Home › Umræður › Umræður › Skíði og bretti › Opið í bláfjöllum
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
7. apríl, 2005 at 13:44 #46085
2806763069MeðlimurJó, jó það er opið í fjöllunum, hvað segir Arni um færið?
7. apríl, 2005 at 16:00 #49619
0801667969MeðlimurNánast logn og sól skín í heiði. Færið fínt í Kóngsgilinu og þeir sem treysta sér geta farið út í djúpa hálfs meters mjöllina utan troðinna brauta, auðvitað á eigin ábyrgð. Nei án gríns færið er frábært bæði utan og inna brautar, eitthvað grjót neðst í gilinu. Ég finn að ég er farin að brenna all illilega enda sólin sterk.
Kv. Árni Alf.
7. apríl, 2005 at 23:11 #49620
0801667969MeðlimurVerð nú að segja að maður er endurnærður eftir góðan dag á skíðum. Vona að Ívar, Steppo og öll hin hundruðin sem mættu í Fjöllin séu sama sinnis. Í morgun þótti ekki stætt á því að opna vegna manneklu en áhugamenn um skíðamennsku lögðust á eitt svo það tókst að opna.
Manneklan stafar af því að ekki eru til aurar til að borga fólki mannsæmandi kaup. Á meðan er öll Bláfjallnefnd (ca. 10 manns) í Frakklandi á einhverri sýningu. Sú ferð kostar eflaust einhvern skilding. Hverjir sitja í þessari nefnd eða hvert hlutverk hennar er hef ég ekki hugmynd um. Ég vinn bara í Bláfjöllum. Ég þykist viss um að þessum aurum væri betur varið í okkur sem látum hlutina ganga upp en einhverjum sem hvorki kunna á skíði eða vita hvernig skíðalyfta eða troðari virkar.
Kv. Árni Alf.
7. apríl, 2005 at 23:19 #49621
3008774949MeðlimurFrábært færi í fjallinu….sennilega síðasti góði dagurinn
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.