Opið í bláfjöllum

Home Umræður Umræður Skíði og bretti Opið í bláfjöllum

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46085
    2806763069
    Meðlimur

    Jó, jó það er opið í fjöllunum, hvað segir Arni um færið?

    #49619
    0801667969
    Meðlimur

    Nánast logn og sól skín í heiði. Færið fínt í Kóngsgilinu og þeir sem treysta sér geta farið út í djúpa hálfs meters mjöllina utan troðinna brauta, auðvitað á eigin ábyrgð. Nei án gríns færið er frábært bæði utan og inna brautar, eitthvað grjót neðst í gilinu. Ég finn að ég er farin að brenna all illilega enda sólin sterk.

    Kv. Árni Alf.

    #49620
    0801667969
    Meðlimur

    Verð nú að segja að maður er endurnærður eftir góðan dag á skíðum. Vona að Ívar, Steppo og öll hin hundruðin sem mættu í Fjöllin séu sama sinnis. Í morgun þótti ekki stætt á því að opna vegna manneklu en áhugamenn um skíðamennsku lögðust á eitt svo það tókst að opna.

    Manneklan stafar af því að ekki eru til aurar til að borga fólki mannsæmandi kaup. Á meðan er öll Bláfjallnefnd (ca. 10 manns) í Frakklandi á einhverri sýningu. Sú ferð kostar eflaust einhvern skilding. Hverjir sitja í þessari nefnd eða hvert hlutverk hennar er hef ég ekki hugmynd um. Ég vinn bara í Bláfjöllum. Ég þykist viss um að þessum aurum væri betur varið í okkur sem látum hlutina ganga upp en einhverjum sem hvorki kunna á skíði eða vita hvernig skíðalyfta eða troðari virkar.

    Kv. Árni Alf.

    #49621
    3008774949
    Meðlimur

    Frábært færi í fjallinu….sennilega síðasti góði dagurinn

4 umræða - 1 til 4 (af 4)
  • You must be logged in to reply to this topic.