Fáfnir WI 3+
Keyrt er eftir Skarðsströndinni til vesturs eftir Klofningsvegi (590). Þegar komið er í Búðardal er keyrt yfir brúnna sem liggur yfir Búðardalsá og fjótlega eftir það er beygt til vinstri af veginum á greinilegan slóða sem liggur inn dalinn (sjá akstursleið á mynd). Mikilvægt er að átta sig á því að hér er átt við hinn upprunalega Búðardal, en ekki kaupstaðinn Búðardal. Nokkrir afleggjarar liggja niður að ánni en forðast skal að taka þá, þess í stað skal halda áfram og taka þá leið sem liggur eilítið upp hlíðina. Henni er svo fylgt þangað til að ekkert annað er í boði en að taka vinstri beygju niður að ánni. Svo er keyrt meðfram ánni eins langt og ökutækið leyfir. Í miklum snjó má vera að ekki gangi jafnauðveldlega að komast þetta og í frumferðinni.
Eftir að bílnum er lagt er gengið nokkurn veginn samhliða ánni (sjá mynd af gönguleið) að upphafi gilsins. Þessi ganga tók okkur um 15 mínútur, en snjór var lítill þannig að eitthvað gæti þetta lengst ef menn þurfa að paufast.
Um leiðina
Við skiptum leiðinni í tvær spannir (sjá yfirlitsmynd af leiðinni) en áður en komið er að fyrri spönn þá eru nokkur höft sem þarf að komast upp. Aðstæður og viðhorf til einferða munu ráða því hvað þau höft munu taka langan tíma. Gilið er tilkomumikið og því ærin ástæða að njóta og flýta sér ekki um of.
Fyrri spönn eru tæpir 30 metrar og ef frá eru taldar nokkrar hreyfingar í lokin þá er hún þægilegur þristur en fær plúsinn fyrir lokapústin. Þá tekur aftur við göngutúr en ekki er hann langur þar sem núna blasir fjarsjóðurinn við.
Seinni spönn eru rúmir 50 metrar. Í frumferð var það meðvituð ákvörðun að klifra upp hægri hliðina til að reyna halda gráðunni í WI3+ svo að leiðin öll gæti fengið þá gráðun. Það tókst. Eflaust hjálpaði til að mikill ís hafði byggst upp í leiðinni og kannski er þetta undirgráðun þar sem hópurinn var búinn að vera klifra stanslaust í marga daga. Vert er að benda á að hægur vandi er að setja upp akkeri á miðri leið, ef úthaldið leyfir ekki svona langa spönn.
Þegar upp er komið er hægur vandi að koma sér úr gilinu og arka aftur að bílnum (sjá mynd af göngukorti). Í frumferð tók aðeins 23 mínútur að ganga til baka þar sem bílnum hafði verið lagt. Spilaði þar líklega inní að klifrarar voru í einstaklega góðu skapi eftir að hafa upplifað stórkostlegt ævintýri í fjallasal.
Sagan á bak við leiðina
Halldór og Jon höfðu rekið augun í efsta hluta fossins fjórum dögum áður þegar þeir voru í könnunarleiðangri um Klofningsnesið. Eftir að hafa skoðað fossinn með dróna og staðfest að þetta væri spennandi leið þá var kvöldinu eytt í að finna leið að gilinu. Það reyndist erfitt þar sem ekki var hægt að keyra jeppann að ánni austan megin frá (þar sem þeir voru staðsettir) og áin allt of breið og vatnsmikil til að vaða hana. Það var gengið upp og niður með ánni en hvergi fannst veikleiki til að komast yfir.
Þegar myndskeiðin úr drónanum voru skoðuð betur seinna um kvöldið kom tvennt í ljós. Fossinn þurfti meiri tíma til að frjósa (hann var opinn á þó nokkrum stöðum) og það var greinilegur jeppaslóði í hlíðinni hinum megin við ána! Það var því ákveðið að gefa fossinum aðra fjóra daga af frosti og reyna á lukkuna hinum megin við ána. Það reyndist rétt ákvörðun.
Nafnið Fáfnir þótti við hæfi fyrir þessa leið þar sem í goðafræðinni var Fáfnir stór dreki sem lá á gulli. Að klífa þennan foss var eins og að leggja Fáfni að velli og uppskera gullið.
FF (Frumferð): Halldór Fannar, Ignacio Livianos og Jonathan Lander, 10. janúar 2026
| Klifursvæði | Klofningsnes |
| Svæði | Búðardalur |
| Tegund | Ice Climbing |
| Merkingar |









