Svínarí WI 3
Svínadalurinn geymir þó nokkra fossa og þetta er sá fyrsti sem vegfarendur taka venjulega eftir þegar keyrt er í norður frá Búðardal. Aðkoman er einstaklega þægileg þar sem góður slóði liggur af Vestfjarðarvegi (60) og endar við fossinn (sjá yfirlitskort). Gangan er þá bara 5 mínútur. Í miklum snjó gæti þurft að stöðva bílinn fyrr og gangan yrði þá eitthvað lengri.
Um leiðina
Fossinn er breiður og býður upp á þægilegt WI3 klifur. Hægt er að velja erfiðari útgáfur, sérstaklega um miðbik leiðarinnar þar sem við fórum upp ísvegg en það er auðvelt að komast hjá þessu með því að halda sig lengra til vinstri í klifrinu. Leiðin er rúmir 65 metrar og væri því hentugt að notast við 70m línur eða skipta klifrinu í tvær spannir.
Í frumferð var notast við tvær 60m línur og sígið niður á þeim frá toppi. Með tognun á línunum og nokkrum tilfæringum þá tókst að komast niður án þess að þurfa gera tvö sigakkeri.
Sagan á bak við leiðina
Þetta var fyrsti fossinn sem við sáum þegar við keyrðum norður Svíndalinn frá bækistöðvum okkar í Búðardal. Klifurfélagi minn, Jon Lander, hafði á orði að við myndum svo örugglega sjá annan mun flottari eftir bara örlítið lengri keyrslu. Við ákváðum að hunsa þessi spádómsorð og skelltum okkur í fossinn, enda gott að hita upp í svona skemmtiklifri.
Nafnið kemur til af tvennu. Okkur finnst við hæfi að leiðirnar í Svíndal séu í svína-þema og svo upplifðum við töluvert svínarí því fossinn var lengri en 60 metrar, sem við höfðum alls ekki reiknað með. Við settum því upp akkeri fyrir næstu spönn þegar línan kláraðist og vorum þá staðsettir neðan við ísbungu sem við sáum ekki yfir. En við klifurðum svo bara fimm metra í viðbót – því þegar við komum upp fyrir bunguna þá var ekkert eftir nema göngutúr á ís. Við þetta bættist svo annað svínari, því spádómsorðin rættust. Rétt norðan við þennan foss er Drífandi í Svínadal. En það er svo önnur saga.
FF (Frumferð): Halldór Fannar og Jonathan Lander, 7. janúar 2026
| Klifursvæði | Klofningsnes |
| Svæði | Svínadalur |
| Tegund | Ice Climbing |
| Merkingar |















Comments