Jólabónus WI 4

Keyrt er eftir Skarðsströnd til vesturs (vegur 590) þar til komið er að afleggjaranum fyrir Innri-Fagradal. Þar er keyrt inneftir en beygt til vinstri (í gegnum hlið) áður en komið er að bænum.  Á þessum tímapunkti ætti Bæjargilið að sjást nokkuð vel þegar horft er til austurs í fjallshlíðina. Bílnum er lagt beint fyrir neðan fossinn (sjá yfirlitsmynd) og er gangan að honum aðeins nokkrar mínútur.

Um leiðina

Leiðin skiptist í tvö höft, þar sem það fyrra er styttra og aðeins aflíðandi.  Það seinna er lengra, rúmir 20 metrar, og allbratt. Í frumferð var það töluvert kertað og innihélt mikið af blómkálshausum. Þetta var skemmtilegt klifur og í raun bara nokkuð þægilegt fyrir þá sem eru vanir slíkum aðstæðum.  Leiðin er í fallegu gili með óvenju heillegu bergi. Rauð rönd í berginu við lok leiðarinnar gefur henni mikinn karakter (sjá mynd). Þegar seinna haftinu lýkur er hægt að gera sigakkeri á brúninni og síga alla leiðina í einu sigi á tveimur 60m línum.

Sagan á bak við leiðina

Halldór og Jon voru báðir að glíma við líkamleg vandamál þegar lagt var í leiðina. Halldór hafði verið haltrandi síðustu daga, sem hann hafði engar skýringar á, en sem betur fer hvarf þetta eins og dögg fyrir sólu í bröttum ís (sem gerði hann ennþá meira sólginn í slíkann ís – og finnst mörgum varla á bætandi). Jon var ennþá að jafna sig eftir skurðargerð á hnéi. Þeim leið því eins og tveimur öryrkjum. Nokkrum vikum áður höfðu örykjar á Íslandi fengið jólabónus í fyrsta skipti og þótti þeim því tilvalið að þessi leið yrði skírð jólabónus.

FF (Frumferð): Halldór Fannar og Jonathan Lander, 8. janúar 2026

Klifursvæði Klofningsnes
Svæði Fagridalur
Tegund Ice Climbing
Merkingar

Myndbönd

1 related routes

Comments

Skildu eftir svar