Perlur fyrir svín WI 3

Perlur fyrir Svín

Þegar keyrt er aðeins lengra í norður eftir Vestfjarðarvegi (60), framhjá Svínarii, blasir við tilkomumikið gil á hægri hönd, Drífandagil. Í þetta gil fellur fossinn Drífandi í Svínadal með tilþrifum. Bílnum er lagt á stóru bílastæði fyrir neðan gilið og gangan meðfram ánni að fyrsta haftinu er um 10 mínútur (sjá yfirlitskort). 

Um leiðina

Fossinn er vatnsmikill og þarf því gott frost í dágóðan tíma til að hann komst í aðstæður, sérstaklega efri hlutinn. Fyrsta haftið er aðeins um nokkrir metrar og má auðveldlega einfara eða komast hjá því með því að klöngrast upp grjótið öðru hvoru megin við. Eftir það er gengið eftir ánni um 30 metra og þá er komið að fyrri hluta leiðarinnar sem skiptist í tvö jafnstór höft. Klifrið er þægilegt WI3 og ef tryggingum er stillt í hóf þá má tengja þessi höft í eina spönn og kostar það 50-55m af línu. Ef klifrarar kjósa heldur, þá er auðsótt að skipta þessu í tvær spannir þar sem á milli haftanna tveggja eru margir staðir til að koma sér þægilega fyrir í stansi.

Þegar þessi höft hafa verið afgreidd er komið upp á brúnina þar sem aðalspönnin blasir við. Gengið er eftir ánni, sennilega aðra 30 metra, til að koma sér fyrir og hefja seinni hluta ævintýrisins. Gott er að taka sér stöðu öðru hvoru megin við fossinn þar sem ísinn sem myndast er stórfenglegur og getur fallið með miklum látum. Efri spönnin býður upp á klfur frá WI3 og upp í WI4, allt eftir því hvaða leið er valin. Í frumferðinni voru báðir möguleikarnir klifraðir, en auðveldari leiðin er lengra til vinstri í fossinum. Sextíu metra lína dugir eiginlega ákkúrat upp á topp. Ef notaðar eru tvær slíka línur þá má síga niður aðalspönnina í einu, og eftir göngutúr og akkerissmíðar, síga niður fyrri höftin bæði með öðru sígi. Líklega er hægt að brölta niður hlíðina í stað þess að taka seinna sigið en ekki er mælt með því. Haft var á orði í frumferðinni að sá WI3 klifrari sem fer þessa leið mun taka ástfóstri við ísklifur, ef hann hefur ekki gert það nú þegar. Þetta er einn magnaðasti þristur landsins.

Sagan á bak við leiðina

Halldór og Jon tóku fyrst eftir fossinum eftir að hafa frumfarið Svínarí nokkru sunnar í dalnum. Þeir komu aftur næsta dag og klifruðu þá fyrsta helminginn af leiðinni en komust að því að seinni hlutinn var í mjög svo varasömum aðstæðum. Stór stykki af ís hrundu niður (á stærð við frystikistur) og vatnið sprautaðist víða úr fossinum. Var þá tvennt ákveðið: að gefa fossinum nokkra daga í viðbót og klifra hann við sólarupprás.

Það var svo þremur dögum síðar, eftir góðan frostakafla, sem þeir lögðu af stað í kolniðamyrkri. Ignacio Livianos hafði bæst í hópinn. Veðurspáin sagði átta stiga frost og það passaði við mælinn í bílnum. Halldór tók fyrri spönnina, sem hann þekkti orðið vel og kláraði því fljótt þrátt fyrir að nota höfuðljós til að sjá handa sinna skil. Við dögun voru þeir komnir að aðalspönninni sem leit nú miklu betur út en áður. Ignacio leidda hana fumlaust á tveimur línum sem hann tryggði annars vegar til vinstri og hina nær miðju svo hægt væri að klifra fossinn sem WI3 og WI4, sem þeir Jon og Halldór gerðu.

Leiðin er í Svínadal og nafnið vísar til þess. Nafnið fangar líka þá staðreynd að hægt sé að komast upp þennan kraftmikla foss án þess að þurfa bregða fyrir sig erfiðu ísklifri – þótt spannirnar séu vissulega langar.

FF (Frumferð): Halldór Fannar, Ignacio Livianos og Jonathan Lander, 11. janúar 2026

Klifursvæði Klofningsnes
Svæði Svínadalur
Tegund Ice Climbing
Merkingar

Myndbönd

2 related routes

Svínarí WI 3

Svínadalurinn geymir þó nokkra fossa og þetta er sá fyrsti sem vegfarendur taka venjulega eftir þegar keyrt er í norður frá Búðardal. Aðkoman er einstaklega þægileg þar sem góður slóði liggur af Vestfjarðarvegi (60) og endar við fossinn (sjá yfirlitskort). Gangan er þá bara 5 mínútur. Í miklum snjó gæti þurft að stöðva bílinn fyrr og gangan yrði þá eitthvað lengri. 

Um leiðina

Fossinn er breiður og býður upp á þægilegt WI3 klifur. Hægt er að velja erfiðari útgáfur, sérstaklega um miðbik leiðarinnar þar sem við fórum upp ísvegg en það er auðvelt að komast hjá þessu með því að halda sig lengra til vinstri í klifrinu. Leiðin er rúmir 65 metrar og væri því hentugt að notast við 70m línur eða skipta klifrinu í tvær spannir.

Í frumferð var notast við tvær 60m línur og sígið niður á þeim frá toppi. Með tognun á línunum og nokkrum tilfæringum þá tókst að komast niður án þess að þurfa gera tvö sigakkeri.

Sagan á bak við leiðina

Þetta var fyrsti fossinn sem við sáum þegar við keyrðum norður Svíndalinn frá bækistöðvum okkar í Búðardal. Klifurfélagi minn, Jon Lander, hafði á orði að við myndum svo örugglega sjá annan mun flottari eftir bara örlítið lengri keyrslu. Við ákváðum að hunsa þessi spádómsorð og skelltum okkur í fossinn, enda gott að hita upp í svona skemmtiklifri.

Nafnið kemur til af tvennu. Okkur finnst við hæfi að leiðirnar í Svíndal séu í svína-þema og svo upplifðum við töluvert svínarí því fossinn var lengri en 60 metrar, sem við höfðum alls ekki reiknað með. Við settum því upp akkeri fyrir næstu spönn þegar línan kláraðist og vorum þá staðsettir neðan við ísbungu sem við sáum ekki yfir. En við klifurðum svo bara fimm metra í viðbót – því þegar við komum upp fyrir bunguna þá var ekkert eftir nema göngutúr á ís. Við þetta bættist svo annað svínari, því spádómsorðin rættust. Rétt norðan við þennan foss er Drífandi í Svínadal. En það er svo önnur saga.

FF (Frumferð): Halldór Fannar og Jonathan Lander, 7. janúar 2026

Comments

Skildu eftir svar