0309673729

Forum Replies Created

Viewing 25 posts - 101 through 125 (of 149 total)
  • Author
    Posts
  • in reply to: vefnefnd@isalp.is #48360
    0309673729
    Participant

    ps.
    svona persónulega held ég að tími sé kominn á nýja forsíðumynd

    in reply to: Ísklifur á góðum stað. #48351
    0309673729
    Participant

    ps.
    Fyrir vefinn er óvitlaust að minnka myndina niðrí vef-stærð (600×600) og skella síðan inn textanum. Þá er líklegra en ekki, að hægt verða að lesa hann á myndinni.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Fjallaferðir í Ekvador #48345
    0309673729
    Participant

    Til hamingju með tindana. Það er virkilega gaman að heyra hvað hinir eldri og reyndari félagar í Ísalp taka sér fyrir hendur. Einnig ágætis tilbreyting að heyra um fleira en ísklifurbrölt og telemarkrennsli hér á síðunni.

    með kveðju
    Helgi Borg

    in reply to: Ísklifur á góðum stað. #48349
    0309673729
    Participant

    Það er hægt að setja inn allt að 3 myndir af hverri leið þegar nýjar leiðir eru skráðar. — Mæli eindregið með því að það sé gert!

    Menn einfaldlega merka inn leiðina með Photoshop eða einhverju álíka tóli og skella svo myndunum inn með skráningunni.

    Vænlegt er að hafa myndirnar ekki stærri en 600×600 pix og 60 KB, því annars er hætta á að kerfið ráðist á þær og minnki þær, með tilheyrandi gæða- og geðröskun.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: ísfestival #48263
    0309673729
    Participant

    Ég get ekki séð að það sé vandamál. Þú skalt taka fram hversu margir koma með þér undir athugasemdum þegar þú skráir þig (afskráir og skráir þig síðan aftur). Það er til þess að hægt sé að bóka gistingu fyrir nógu marga.

    Ég er nokkuð viss um að Einar reddar fínum ísaðstæðum og veðri fyrir okkur.

    kveðja
    fh. stjórnar
    Helgi Borg

    in reply to: Banff kvikmyndahátíð – ykkar er valið! #48204
    0309673729
    Participant

    Halli og Ívar missa sig í umræður um ást og rómantík á þessum þræði. Augljóst að þeir vilja Banff-myndir á ljúfu nótunum.

    Hvað með ykkur hina?

    in reply to: Hvad á ég a kaupa mér?? #48195
    0309673729
    Participant

    Eitt í viðbót. Ef þú velur stífa leðurskó fram yfir plastskó þá skaltu athuga að þeir séu örugglega með góðri einangrun. Sem dæmi, eru Salomon Super Mountain skórnir til bæði með einangrun og ekki. Þeir sem ekki hafa einangrun eru full kaldir fyrir íslenskar vetraraðstæður. Á skónum á að standa “Thermal isolation” eða eitthvað álíka.

    Persónulega mæli ég með leðurskóm fram yfir plastskó því þeir eru liprari til göngu heldur plastararnir. Góðir stífir leðurskór eru fínir til göngu í grófu landi, nokkuð sem seint verður sagt um plastskó. Það er hinsvegar rétt sem Halli segir, plastskórnir veita betri stuðning í ísklifri, þ.e. þú þreytist minni í kálfanum.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Hvad á ég a kaupa mér?? #48191
    0309673729
    Participant

    Að sjálfsögðu kaupirðu Charlet Moser axir. Það kemur bara ekkert annað til greina. Hvaða týpu nákvæmlega fer eftir þínum þörfum.

    Að sjálfsögðu kaupirðu svo Salomon Super Mountain skó. Það kemur bara ekkert annað til greina.

    Ekki hlusta svo á formanninn sjálfan sem á sjálfsagt eftir minnast á Black Diamond axir. Hann er ekki einu sinni búinn að prófa nýju axirnar sínar sem hann er þó búinn að eiga í 2 ár.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Myndirnar #48115
    0309673729
    Participant

    Í byrjun ágúst verða verulegar breytingar á vefsetrinu. Breytingarnar kunna að hafa áhrif á val á forsíðumyndum. Þessar breytingar verða nánar kynntar hér innan skamms.

    in reply to: Fjall dagsins #48103
    0309673729
    Participant

    Þetta er Steinafjall í Suðursveit.

    in reply to: Fjall dagsins #48090
    0309673729
    Participant

    Rétt, Hrafnabjörg var það.
    Rangt, jafnvel Ívar Hardcore hefur ekki alltaf rétt fyrir sér.

    in reply to: Kerlingareldur #48075
    0309673729
    Participant

    Til hamingju með eldinn! Það er alltaf gaman að heyra þegar menn taka sér pásu í sportklifrinu til að fara flottar alpaklifurleiðir.

    Ég er sammála því að alpaklifurleiðir ættu að hafa alpagráður, tæknilega gráðan má svo alveg fylgja með. Helsti gallinn er líklega sá að fáir klifrarar hérna þekkja mikið til alpagráða — sér í lagi í erfiðari kanntinum. En málið er nátttúrulega að reynsla af alpagráðum skapast ekki nema að við byrjum að nota þær meira.

    Hvernig væri að taka alpagráður fyrir í haust á kvöldsamkundu í félagsheimili ÍSALP — ræða alpagráðurnar og skella gráðum á allar þekktar íslenskar alpaleiðir. Stjórnin skaffar kaffi og meðí!

    in reply to: Vaðlafjöll #48064
    0309673729
    Participant

    Ég er einn af þeim sem ekki hafa komið þarna, en hafa heyrt fallegar lýsingar.

    Hversu langt er að ganga upp að klettunum frá vegi hafi menn ekki nógu (of) góðan fólksbíl? Hvar á veginum eru helstu torfærurnar?

    Er möguleiki á að tjalda einhversstaðar nálægt klettunum eða er mælt með að tjalda á tjaldstæðinu í Bjarkarlundi?

    Er vitað í hverra eigu Vaðalfjöllin eru? Er búið að kaupa borvélina?

    Er einhver stemmning fyrir ÍSALP-ferð í Vaðalfjöll í sumar?

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: mánudagsskeyti #48043
    0309673729
    Participant

    Það væri fróðlegt að heyra frá fleirum hvað fólk vill sjá hérna á síðunni.

    Þess má geta að nokkrar breytingar eru fyrirhugaðar á síðunni sem miða að því að stækka og breikka lesendahópinn — meira um það síðar.

    Helgi Borg
    vefstjóri

    in reply to: Valshamar og Bensínbor #48039
    0309673729
    Participant

    Palli er vissulega afar gamall og traustur gaur — en ekki láta hann komst í borvélina!!!

    Helgi Borg

    in reply to: Valshamar og Bensínbor #48029
    0309673729
    Participant

    Fjárhagsstaða ÍSALP ræðst af miklum hluta af innkomunni af árgjöldunum. Hérna er tölur greiddra árgjalda síðustu 5 árin. Þetta er raunveruleg stærð klúbbsins, hvað sem hver óskar sér. Einhversstaðar las ég nú reyndar að það ætti að fara með klúbbinn upp í 600 á næstu tveimur árum. Líklegt — tja, erfitt að segja :-)
    1998 – 165
    1999 – 181
    2000 – 160
    2001 – 143
    2002 – 131

    En hvað um það, ég mæli eindregið með að drífa í borvéla kaupum hið fyrsta. Það setur varla ÍSALP á hausinn.

    in reply to: Valshamar og Bensínbor #48025
    0309673729
    Participant

    Gott framtak! Það væri óvitlaust að ÍSALP og/eða Sportklifurfélag Reykjavíkur, fjárfesti í bensínborvél. Á aðalfundi Klifurhússins var einmitt rætt hvort ekki mæti nýta þann pening sem (hið nú um tíðir óvirka félag) SKFR liggur með inni á bók í að kaupa borvél.

    Það er þarft að endurbolta einhverjar leiðir í Valshamri, einnig væri vert að bolta fleiri léttar leiðir að Munkaþverárgili og Skinnhúfuklettum (fyrir mig og aðra í meðallagi lélega klifrara)

    Gjaldkerinn verður að segja til um þetta, en ég grun um að fjárhagur ÍSALP standi ekkert alltof vel, eftir töluverðar framkvæmdir og feitan reikning fyrir litprentað ársrit. — Einungis 131 hefur greitt árgjald 2002, sem vitnar til um lítinn áhuga fyrir áframhaldandi starfsemi ÍSALP.

    in reply to: Leiðarvisir af Munkaþvera #48015
    0309673729
    Participant

    Drög að þeim fyrsta komin inn.

    in reply to: Leiðarvisir af Munkaþvera #48013
    0309673729
    Participant

    Tek undir þetta, gott framtak! Ég er sammála þeirri framtíðarstefnu sem kemur fram í ársritinu að hafa leiðarvísa Ísalp á vefnum á opnum síðum, fyrir alla, alltaf. Eru ísalparar almennt sammála þessu?

    Ég get útbúið leiðarvísa-síðu undir “Svæði og leiðir” í efnisyfirlitinu á síðunni, þar sem fólk getur náð í leiðarvísa í fullri upplausn.

    Það þarf helst að optimera ljósmyndir í leiðarvísum fyrir stærð og skýrleika í prentun. Málið er að það eru bandbreiddartakmörk á vefnum, og það kostar fullt af spesíum að fara yfir þau. Að auki eru prentarar misjafnir, eins og JHS bendir á, og því betra að ýkja kontrastinn þó það komi aðeins niðrá myndrænum gæðum. Þannig verða megin atriðin auðséðri, jafnvel á lélegum prenturum — ég get tekið að mér að fitla við myndirnar til að gera þær léttar og auðprentanlegri. Til að fólk eigi auðvelt með að höndla með leiðarvísana, er hentugast að troða þeim í pdf-skjöl.

    Mér finnst reyndar persónlega teiknaðir kletta-leiðarvísar miklu skemmtilegri. Með því að troða þeim í vektor baseröð pdf-skjöl, er þeir líka léttir og auðprentanlegir á næstum öllum prenturum. — en það er talsverð vinna að gera þá, og ljósmynda-leiðarvísar eru miklu betri en engir.

    Helgi Borg
    vefstjóri

    ps.
    Ég skal mynda Pöstina í bak og fyrir næst þegar ég á leið þar hjá, ef enginn verður fyrri til.

    in reply to: Mynd dagsins 12.10.03 #48009
    0309673729
    Participant

    Neib, það er ekki hægt að skoða fyrri myndir dagsins. Sumar þeirra birtast þó einhverntíman aftur á meðan að aðrar birtast bara einu sinni.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Mynd dagsins 12.10.03 #48007
    0309673729
    Participant

    Já rétt skal vera rétt. Eru aðrir Svarfdælingar og nágrannamenn sammála þessu? –Ég leiðrétti nafnið.

    in reply to: Austurveggur Þverártindseggjar #47994
    0309673729
    Participant

    Villa í vefhýsingarkerfinu olli því að myndin sem Einar setti inn með skráningunni birtist ekki. Þetta er núna komið í lag.

    Gaman að sjá svona vel unna skráningu, með glæsilegri mynd þar sem leiðin er merkt inn á — svona hafði ég akkurat hugsað að skráningar-systemið yrði notað.

    Til hamingju drengir með glæsilega leið.

    kveðja
    Helgi Borg
    vefstjóri
    alltaf á vaktinni

    in reply to: Mynd dagsins 23. apríl #47944
    0309673729
    Participant

    Þeir þekkja fjöllin sín norðanmenn. Myndin er tekin af Kerlingunni í norður. Til hægri og neðar á myndinni sést glitta í topp Stólsins.

    in reply to: Ísalp 2001-2002 #47901
    0309673729
    Participant

    Þú styður á “Mitt yfirlit” í efnisyfirlitinu neðst á hverri síðu. Þar færðu yfirlit yfir þínar greiðslur. Ef þú ert ekki sáttur við stöðuna þá hefurðu samband við Jón Gunnar gjaldkera sem sér um að setja inn upplýsingar í miðlægan gagnabanka ÍSALP. Netfangið hjá gjaldkera er gjaldkeri@isalp.is.

    kveðja
    Helgi Borg
    ritstjóri isalp.is

    in reply to: Hvaðan er myndin? #47884
    0309673729
    Participant

    og það var rétt.

Viewing 25 posts - 101 through 125 (of 149 total)