Bangsímon

Leið númer 60 á mynd

Fyrst farin: jan. 1976, Helgi Benediktsson, Kjartan Blöndahl, Pétur Ásbjörnsson.

Bratt snjóklifur upp meðfram klettunum.

  1. gráða
Klifursvæði Esja
Svæði Hrútadalur
Tegund Alpine
Merkingar

20 related routes

Il Mappazzone WI 3

Route number 60a.

2 pitches 140m  WI3 snow, mixte

p1 climb the ice and then traverse to the next snow field on the right

p2 straight up on the snow field crossing a steep rock band and leading to the left to climb a dihedral with a bit of mixte then cross the cornice

 

FF Matteo Meucci and Marco Porta 22/04/2017

Hrútshorn WI 4+

Route 64c. Left of route 64a Bekri. 240m in 4 pitches

P1: we took one of the right pillar (WI4+ 10m) and then 15m of mixt climbing then snow slope. Belay on a rock with sling and cams. there is an easier pillar on the left but then a longer traverse to the right. 55m

P2: long traverse on easy ledge and then straight the wall with some ice (WI4). Belay on a horizontal crack. 80m

P3: left of the belay, then a kind of ramp to the right (mixt) until the next wall (WI4). Belay on a rock and screws. 40m

P4: easy slope with some steps on ice until the top (WI2) 70m

FF: Matteo Meucci & Sigurður Ýmir Richter, 25. mars 2018

 

Gjöfin M 7+

Leið númer 70

Tvær spannir, sú fyrri M 7/8, brött. Sú seinni M 6 yfir í WI 5/6, stutt mix yfir í langan, brattan og þunnan ís. 120m brölt upp á topp eftir það.

FF: Matteo Meucci og Þorsteinn Cameron, 06.03 2017

Bull by the horn WI 2

Leið númer 71,

FF: Matteo Meucci, William Edwards og  George Fuest. 23.02 2017

Spenntir könnuðir WI 4+

Leið númer 66d

WI4/4+ 70 m, tvær spannir

FF: Matteo Meucci, Jason Cook and Maggie Tu, 21.02 2017

Hrútskýring WI 4+

Leið númer 66b. á mynd

70m, tvær spannir, 110m ef snjóbrekku upp að hengju er bætt við.
Fyrsta spönn byrjar á nokkuð þægilegu klifri upp á litla snjósyllu, þaðan tekur við nokkuð bratt og samfellt klifur. Næsta spönn er aðeins strembnari en með ágætis hvíldum inn á milli.

Orð ársins 2016 er orðið hrútskýring. Orðið var valið í samkeppni sem Ríkisútvarpið, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Mímir – félag stúdenta í íslenskum fræðum stóðu fyrir. Úrslit keppninar voru  kynnt sama dag og leiðin var frumfarin.
Orðið hrútskýring er íslenskun á enska nýyrðinu mansplaining. Orðið lýsir því þegar að karlmaður útskýrir eitthvað fyrir kvennmanni á yfirlætisfullan eða lítilækkandi máta.
http://www.ruv.is/frett/ord-arsins-2016-hrutskyring?qt-sarpur_frontpage=3

FA: Jónas G. Sigurðsson og Bjartur Týr Ólafsson 6. jan 2017.

Hvítur refur WI 5

Leið númer 66a. á mynd

110m, 3 spannir, fyrst þægileg WI 4 upp í snjóbrekku og þægilegan stans, svo tekur við WI 5- spönn, fyrst þunnt kerti sem nær sennilega ekki alltaf niður og svo aðeins feitara kerti sem er samt ekki svo feitt. Síðasta spönn upp að hengju er WI 4 eins og fyrsta spönn.
Frumferðar teymið sá ref hlaupa um dalinn á leiðinni upp að ísnum og fékk leiðin nafn til að tengja við dalinn.
FF: Matteo Meucci and Lorenzo Mazzotta 06. jan 2017

Kverkin WI 3

Leið númer 69

Í kverk á móti „Handan við hornið“ mynda tvö íshöft leiðina.

Fyrst farin: 11. mai 1983, Ari Trausti Guðmundsson, Olgeir Sigmarsson.

Handan við hornið WI 4

Leið númer 68

Brattur ísfoss. Erfiðastur um miðbik leiðarinnar.

Fyrst farin: 27. jan. 1980, Torfi Hjaltason, Snævarr Guðmundsson.

 

Klakahöllin WI 5

Leið númer 64b. á mynd, hægra (austan) megin við Stynjanda

Byrjar í stórri hvelfingu austan við Þvergil.

Jón Haukur skrifaði greinina „Fjórtán feitir fílar á flugi, eða…“ um ferðina og birtist hún í ársriti Ísalp 1992 http://www.isalp.is/arsrit

FF: Páll Sveinsson, Guðmundur Helgi og Jón Haukur, 10. maí 1992

Bekri M 4+

Leið númer 64a. á mynd, er á horninu við Klakahallarhvelfinguna, austan megin við Stynjanda

M 4/5 – WI 4

Leiðin er í Hrútadal í Esju og um klukkustundar gangur er upp að henni frá Eyrarfjallsvegi (460) í Miðdal.

Leiðin var klifin í fjórum spönnum.

#1 55 metrar, M4/5. Byrjað á klettum en endað á þunnum ís undir bröttu íshafti.
#2 50 metrar, WI 4. 20 metra íshaft og snjóklifur þar fyrir ofan.
#3 50 metrar, Snjóklifur með WI 3 hafti.
#4 25 metrar, snjóklifur sem endaði á hengjuklifri.

FF: Freyr Ingi Björnsson, Halldór Albertsson

Þjóðleið 3 WI 3

Leið merkt númer 67.

Fyrst upp bratt íshaft, síðan eftir syllu uns komið er að breiðu gili. Opin leið.

Upprunalega útgáfan er sú sem er merkt með b. Nýrra afbrygðið er merkt með a. og var frumfarið í janúar 2017 af Matteo Meucci, Lorenzo Mazzotta og Sigurði Ragnarssyni.  Nýja afbrygðið er ca WI 4.

Fyrst farin: 21. nóv. 1983, Höskuldur Gylfason, Snævarr Guðmundsson.

Hrútsauga WI 5

Leið númer 66c.

Hún er 100 m löng og byrjar nokkrum metrum austan við Þjóðleið 3. Fyrst eru 2 WI 4-5 ísspannir, síðan löng snjóbrekka sem endar í hengju. Þegar leiðin var fyrst klifin var hún mjög tortryggð.

FF: Páll Sveinsson og Guðmundur Helgi, 1992, 100m

Stynjandi WI 4

Leið númer 66

Afbrigði af leið nr. 65 (Þvergil). Farið er upp vinstri (eystri) vegg gilsins, upp bratt ísþil.

Fyrst farin: mars 1984, Hreinn Magnússon, Höskuldur Gylfason.

Þvergil WI 3

Leið númer 65

Ísfossinn neðst er aðal „vandamál“ leiðarinnar, en stundum hverfur hann í snjó þegar kemur fram á veturinn. Hægt er að fara vinstra megin við ísfossinn og getur það verið auðveldara.

Fyrst farin: 21. nóv. 1983, Ágúst Guðmundsson, Pétur Ásbjörnsson, Örvar Aðalsteinsson.

Suðurgil

Leið númer 64

Fyrst farin: 27. jan.1980, félagar í Ísalp.

Auðveldasta snjógilið af þessum þremur. (Norður-, Mið-, og Suðurgil)

  1. gráða

Miðgil

Leið númer 63 á mynd

Einföld snjóleið, oft hengja efst.

Fyrst farin: 29. apr. 1979,Lennart Aberg.

  1. gráða

Norðurgil

Leið númer 62 á mynd

Gilið verdur brattara eftir því sem ofar dregur. Oft stór hengja efst. Opin og alvarleg snjóleið.

Fyrst farin: 29. april 1979, Hreinn Magnússon, Snævarr Guðmundsson.

 

Norðurgil extreme WI 4

Leið númer 61

Afbrygði af Norðurgili (62). Sé vinstri útgáfan valin, þá bætast nokkur stíf höft upp ísuð klettabelti í austurvegg Norðurgils. Stór hengja

Fyrst farin: 27. jan.1980, Hermann Valsson, Daníel Helgason.

Bangsímon

Leið númer 60 á mynd

Fyrst farin: jan. 1976, Helgi Benediktsson, Kjartan Blöndahl, Pétur Ásbjörnsson.

Bratt snjóklifur upp meðfram klettunum.

  1. gráða

Skildu eftir svar