Festival-afsláttur fyrir Ísalpara

Home Umræður Umræður Almennt Festival-afsláttur fyrir Ísalpara

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45900

    Löng leið á festival í ár og svengdin knýr dyra á leiðinni. Er ekki tilvalið að skella sér á burger eða pizzu á Höfn?

    Var að díla 35% festivalafslátt af öllum mat á nýjum hamborgara-take-away-stað á Höfn í Hornafirði þessa helgi. Þetta er lítill staður með drive-by lúgu, lítur út eins og stór pylsuvagn. En borgararnir eru fokking eðal (110g), enda var það kokkurinn á hótelinu sem opnaði búlluna og stendur við eldavélina.

    Þegar komið er inn að aðalbæjarþyrpingunni (þ.e. þegar hús sjást til beggja handa) þá er beygt til vinstri, á horninu er kaffihús í stóru timburhúsi. Akið svona 100m og þá sjáið þið staðinn á vinstri hönd. Stendur þar einn og óstuddur.

    Getið hringt í kokkinn (Jón) á undan ykkur ef þið viljið flýta fyrir: 478-1505

    Getið nýtt ykkur þetta á leiðinni úteftir eða til baka. Díllinn er í gangi þar til á mánudag. Nóg að einn sýni skírteini í bíl eða hóp.

    Svo ætla ég að fá einhvern fastan díl fyrir Ísalpara eftir þetta. Erum að ræða það.

    Góða skemmtun!!

    Barca-kveðjur… Björgvin

    #52474
    0808794749
    Meðlimur

    bjöggi. þú kemur ekkert smá sterkur inn í því að redda dílum!

    góða skemmtun og verði ykkur að hamborgara-góðu!

    #52475
    2903793189
    Meðlimur

    Fengum okkur borgara báðar leiðir. Þeir stóðu heldur betur undir væntingum. Gott framtak.

3 umræða - 1 til 3 (af 3)
  • You must be logged in to reply to this topic.