Home › Umræður › Umræður › Skíði og bretti › Púður og snjóflóðahætta › Re: svar: Púður og snjóflóðahætta
Get tekið undir þetta með síðasta ræðumanni. Við Viðar vorum að koma úr Grafarfossinum. Ísaðstæður eru eins og best verður á kosið. Hinsvegar hefur hið sjaldgæfa púður nú fokið til og myndað væna fleka í öllum giljum. Það er því full ástæða til að fara að öllu með gát. En þar sem ekki er mikill snjór ætti að vera nokkuð auðveld að velja snjólausar/litlar leiðir upp og niður. Gleymið samt ekki að þunnir flekar bresta frekar en þykkir.
Mæli með því að síga t.d. niður út leiðunum í Villingardal til að losna við hættulegustu snjóflóðabrekkurnar.
Samt engin ástæða til að sitja heima, bara að kveikja á hausnum og passa að batteríin í ýlinum séu í lagi. Hann er svo eins og Árni bendir á frekar léleg fjárfesting ef ekki er til staðar kunnátta, skófla og stöng.
Kv.
Softarinn