur hann í aðstæðum og skrá það hér.
Halldór FannarParticipantLengi lumar Hvalfjörðurinn á meiri skemmtun. Við Ágúst fórum á nýtt svæði við Hvalfjarðareyri 10. desember. Við uppgötvuðum þennan ís í lok síðasta tímabils og höfðum einfaldlega ekki tíma til að fara í þetta áður en vorið kom. En um helgina gafst tækifærið og mikið var þetta gaman.
Ég er búinn að bæta þessu við á Hvalfjarðarsíðuna. Eins og sést þá er annar sektorinn ófarinn, þ.e. Sigurjón. Vonumst við til að aðrir ísalparar geri sér ferð – þetta er frábært æfingasvæði í afar kósí umhverfi. Reyndar sýndist okkur að Gunnar Már hefði farið í gær og því fögnum við innilega.
Halldór FannarParticipantVið Bergur fórum í Villingadal í gær. Bæði Kerberos og Hades voru í góðum gír. Við tókum Kerberos þar sem annað teymi var á Hades. Það var lítill snjór í gilinu og klifruðum við því fyrst eina aðkomu spönn til að komast að meginfossinum. Síðan tókum við allan fossinn í einni 60m langri spönn sem var frábær. Til þess að forðast vatn sem draup báðum megin í fossinum þá var best að klifra hann upp miðjan sem gerði klifrið aðeins meira krefjandi. Það var 7 stiga frost og áin við veginn vel frosin en áin upp í gilið var allt annað en frosin. Það vakti furðu okkar þar sem hún er vatnsminni. Sennilega rennur heitara vatn í þeirri á. Sömu sögu er að segja um fossana. Það seytlaði ennþá töluvert vatn í þeim og þeir eiga eftir að vaxa umtalsvert á næstu vikum ef fram heldur sem horfir. Það var nægur ís fyrir tryggingar og margar skiluðu þurrum ískjarna.
V-þræðing frá toppnum var nakinn þar sem ísinn þar var þurr. Vegna frosts og seytlandi vatns þá myndaðist nokkur brynja utan á línunum og lentum við í því að Sterling Hollowblock fraus fastur utan um línurnar á síginu (tvær 8.1mm Beal Ice Line). Eina lausnin var að skrúfa sig inn, fjarlæga autuoblock uppsetninguna og síga án þess. Það er í fyrsta sinn á löngum ferli sem undirritaður upplifir slíkt. Eftir að hafa Googlað aðeins þá er þetta þekkt vandamál með Hollowblock í ísklifri og algeng lausn er að sleppa þessari uppsetningu við svona aðstæður. Önnur lausn er að nota grennri spotta fyrir autoblock eða prussik.
Attachments:
Halldór FannarParticipantTakk Sissi! Gaman að heyra þetta. Ristjórnarstefnan hjá okkur var að sýna þá breidd sem við erum með innan ÍSALP en reyna janframt að birta áhugaverðar greinar, þ.e.a.s. góðar sögur sem innihalda mikilvægan boðskap. Þannig náum við vonandi til fleiri lesenda.
Þar sem ég er með talsveraða fullkomnunaráráttu þá fannst mér nokkrar myndir prentast óþarflega dökkar þó ég hefði tekið rennsli yfir þær allar og lýst þó nokkrar, þar sem ég bjóst við því að þær mundu dökkna eilítið í prentun. Mér finnst líka að það sé hægt að þétta textann í næsta ársriti, núna þegar brotið er orðið stærra. Mér fannst textinn orðinn of smár í fyrri ritum, sérstaklega eftir að sjóninni fór að hraka! Nú fannst mér við fara kannski helst til langt í hina áttina með þetta.
-
This reply was modified 2 years, 3 months síðan by
Halldór Fannar.
Halldór FannarParticipantFór í dag í vestur Esju með Jon Lander, 55 Norður nánar tiltekið. Klifruðum „orginalinn“ eins og hann er kallaður hér. Þetta var svolítið blautt á köflum en okkur tókst að þræða framhjá því að mestu hluta. Ég tók nokkur höft sem voru kertuð og það hélt allt saman (eftir svolitla hreinsun). Læt fylgja með mynd af aðstæðum – ég sé fyrir mér að þetta verði spikfeitt í lok desember ef frostið heldur áfram.
Við sigum svo niður úr akkerinu í Óliver loðflís eins og mælt er með. Ég læt fylgja með mynd af akkerinu, það tók mig svolítinn tíma að finna það. Spurning um að bæta þessu við 55 Norður sectorinn. Það var engin keðja, hringur eða linkur á akkerinu en þar var þó læst karabína sem við baktryggðum við fyrsta sig. Ég ætla að kaupa „quicklinks“ næst þegar ég er ytra og hafa þá bara með mér til að bæta úr svona uppsetningu þegar ég rekst á hana – er það ekki bara sniðugt? Reyndar framleiða Metolius sérstaka ‘rap hangar’ týpu sem má setja reipi beint í en þessir voru frá Petzl sem notaðir voru í Óliver loðflís þannig að það var ekki málið. Ég er reyndar ekki viss um að ‘rap hangars’ séu sniðugir því að fólk þarf að geta þekkt þá frá öðrum til að vita að það sé í lagi að setja reipið beint í þá.
Attachments:
Halldór FannarParticipantEinmitt, við Ágúst klifruðum fossinn á sama tíma og Freyr mætti með öflugt fylgdarlið. Freyr fær sérstakar þakkir fyrir að klifra upp með bakpokann minn – við höfðum upprunalega ekki ætlað okkur að klifra upp allan fossinn en hann var bara svo skemmtilegur að við urðum að klára hann. Læt fylgja með mynd af fossinum frá þessum frábæra fimmtudegi:
Attachments:
Halldór FannarParticipantFór í göngutúr upp að Grafarfossi í dag. Hafði tekið eftir því að leiðarlýsing var frekar einföld hérna á vefnum hjá okkur og það vantaði góða mynd af fossinum. Ekki get ég sagt að hann hafi skartað sínu fegursta fyrir myndatöku. Fossinn er þunnur, víða bunar vatn undir þunnri skel. Svo er hann líka svo mjósleginn greyið. Gangan að fossinum tók 30 mínútur, en ekki 10 mínútur eins og segir á vefnum hjá okkur. Ég lagði hjá bænum Kistufelli, en ekki Gröf eins og stendur á vefnum. Kistufell er næsti bær við fossinn. Það mætti líka koma fram að Grafarfoss er ekki í Grafará, heldur í einum að lækjunum sem fellur í Grafará, á stað sem heitir Gljúfur (frekar ófrumlegt nafn á gljúfri, ef einhver mundi spyrja mig álits).
-
This reply was modified 8 years, 1 month síðan by
Halldór Fannar.
Attachments:
Halldór FannarParticipantVið Ágúst Kr. Steinarrsson fórum í Spora í Kjósinni 23. nóvember. Það hefur komist í vana hjá mér að byrja alltaf ísklifurstímabilið þar. Bóndinn á Fremra-Hálsi tók okkur vel þegar við heilsuðum upp á hann og báðum um leyfi að leggja hjá honum og fara um landið hans. Það var undarlega mikill snjór í leiðinni eins og sést á myndunum. Það var ekki mikill snjór í hlíðunum, virtist allt hafa safnast í fossinn – metersdjúp snjóhengja efst sem var nákvæmlega ekkert hald í. Ég hafði sérstaklega gaman af því að ormast í gegnum hana (eða þannig). Það þýddi líka töluverðan gröft til að finna akkerið á toppnum (sjá mynd). Þetta var þynnsti ís sem ég hef upplifað í þessari leið, við notuðum eiginlega bara stuttar skrúfur og víða voru þetta bara sæmilega þykk ístjöld sem 16cm skrúfur fóru í gegnum – maður þurfti því að fara mjög varlega á köflum. Samt alltaf gaman að klifra þessa leið, sérstaklega af því að hún er svo skjólsæl. Það var tryllt veður í kringum okkur sem breyttist svo í blindbyl þegar við röltum til baka. Ég læt líka fylgja með mynd af Konudagsfossinum sem var alveg að komast í aðstæður.
-
This reply was modified 8 years, 2 months síðan by
Halldór Fannar. Reason: Fixing image sizes to be below maximum
Halldór FannarParticipantÉg skrái mig til leiks og verð tvær nætur í rúmi (verð í herbergi með Jonna). Ég mundi gjarnan vilja taka morgun- og kvöldverðarpakkann en þar sem líkaminn minn hafnar öllum mjólkurvörum þá finnst mér ólíklegt að það muni ganga. Mér finnst litlar líkur á því að hið sígilda íslenska sveitaeldhús sé að púkka upp á slíkan aumingjaskap 🙂
Halldór FannarParticipantFrábært, takk fyrir þetta, Bjartur. Hvernig var aðkoman? Var línuvegurinn fær eða þurfti að paufast langa leið í snjó? (Það er að segja, eitthvað vit að taka með fjallaskíði fyrir þann part). Hvernig fóru þið niður í þessum aðstæðum?
Halldór FannarParticipantÞetta er flott. Ég var ekki með eina leið í huga – var bara að vona að það væri hægt að komast þetta upp og mér sýnist svo vera, sérstaklega eftir hryggnum. Takk takk!
-
This reply was modified 10 years síðan by
Halldór Fannar.
Halldór FannarParticipantHefur einhver fréttir að færa af Skessuhorni? Var að spá í hvernig aðstæður væru þar þessa dagana (og hvernig færðin er upp að því). Líka spurning um Villingadal sem er þarna nálægt – hefur einhver farið nýlega?
Halldór FannarParticipantJá, mikið rétt. Mér láðist alveg að taka það fram 🙂
-
This reply was modified 1 week, 6 days síðan by
-
HöfundurSvör









