Re: svar: Kortaútsala LMÍ

Home Umræður Umræður Almennt Kortaútsala LMÍ Re: svar: Kortaútsala LMÍ

#50728
2806763069
Meðlimur

Auk þess er hvergi talað um að LMÍ hætti útgáfu korta heldur einungis að stofnunin hætti sölu vegna hagsmunaárekstra við einkaaðila.

Þannig að það þarf ekki að fjárfesta í fartölvubakpoka með ísaxarfestingum alveg strax!

Við skulum vona að LMÍ haldi eitthvað áfram að gefa út kort. Kortin frá M&M eru í það minnsta stundum dálítið vafasöm. Sem dæmi komu tveir túrhestar til mín í sumar og voru mikið að furða sig á að hafa ekki fundið stíginn sem liggur upp á Hrútafjallstinda um austanvert Hafrafjallið. Gönguleiðin er merkt með rauðu á korti M&M og því ekki úr vegi að álykta sem svo að hún sé nokkuð auð fundin (og feli ekki í sér töluvert af príli í lausum skriðum eins og raunin er).

Gaman væri samt að fá nýjan kortagrunn í svona 1:50.000 með UTM. En mér skilst að LMÍ stefni ekki á UTM af einhverjum óskiljanlegum ástæðum. Líklega því GPS er eins og internetið, bara tískubóla sem á eftir að springa!

Tekur því reyndar ekki að gefa út kort þessa dagana, það verður bara að endurnýja þau strax aftur. Ef hopandi jöklar eru ekki vandamálið þá er næsta víst að það verður komið uppistöðulón sem þarf að bæta inn. Hægt væri að leysa þetta vandamál að hluta til með því að selja bara öll kort af hálendinu með bláum túss. Menn gætu þá sjálfir teiknað inn lónin!