Mánudagspríl

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Mánudagspríl

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46392

    Ég fór í dag ásamt Ása og Danna G í eftir skóla klifur í Kjósarskarðinu. Klifruðum þar foss sem að er austan megin í skarðinu. Alla vega þá var þetta skemmtileg 40 metra 4.gráða og svo snjógil/gljúfur ofan við með nokkrum höftum sem voru annars á kafi í snjó. Ótrúlegt að þessi leið skuli ekki vera klassíker en ég veit bara um einn hóp sem hefur farið í hana áður, en þar var Ívar á ferð.

    20min labb upp að leiðinni frá einhverjum sumarbústöðum(styttra en að Spora). Myndir koma í kvöld.

    Kv. Ági

    #53980
    #53981
    Ólafur
    Participant

    Ég sé ekki betur en að þetta sé hin últra-klassíska leið ‘Áslákur’ en henni var lýst í ársritinu fyrir nokkrum árum. Þar er einnig tilgreint hvað gera skuli að klifri loknu til að leiðin teljist fullklifin.

    Ég átti bágt með að trúa að við værum að frumfara þessa leið þarna fyrir nokkrum árum þegar ég klifraði hana, hún blasir við! Ég reyndi að rannsaka málið lauslega en fann ekkert skráð um hana.

    #53982
    Freyr Ingi
    Participant

    ok, er þetta sumsé Áslákur.

    Ef að rétt að reynist að leiðin sé ekki fullkláruð nema með viðkomu á sveitakránni í Mosó þá gæti ég trúað að hún hafi ekki verið kláruð nema einu sinni.

    Hálfkláruð töluvert oftar. Allavega hef ég farið þarna 3 sinnum.

    Gaman!

    #53983

    Flott að hafa nafnið á hreinu. Eins og ég sagði þá er merkilegt að leiðin sé ekki klassík.

    Flott leið. Hún verður kláruð að fullnustu næst.

    Ági

5 umræða - 1 til 5 (af 5)
  • You must be logged in to reply to this topic.