Re: svar: Til hamingju

Home Umræður Umræður Almennt Til hamingju Re: svar: Til hamingju

#47630
0309673729
Participant

Lykilorðin detta ekki út. Málið í þínu tilfelli var að þú fékkst aðgang að síðunni á meðan verið var að prófan hana. Áður en hún fór í loftið var öllum prófunar-gögnum hent, þar með talið þínu lykilorði. Síðan var raun-gögnum hlaðið inn á hana aftur.

Fyrir þá sem þekkingu hafa á, þá get ég frætt ykkur á því að lykilorð eru geymt md5-brengluð í gagnagrunni á vefþjóninum. Þannig getur enginn notað þau, þótt hann sjái þau. En að sjálfsögðu er þó engin leið að sjá þau nema að hafa beinan aðgang í grunninn.