Var að berast – Fjallakofinn bíður í opið hús á föstudaginn

Home Umræður Umræður Keypt & selt Var að berast – Fjallakofinn bíður í opið hús á föstudaginn

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46512
    0309673729
    Participant

    FRÉTTATILKYNNING ………… OPIÐ HÚS í FJALLAKOFANUM N.K. FÖSTUDAG 24. Nóvember kl: 17.00

    Kæru vinir,

    FJALLAKOFINN og ROCK- SNAKE vilja kynna þessa frábæru sérhæfðu bakpoka fyrir ykkur sem eruð

    vakandi alla daga ársins fyrir því nýjasta sem er að gerast á þessum útivistarmarkaði . Ef þið hafið 1 mín.

    aflögu þá ættuð þið að kíkja inn á vefslóðina http://www.rock-snake.com og kíkja síðan í heimsókn hingað

    í Fjallakofann n.k. föstudag milli 17 – 19 því að þá verður bara gaman og heilmikill fróðleikur hjá okkur .

    24. Nóvember kl: 17 – 19 ætlar FJALLAKOFINN að bjóða ykkur í heimsókn því að þá verða þeir André og

    Heini frá ROCK – SNAKE hér í kofanum til þess að kynna fyrir ykkur allsérstæða bakpoka sem eru sniðnir

    fyrir alla alvöru Fjallafara s.s. Björgunarsveitir, Alpaklúbbsmeðlimi, Útivistar meðlimi , Ferðafélags meðlimi,

    Skáta , starfsmenn ýmissa ferðaskipuleggjenda , og m.fleiri …………..

    Fjallakofinn býður upp á jólaöl og fjallasnarl ……………… og auðvitað verður spiluð “ Tírólsk fjallatónlist “ .

    Þarna mun Hjálparsveit Skáta í Kópavogi taka við 5 stk. af Rock-Snake art. Python 45+ bakpokanum…..

    Það er alveg þess virði að kíkja í Fjallakofann n.k. Föstudag klukkan 17 – 19 þið sjáið ekki eftir því …..

    En á sama tíma og við kynnum þessa frábæru bakpoka þá er að sjálfsögðu hægt að gera jóla innkaupin

    eða skrifa niður allt það sem maður vill hafa á jólagjafalistanum sínum ………

    Það væri gaman ef þið gætuð látið vita hvort og hve margir af ykkur hafið hug á að mæta …………….

    Með fjallakveðju,

    Starfsfólk , Andre og Heini,

    Fjallakofinn

    #50095
    0607625979
    Meðlimur

    Hvar stendur þessi fjallakofi ?

2 umræða - 1 til 2 (af 2)
  • You must be logged in to reply to this topic.