Sturtan WI 5

Sturtan WI5 (70m) í Veðurárdal. Lengra í dalinn en Björn Bóndi WI3.

Aðgengi: vegurinn í þröng er orðinn góður og fært á venjulegum 4×4 þegar það er enginn eða lítinn snjór. Svæðið er notað mikið fyrir ferðaþjónustu (íshella og jöklagöngur).

Gengið á túristaleið yfir brú við Veðurárdalsá og inn dalinn norðan megin við ána.

Þvera þarf ána aftur til að komast í klifurleiðum.

Aðkoma í frumferð var eftir grænu línunni (30-50°, 1 sig). Rauða línan sýnir beinni línu og inniheldur WI 2 haft í bröttu og þröngu gili sem frumferðar teymið sá ekki alveg inn í.

FF: Rory Harrison, Uri Castells og Camille Verot, febrúar 2026

Klifursvæði Öræfi, Austur og Suðursveit
Svæði Fellsfjöll
Tegund Ice Climbing
Merkingar

2 related routes

Sturtan WI 5

Sturtan WI5 (70m) í Veðurárdal. Lengra í dalinn en Björn Bóndi WI3.

Aðgengi: vegurinn í þröng er orðinn góður og fært á venjulegum 4×4 þegar það er enginn eða lítinn snjór. Svæðið er notað mikið fyrir ferðaþjónustu (íshella og jöklagöngur).

Gengið á túristaleið yfir brú við Veðurárdalsá og inn dalinn norðan megin við ána.

Þvera þarf ána aftur til að komast í klifurleiðum.

Aðkoma í frumferð var eftir grænu línunni (30-50°, 1 sig). Rauða línan sýnir beinni línu og inniheldur WI 2 haft í bröttu og þröngu gili sem frumferðar teymið sá ekki alveg inn í.

FF: Rory Harrison, Uri Castells og Camille Verot, febrúar 2026

Björn Bóndi WI 3

WI 3

Sector,  Öræfi,  Austur og Suðursveit.

Leiðin liggur inni í Veðurárdal í Fellsfjöllum.  Innan svæðis sem oftast gengur undir nafninu Þröng.  Jeppaslóði liggur frá þjóðvegi 1 og norður með Fellsfjöllum  mest alla leiðina að dalnum þar til komið er að skilti frá Vatnjökulsþjóðgarði.   þaðan verður að ganga í um 20 mín þar til komið er að Veðurárdalsánni.  ATH ! Jeppaslóðinn getur verið illfær og getur krafist ökutækis með breyttum eiginleikum.  Klifursvæðið liggur í suðurhlíð Veðurárdals  og er því í skjóli frá sól og getur því verið í aðstæðum þó margt annað sé ekki komið inn. Best er að nálgast leiðina með því að fara yfir veðurárdalsána og ganga með norðurhlið ánnar þar til að komið er að „upptökum klifursvæðisins“ þar er möguleiki á að setja á sig brodda og ganga á snjó/ís upp hlíðina þar til leiðin hefst ef aðstæður leyfa.

(meira…)

Skildu eftir svar