Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Fréttir af ammerísku ísklifrurunum
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
20. febrúar, 2012 at 09:39 #45708
0304724629MeðlimurÞau Kitty Calhoun, Jay Smith og Pat & Dawn Ormond hafa dvalið í góðu yfirlæti á Ísafirði síðustu daga. Þau hafa verið að raða inn nýjum leiðum í Dýrafirði. Ég og Danny (,,Kanadi“ sem býr hér) fórum með þeim í gær inn í Hestfjörð að tékka á flottum mix vegg en það var of hlýtt og leiðinda slydda.
Fórum þá í Önundarfjörð að tékka á gömlu prósjekti en þar var kaf snjókoma og spýjur á fimm mínútna fresti niður ísleiðirnar. Fórum þá bara í frekari bíltúr að tékka á nýju stöffi.
Bauð þeim svo í mat í gær og Jay sýndi okkur myndir úr Garðshvilft í Dýrafirði. Svakalega sexí 70 metra leiðir þjappaðar saman á litlu svæði. Þau sögðu að ef þetta svæði væri í henni Ammmeríku, þá væri biðröð allar helgar. Þau fóru aftur þangað snemma í morgun til að bæta í safnið. Nú er logn, mínus tvær og snjókoma.
Veit einhver hvað varð um ítalina sem voru í ísvandræðum?
kv, rok
21. febrúar, 2012 at 17:00 #57521
0304724629MeðlimurJæja best að ég svari mér bara sjálfur.
fór í dag með þeim á Óshlíðina. Átti að reyna við eina drjólann í þessari hvilft sem ekki hefur verið klifinn. Hann reyndist ansi blautur, þannig að aðrar leiðir voru klifraðar.
Þau eru mjög ánægð og ætla að dvelja hér lengur. Allavega á meðan það helst frost.
21. febrúar, 2012 at 21:50 #57523
Páll SveinssonParticipantSmá öfund.
Magnað að sjá allan þennan ís.kv.
P -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.