0309673729

Forum Replies Created

Viewing 25 posts - 76 through 100 (of 149 total)
  • Author
    Posts
  • in reply to: Skarðatindar #49409
    0309673729
    Participant

    Höfum þetta svona:
    1) Sigurður Tómas sendir mér og Ívari stóra útgáfu af myndinni
    2) Ívar merkir leiðina inn á myndina og sendir mér
    3) Ég kem henni haganlega fyrir á vefnum með leiðarlýsingunni.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Forsíðumyndir næstu dagana #49396
    0309673729
    Participant

    Leiðrétt.

    in reply to: Forsíðumyndir næstu dagana #49394
    0309673729
    Participant

    Ætti ég þá ekki að reyna að leita þær uppi og birta einhverjar þeirra.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Svar: Forsíðumyndir #49397
    0309673729
    Participant

    Hljómar dálítið eins og “síður félaga”, ekki satt. Það mætti vel birta góðar myndir af síðum félaga á forsíðunni.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Grafarfoss og kókostréð #49252
    0309673729
    Participant
    in reply to: Grafarfoss og kókostréð #49251
    0309673729
    Participant

    Ágætt að íssúlur standi yfirleitt áfram þrátt fyrir að það braki svolítið í þeim.

    Ég var eitt sinn staddur í megintryggingu í miðjum Orion þegar hár smellur glumdi. Ég og Palli Sveins fundum báðir fossinn titra örlítið. Sálin varð agnarlítil en Palli róaði mig og sagði að við þyrftum engar áhyggjur að hafa. Reyndar sýndist mér nokkrar svitaperlur stökkva fram á enni hans.

    Það eru þó til undantekningar frá þessu. Fyrir einhverjum árum klifu nokkir menn Snata í Brynjudal. Nokkrum dögum síðar ætlaði annað teymi að klifra leiðina en þá var hún hruninn. Það var frost allan tímann þarna á milli.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Grafarfoss og kókostréð #49248
    0309673729
    Participant

    Þetta er komið i lag.

    Villan orsakaðist af breytingum í uppsetningu hjá hýsingaraðila.

    Vinsamlega sendið skeyti á vefnefnd@isalp.is ef þið verðið vör við villur á vefnum. Það er ekki nóg að melda þær hér á umræðusíðunum.

    með kveðju
    Helgi Borg
    vefarinn mikli

    in reply to: Vellirnir #49141
    0309673729
    Participant

    Það væri ekki ónýtt að fá fleiri léttar leiðir á Vellina til að hlúnkast upp. Í boði ÍFLM að sjálfsögðu.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Hvernig má bæta vefinn? #49082
    0309673729
    Participant

    Halldór, ég var ekki að meina þig. Þú ert hardcore klifrari, átt tvö pör af Black Dimond ísöxum og allt — þótt þú hafir bara farið tvisvar í ís með þær.

    kveðja
    HB

    in reply to: Hvernig má bæta vefinn? #49080
    0309673729
    Participant

    Ok, það er búið að fjalla um leiðarvísa á vefnum. Það er vilji fyrir því bæði hjá félögum og í stjórn. Ég hef tillögu um hvernig mætti gera þetta á brilljant máta sem ég mun leggja fyrir stjórn.

    En hvað fleira? Ykkur hlýtur að detta eitthvað fleira í hug! Ég hef sérstakan áhuga á að heyra frá þeim sem hafa áhuga á fjallamennsku en finnst Ísalpvefurinn ekki nýtast þeim sem skildi — þeas. í grunninn þá sem EKKI falla í flokkinn: “hardcore klifrari”.

    Sjálfur hef ég margar tillögur um hvernig mætti bæta vefinn umtalsvert. Ég er að vonast eftir fínum hugmyndum sem mér hafði ekki dottið í hug.

    Áður en farið verður út í einhverjar breytingar verða þær lagðar fyrir stjórn til samþykktar.

    Koma svo, hugmyndir!

    kveðja
    Helgi Borg
    Vefarinn mikli

    in reply to: Skaftafellsþjóðgarður #49061
    0309673729
    Participant

    Í fyrra voru gjaldeyristekjur Íslands af ferðamönnum 13,1% af heildar gjaldeyristekjunum. Hlutfallið fyrir stóriðjuna var 14,2% eða litlu meiri en af ferðamönnum.

    Samgönguráðaneytið fer með ferðamálin. Þar er að því að ég best veit einn starfsmaður sem sinnir þeim málaflokki.

    Iðnaðarráðaneytið fer með stóriðjuna. Það væri gaman að vita hversu margir starfsmenn þar sinna stóriðjunni? Ég hef grun um að þeir séu fleiri en einn.

    Það er gaman að velta þessu fyrir sér. Getur verið að ferðaþjónustan beiti sér bara ekki nóg?

    Mér finnst nærtækara að við veltum fyrir okkur hvort Ísalp eigi að reyna (með veikum mætti) að láta rödd sína heyrast í umhverfismálunum. Ef ég man rétt þá var imprað á því óformlega á stjórnarfundi fyrir nokkrum árum án þess að nein niðurstaða næðist. Nokkrir voru með og aðrir lögðust gegn því.(Þeir sem lögðust gegn því hafa lífsviðurværi sitt af virkjanagerð án þess að það skipti svo sem einhverju máli)

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Ísklifur í Þórisjökli,breyting á tíma #49025
    0309673729
    Participant

    Ég breytti tímasetningunni í dagskránni, úr 8 í 7, til samræmingar við þetta. Það er óvitlaust að halda samræmi í upplýsingum hér og í dagskránni.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Hugtakaflóra klettaklifurs #48939
    0309673729
    Participant

    Hvernig væri að snara helstu hugtökunum yfir á íslensku. Einhverjar þýðingar hafa verið gerðar í gegnum árin, en virðast ekki hafa náð útbreiðslu.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Keppni í Jósefsdal #48907
    0309673729
    Participant

    Við þennan dagskrárlið var skráning. Á mánudagskvöldið hafði enginn skráð sig. Þá var keppnin blásin af og skráningin jafnframt tekin af.

    Það er deyfð yfir klúbbnum, hvað sem veldur.

    Ég hvet fólk til að taka þátt í tveimur næstu dagskrárliðum klúbbsins!

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Keppni í Jósefsdal #48905
    0309673729
    Participant

    Keppnin féll niður vegna þátttökuleysis, enginn keppandi skráði sig.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Stardalur. Minningin ein. #48838
    0309673729
    Participant

    Fyrir þá sem ekki hafa fylgst með þessum umræðum er réttast að benda á að þær hófust á umræðuþráðnum “Valshamar – ný leið”.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Valshamar – ný leið #48811
    0309673729
    Participant

    Klassískt umræðuefni. Hingað til hafa flest gömlu brýnin verið sammála um að Stardalur skuli vera óflekkað mekka dótaklifrans.

    Það er enginn vafi um að Stardalur yrði mun meira klifinn. Þar á meðal af undirrituðum. Hef sjálfur mjög gaman af léttu dótaklifri, en fjölbreytni er af hinu góða. Það væri fínt að hafa þarna ögn erfiðari boltaðar leiðir.

    Það er stundum talað um að halda leiðum óskemmdum fyrir ókomnar kynslóðir klifrara. Ég er hallur undir að það sé mikilvægt. Það er líka talað um afturkræfa eða óafturkræfa nýtingu á náttúrunni. Að bolta tortryggða sprungu er afturkræft frá augum dótaklifrarans, er það ekki — eða hvað?

    Persónulega mundi ég aldrei taka í mál að bolta “klassískar” sprunguleiðir, enda örugglega enginn að tala um það. Spurningin er hinsvegar hvar og þá hver á að draga mörkin. Þegar einu sinni hefur verið boltað er alltaf freistandi að bolta meira, jafnvel einhverjar “klassískar” leiðir. Þyrfti ekki líka að taka tillit til byrjenda og bolta einhverjar léttar leiðir þétt.

    Hvað með þann hluta Stardals sem minnst eru klifnir, þeas. vestan Skottsleiðar. Væri hugsanlegt að bolta þar einhverjar leiðir?

    Hér er að lokum smá bútur úr fundargerð af stjórnarfund Ísalp um árið. Ég vona að þáverandi og núverandi stjórnarlimir fyrirgefi mér fyrir að hafa ekki fengið formlegt leyfi fyrir birtingu:
    ==================================
    dags: 08.10.03
    ritað af: Andri Bjarnason

    Stjórnarfundur Ísalp 8. október

    Fundarstaður: Skútuvogurinn
    Mættir: Andri, Helgi, Unnur og Þorvaldur

    Fundur hófst á slaginu 20:32

    1. Helgi talaði um að það vantaði aðgengilegar boltaðar ofanvaðsleiðir í nágrenni Reykjavíkur fyrir þá sem eru að byrja og hafa hingað til bara klifrað innandyra. Þetta er næsta skrefið fyrir nýja klettaklifrara. Undirtektir góðar. Helgi stakk upp á skoða klettana vestast í Stardalshömrum, vestan við Skotsleið, með tilliti til þessa. Þar er lítil hefð fyrir dótaleiðum. Leiðirnar þurfa að vera aðgengilegar ofan frá og vera styttri en 25m. Boltarnir þurfa að vera uppi á brúninni og keðjan þarf að ná út yfir brúnina. Unnur benti á kletta nærri Grindavíkurvegi sem fáir vissu af. Fólk var sammála um að þeir koma líka sterklega til greina. Hugsanlega betri kostur en Stardalurinn. Skoða þarf málið betur m.t.t. boltunar, að bolta í Stardalnum er vafasamt og þyrfti að leggjast undir dóm klifursamfélagsins. Eeeennn hugmyndin er góð!


    ==================================

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Eyjafjöll – Ingimundur og Pöstin #48788
    0309673729
    Participant

    Stórgott. Skemmtileg og fræðandi lýsing, og fínar myndir.
    Meira svona frá fleirum.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Myndirnar hans Palla #48445
    0309673729
    Participant

    Gott framtak. Það væri gaman ef fleiri mundu taka sér þetta til fyrirmyndar. Hér væri gaman að sjá líka klettaklifur, telemark, gönguskíði, alpaklifur, og almenna fjallamennsku. Palli getur vitnað um að það er óskup einfalt að setja upp ‘mínar síður’.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Hvar voru allir um helgina??? #48408
    0309673729
    Participant

    Ég og Jón Gunnar gjaldkeri, fórum orginalinn í Grafarfossi í gær. Eins og fram hefur komið hér á síðunni er (var) leiðin í fyrirtaks aðstæðum. Við fórum leiðina í einni spönn á 60m línu. 5-10m voru á hlaupandi tryggingum, snjórinn í gilinu sá um rest.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Glymur #48404
    0309673729
    Participant

    Það þarf yfirleitt að skafa töluverðan snjó inn í gilið til að áin leggi. Ekki ólíklegt að það sé að gerast núna.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Eru ekki einhverjir aktívir göngugarpar hérna? =) #48390
    0309673729
    Participant

    Þú sendir skeyti á vefnefnd@isalp.is sem vippar ferðinni um hæl yfir í dagskránna á forsíðunni.

    Önnur aðferð sem þú getur viðhaft, viljirðu meiri kontról, er að fá þér “þínar síður” og setja ferðatilhögunina þar. Síðan geturðu vísað á þær héðan af umræðusíðunni eða jafnvel af dagskránni. Þetta hefur þann kost umfram að skrifa ferðatilhögunina beint á umræðusíðuna, að auðvelt er að breyta upplýsingunum ef aðstæður breytast.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Eyjafjöllin fín #48383
    0309673729
    Participant

    Eigum við ekki frekar að segja að hjálpartextinn hafi verið ónákvæmur. Ég er búinn að bæta smá texta um þetta tiltekna mál sem olli töfum í kvöld.

    Nú er ekkert því til fyrirstöðu að félagar skelli inn sínum síðum í stríðum straumum.

    Ég hef heyrt því fleygt að vefnefndin ætli að mæta reglulega niðrí félagsheimilið með slides-skanna til að skanna myndir fyrir félaga og aðstoða þá við að koma upp sínum síðum. Einu sinni í viku sagði orðrómurinn.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Eyjafjöllin fín #48381
    0309673729
    Participant

    Búinn að bjarga málinu.

    kveðja
    Helgi Borg

    in reply to: Avoiding the touch #48364
    0309673729
    Participant

    Spurning hvort stjórn Ísalp ætti að hafa samband við bíóin og mæla með að myndin verði tekin til sýningar. Hugsanleg gæti Ísalp komið óbeint að kynningunni, sem þá mundi nýtast til að kynna klúbbinn í leiðinni. — og þá gengur alveg örugglega enginn í klúbbinn eftir að hafa séð myndina!

    kveðja
    Helgi Borg

Viewing 25 posts - 76 through 100 (of 149 total)