Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Ísklifuraðstæður 2015-2016
- This topic has 58 replies, 22 voices, and was last updated 8 years, 6 months síðan by Páll Sveinsson.
-
HöfundurSvör
-
25. október, 2015 at 15:35 #58809Otto IngiParticipant
Ég og Daníel Másson fórum á rúntinn í dag. Ætluðum að athuga hvort Birkitréið væri dottið inn í aðstæður. Við komumst aldrei alla leið því það var þungfært inn kaldadal vegna snjóa. Við vorum á 35″ Patrol og hefðu eflaust getað hjakkað okkur alla leið en vorum ekki með skóflu og nenntum ekki að standa í því að festa okkur.
Keyrðum Uxahryggjaveg, Dragveg og Hvalfjörð til baka. Það virtist smá ís vera að byrja myndast í Villingadal, þarf samt töluvert lengri tíma. Sáum engan ís í Hvalfirði.
14. nóvember, 2015 at 20:20 #58894Þorsteinn CameronKeymasterTom King einfór í dag ÍSALP-leiðina á suður fés Hrútfjallstinda. Reportar að snjórinn hafi verið soddan krap og sökk upp að hné sumsstaðar. Hann reyndi einnig að einfara Scottsleið en fannst fossinn heldur blautur og þunnur eins og er. Toppnum var því miður ekki náð vegna mikilla sprungna og lélegs færis, því ákvað hann að niðurklifra leiðina og endaði aftur á bílaplaninu við Hafrafell (hann mælti reyndar sterklega gegn Hafrafellsaðkomu líka sökum þess hve jökullinn hefur hörfað.)
Geta einhverjir vitringar staðfest að þetta sé fyrsta einferð upp leiðina?
- This reply was modified 9 years síðan by Þorsteinn Cameron.
21. nóvember, 2015 at 20:26 #58940RobbiParticipantFórum ég, Ottó og Guðjón upp í Villingadal í dag. Þar voru allar leiðir í topp aðstæðum, grunsamlega mikill ís sem tekur vel á móti tryggingum. Klifrðuðum 2 megin leiðirnar til vinstri og fyrir miðju gili. Eðal stöff, WI4-ish.
Báðar leiðirnar er hægt að klifra einhvert lengst uppeftir í e-u brölti. Hægramegin er WI3 sem fer lengst uppeftir og er með fullt af litlum höftum sem gæti hentað vel fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu sport í fjölspanna klifri.
Þette lúkkar verf frá veginum, ekki láta blekkjast…
Góðar stundir.
Robbi
22. nóvember, 2015 at 19:11 #58946Arnar JónssonParticipantÉg, Óðinn og Gummi skelltum okkur í Kjósina að leit að ís. Fórum í Áslák sem var frekar grárlegur og opinn efst. Klifruðum hann ekki alla leið vegna þess og tókum svo smá toprope sesjon. Það er slatti af ís á svæðinu og vonandi lifir hann hlákuna af.
23. nóvember, 2015 at 08:55 #58956Otto IngiParticipant24. nóvember, 2015 at 17:26 #59040MatteoKeymasterHaehae,
Thorsteinn og Eg farid i Mulafjall i dag. Eg leid „Thor is back“ (FF, sja nya leidina) og Thorsteinn leid pitch1.
Matteo6. desember, 2015 at 17:53 #59148Siggi TommiParticipantFórum nokkrir í Brynjudal um liðna helgi (29. nóv).
Þar voru allar leiðir að detta í aðstæður þannig að núna eftir aðra frostaviku er nokkuð ljóst að flestar ísleiðir (nema helst Snati og einstaka aðrar) eru komnar í bullandi aðstæður.
Fyrir þá sem ekki vita, þá er norðurhlíð Brynjudals (ofan Ingunnarstaða og skógræktarinnar) algjört gósenland fyrir ís- og mixklifur. Leiðir af öllum kalíber, frá WI2 upp í WI5+ og verið að byggja upp mixklifur þar undanfarið.
Það var kominn vísir að tópó af svæðinu og þær upplýsingar að finna hér á isalp.is.6. desember, 2015 at 21:58 #59150Siggi TommiParticipantNý mixklifurleið lét dagsins ljós í Brynjudal um liðna helgi (29. nóv 2015).
Ber hún heitið Þyrnigerðið og er einhvers staðar í kringum M8 eða M8+ (hugsanlega fræðilega M9?).
Nánari upplýsingar koma um leiðina í leiðaskráningu á næstu dögum en ég læt teaser myndaalbúm duga í bili.
https://picasaweb.google.com/113225176019452545492/YrnigerIM8IBrynjudal#Nokkrar leiðir til viðbótar eru í vinnslu í Brynjudalnum og er vona á að áður en veturinn er allur verði komið veglegt mixklifursvæði þarna með fjölbreyttri flóru erfiðleika og karaktera…
7. desember, 2015 at 10:24 #59161Páll SveinssonParticipantÉg, Baldur, Robbi og Kartrín gerðum góða ferð í Eyjafjöllin sunnudaginn 6 des. 2015. Fórum „Skoruna“ í fínum aðstæðum. Smá tvist með hola snjóskel í hluta fyrstu spannar og extra mjúkum mosa í restina. Annars bara sól, logn, blautur ís og frábær félagsskapur.
kv.P7. desember, 2015 at 12:00 #59162Bergur EinarssonParticipantFórum nokkur úr Hafnarfirði í Tvíburagilið í Búahömrum gær. Mikið af ís í gilinu og innri og ytri Tvíburafossarnir í fínum aðstæðum, aðeins snjóskel sumstaðar á ytri fossinum en ekki til vandræða. Töluvert af skafsnjó í öllum giljum þó að lítill snjór væri almennt á svæðinu. 55° dálítið hvítar að sjá en fórum ekki upp að þeim.
Kveðja,
Bergur
7. desember, 2015 at 16:44 #59163Þorsteinn CameronKeymasterHefur einhver séð norðurhlíðar Skarðsheiðar nýlega?
12. desember, 2015 at 19:40 #59190Siggi TommiParticipantFór með Guðjóni Snæ og Haraldi Erni í Skálagil í Haukadal í dag 12. des ´15 í blíðskaparveðri.
Góður slurkur af ís en heldur í þynnri og kertaðri kantinum mv. oft áður.
Fórum „Fyrsta barn ársins“ og „Brasilian Gully“ hægra megin í gilinu.
Ísinn mjög harður og þurr í gaddinum (-8°C).
Vatn að seytla í báðum leiðum svo þetta er enn að byggjast upp.Sýndist vera slatti af ís í Austurárdal þegar við keyrðum framhjá en maður sér bara í efsta hlutann af þilinu.
Vænti þess að Single Malt og co séu í bullandi líka (gleymdi að kíkja þeim megin við veginn).Set nokkrar myndir á https://picasaweb.google.com/hraundrangi á eftir.
13. desember, 2015 at 11:20 #59192Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantFórum hópur í Múlafjall í gær. Flottur ís þó sumstaðar sé bleyta og kertað.
Stígandi, Íste og fleiri leiðir í flottum aðstæðum.Ági
16. desember, 2015 at 20:52 #59249orrisParticipantVorum fjögur sem vorum nokkra daga í Arnarfirði um síðustu helgi (10-14 des.). Hellingur af ís út um allt og fínustu aðstæður en var samt sem áður að seytla smá vatn úr ýmsum leiðum. Var hins vegar komin hláka þegar við fórum til baka suður á mánudeginum en ef það hlýnar ekki of mikið þá ætti þessi ís ekki að fara langt. Nóg af dóti til að leika sér í.
Læt 3 myndir fyglja;
Fyrsta myndin er af leiðinni Musculus, næsta mynd á eftir er af Skotfélaginu. Síðasta myndin er af gili sem er í fjallshlíðinni rétt fyrir utan Bíldudal. Við höfum ekki fundið neinar upplýsingar um þessa leið og væri gaman ef einhver hér hefði kannski einhverjar upplýsingar um leiðina? Gilið er bara nokkrum mínútum eftir að maður keyrir í gegnum bæinn og er áberandi mest af ís í því af öllum hinum giljunum.
Hún byrjar á ca 30m háu hafti með stóru kerti, svo eftir það er mikið af stöllum og mislöngum fossum uppá topp. Vorum búin að klifra og brölta ca. 280m upp gilið þegar við ákváðum að snúa við útaf myrkri og áttum alveg örugglega um 100-150m eftir uppá topp á fjallinu.
Attachments:
17. desember, 2015 at 23:44 #59265JonniKeymasterÉg og Tómas vorum að ræða um þessa neðstu leið, skv upplýsingum finnst mér líklegt að þetta sé Skuggabaldur
18. desember, 2015 at 21:26 #59267RobbiParticipantBrynjudalur 18 des:
Kjaftfullt ís í léttari leiðunum inni við skórækt norðan megin í dalnum. Lítill sem engin ís upp á brún þegar komið er upp úr leiðunum og erfitt að setja upp top rope eða toppa upp úr leiðunum. Brattari leiðir eru þynnir og kertaðar í byrjun en fitna mikið þegar ofar dregur.
Nálaraugað: Frekar þunnt
Snati: Vantar kertið, spikaður að ofan
Kópavogsleiðin (kertið vinstra megin við hana): Virtist vera í æðstæðum úr fjarska,furðu mikill ís þar á ferð.
Ýringur: Megin haftið leit út fyrir að vera feitt. Lítill sem enginn ís í neðripart í gilinu
Leiðin á móti Óríon leit út fyrir að vera í aðstæðum, veit ekki með óríon
Nóngil í Reynivallaháls: Fínar aðstæður í aðal höftunum uppá topp, þynnri ís í giljabröltinu. Leit út fyrir að vera bara í fínum overall aðstæðum.Ef þér fannst þessi þráður gagnlegur og telur að hann hefði kanski aðstoðað þig við að velja þér stað til að klifra á um helgina, hentu þá í sambærilegan póst næst þegar þú ferð einhvert að klifra…
Maður gerir ekki neitt fyrir neinn, sem gerir ekki neitt fyrir neinn!
Góðar stundir og gleiðilegt klifur.
Robbi
24. desember, 2015 at 01:23 #59313Rakel Ósk SnorradóttirParticipantÉg og Ági kíktum f. ofan skógræktina í Brynjudal á Þorláksmessu.
Lýsing Robba hér að ofan er bara nokkuð lýsandi fyrir aðstæðurnar.
Ísinn var flottur en þunnur efst í leiðunum sem við klifruðum.25. desember, 2015 at 20:18 #59324Bergur EinarssonParticipantFórum orginalinn í 55 gráðunum í dag en hann er í leiðinda aðstæðum, hver skelin utan á annarri. Varla nægjanlega sterkar til að halda manni en samt nægjanlega þykkar til að það var bölvað mau á hreynsa þær ofan af. Betri ís ofan við stallinn en mikið vatn á ferðinni og um að gera að njóta þess betur að fara þessa klassík þegar ísinn er skárri. Það voru víst svipaðar skelaja-aðstæður í Nálarauganu.
26. desember, 2015 at 14:12 #59325Þorsteinn CameronKeymasterEkki er öll von úti í Búahömrum þar sem tvíburagil var í solid aðstæðum í gær. Neðri fossinn var mjög feitur og ekkert að ama.
Enn nóg pláss til að komast að mix leiðunum og efri fossinn var flottur líka.Kv. Þorsteinn
26. desember, 2015 at 22:08 #59326Arnar HalldórssonModeratorÉg og Magnús Blöndal fórum í 3. jólaklifrið í dag. Stefnan hafði verið tekin á Brynjudal en á leiðinni var okkur litið upp í Búhamra. Það sáum við 55° í að virtist fínum aðstæðum og skelltum okkur þangað í staðinn. Sáum fljótlega spor sem sennilega eru eftir Berg og co. Leiðin sem við klifruðum var nokkuð beint að augum (sjá mynd).
Klifrið var ekki ósvipað og Bergur lýsti þ.e. maus að finna ís sem tók vel á móti skrúfum, snjór undir ísnum og blautt á köflum.
Kv. Arnar
- This reply was modified 8 years, 10 months síðan by Arnar Halldórsson.
Attachments:
27. desember, 2015 at 00:05 #59329Otto IngiParticipantÉg, Robbi og Katrin fórum í Grafarfoss og Kókostréið í dag. Allt í príma aðstæðum.
27. desember, 2015 at 16:16 #59334Siggi TommiParticipantGleymdi víst að setja inn myndir frá Brynjudalnum í síðustu viku (22. des).
Býst ekki við að þessi stutti hlákusprettur hafi breytt miklu um aðstæður þar.
Gaddurinn yfir jóladagana sennilega frekar bætt í frekar en hitt.1. mynd: Séð yfir Nálaraugað, Snata og co.
2. mynd: Ýringur. Þunnur neðst en stóra haftið og höftin uppi í góðum gír.
3. mynd: Ofan skógræktarinnar. Allt í bullandi þar. Pilsnerinn er stóri pillarinn, sem við klifruðum 22. des í skemmtilegum (en snúnum) aðstæðum.
4. mynd: Pilsnerinn (WI5) er pillarinn til vinstri. Kópavogsleiðin er heldur þunn í kverkinni fyrir miðri mynd. Porter og Stout síðan þunnar til hægri. Ófarinn speni með mixbyrjun svo til hægri.- This reply was modified 8 years, 10 months síðan by Siggi Tommi.
Attachments:
27. desember, 2015 at 16:26 #59340Siggi TommiParticipant4. mynd: Pilsnerinn (WI5) er pillarinn til vinstri. Kópavogsleiðin er heldur þunn í kverkinni fyrir miðri mynd. Porter og Stout síðan þunnar til hægri. Ófarinn speni með mixbyrjun svo til hægri.
Attachments:
30. desember, 2015 at 11:53 #59445RobbiParticipantMúlafjall, Brynjudalur og Grafarfoss 29.des 2015.
Múlafjall:
Nægur ís og ekki mikið breyst síðan í jólaklifrinu. Ísinn er mjög blautur og lélegur til vþræðinga í toppinn. Mikið af snjó við brúnina og í leiðum sem eru í litlum halla.Mömmuleiðin: Þunnur ís í kverkinni í byrjun og hægt að klippa í bolta á lykil stöðum. Tæpur ís um miðbik en skánar þegar ofar dregur og þykkur í toppinn.
Íste: Nær niður
Pabbaleiðin: Byrjunarkertið orðið þynnra en vel klifranlegt
Léttu leiðirnar eru feitar
Rísandi og stígandi: Nægur ís séð frá veginum.Brynjudalur:
Ennþá ís séð úr fjarska og að öllum líkindum hægt að klifra léttari leiðirnar
Ýringur: Þunnur ís í byrjunarhöftum og eins og það væri rennsli í höftunum. Efsta haftið lúkkaði gott en kertað. Blá toppur efst í fjallinu leit út fyrir að vera í fínum aðstæðum
Óríon: Kertið leit ú fyrir að vera spik feitt, óvitlaust að bíða eftir meira frosti samt.Grtafarfoss:
Orginallinn er í rusli og rennandi vatn
Miðjan er ekki mikið breytt en hætta á slæmri skel um miðbik, kertið í toppinn ennþá í lagi
Vinstra afbrigði: fyrri partur (40m) blönduð af mjúkum og skeljuðum ís. Efri partur með mikilli skel og mjúkum ís, ís eitthvað farinn að losna frá klettinum á möfum stöðum og erfitt að tryggja.Góða skemmtun.
Robbi
- This reply was modified 8 years, 10 months síðan by Robbi.
4. janúar, 2016 at 01:18 #59503SissiModeratorMúlafjall 3. janúar
Mikill snjór, fórum bæði afbrigðin af Rísanda undirritaður, Skabbi, Árni Stefán, Jonni og Kamil. Frekar furðulegur ís að auki, frauð, holt og spes hér og þar. Einnig var seinni spönnin í vinstra afbrigðinu ekki vel frosin. Hengja á toppnum hægra megin. Samt alltaf gaman. Fullt af ís en Múlafjall gæti alveg þegið rigningu í einn dag eða svo.
Sissi
Attachments:
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.