Home › Umræður › Umræður › Klettaklifur › Heljaregg
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
26. júní, 2008 at 09:18 #47125
RobbiParticipantVið Haukur skelltum okkur í Heljareggina eftir vinnu í gær. Aðkoman var í grenjandi rigningu og vorum við orðnir hundblautir þegar við komum upp að leiðinni, svo stytti upp og sólin bakaði okkur alla leið upp á topp.
Við vorum 5 tíma úr bí í bíl, vorum ekkert að flýta okkur og lögðum á vitlausum stað. Mæli meðissu.Robbi
26. júní, 2008 at 12:44 #52881
2806763069MeðlimurEkkert gubb?
26. júní, 2008 at 12:48 #52882
RobbiParticipantHaha. Haukur fékk væna slummu á síðuna og á bakpokann. Honum brá svo hrillilega að ég hélt hann ætlaði aldrei að ná sér.
robbi
26. júní, 2008 at 16:40 #52883
2303842159MeðlimurÉg hata múkka… og strumpa líka
27. júní, 2008 at 12:04 #52884
Siggi TommiParticipantRobbi hefur vonandi rifjað upp ógurlegu vísindin sem við beittum í Þorgeirsfelli um árið.
Þá var útbúin steinslöngva með 1kg þungum hvössum steini með ca. 1m löngum prússík.
Með þessu tóli var hægt að vippa grjótinu upp á næstu syllu til að fæla pláguna burt og endurnýta steininn eins oft og verða vildi.Frá vistfræðilegum sjónarmiðum var þetta e.t.v. ekki mjög vinsælt þar sem þó nokkur fjöldi eggja varð fyrir varanlegum brotskemmdum í kjölfarið en væntanlega gráta fæstir klifrarar þau jaðaráhrif.
28. júní, 2008 at 15:13 #52885
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantÉg held að múkkafælan sé ennþá til heima. Algjört möst að nota áður en að skriðið er í gegnum æluhreiður.
18. ágúst, 2009 at 17:08 #54429
stebbiMeðlimurLumiði nokkuð á ljósmynd af ykkur með múkkafæluna hangandi í sigbeltinu?
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.