- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
29. January, 2004 at 00:35 #45097
0309673729ParticipantVefnefndin er nú óðum að hefja störf fyrir alvöru. Nefndarmennirnir Björn Brynjúlfsson (Björninn), Haraldur Guðmundsson (Halli), Ólafur Ragnar Helgason (Óli Raggi) og Stefán Örn Kristjánsson (Don Stefano) hafa lokið ítarlegri þjálfun í stjórnun Ísalp-vefsins. Eftir að hafa gengið í gegnum ströng próf hafa þeir nú allir CIA-skýrteini upp á vasann (Certified Isalp Administrator). Aukinheldur verður undirritaður í nefndinni til aðstoðar í vélasal.
Nefndin hefur netfangið vefnefnd@isalp.is. Ábendingar sem sendar eru af síðunni (neðst í hægra horni) fara á nefndina, og sömuleiðis póstur á netfangið info@isalp.is.
EKKI HIKA við að senda póst á nefndina með ábendingum, athugasemdum, atyrðum og öðru sem þú vilt koma á framfæri varðandi vefsíðu klúbbsins.
kveðja
Helgi Borg29. January, 2004 at 14:55 #48360
0309673729Participantps.
svona persónulega held ég að tími sé kominn á nýja forsíðumynd29. January, 2004 at 15:10 #48361
0405614209ParticipantÓska vefnefndinni hjartanlega til hamingu með CIA vottunina og vonast til þess að hún verði öflug í starfsemninni.
Sammála um að forsíðumyndinni mætti breyta og þá sérstaklega með tilliti til þess að t.d. sjónvarpið sést ekki á núverandi mynd.
Kveðja
Halldór formaður29. January, 2004 at 15:48 #48362
ÓlafurParticipantVarðandi forsíðumyndina:
Eigum við ekki að segja að málið sé komið í nefnd.
Ef einhverjir þarna úti luma á myndum sem þeir vilja koma á framfæri er bara að pósta á vefnefndina. Þeir hinir sömu gætu orðið þess heiðurs aðnjótandi að fá myndina sína á forsíðu isalp.is
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.