Re: svar: Hvernig fer?

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Hvernig fer? Re: svar: Hvernig fer?

#50754
2802693959
Meðlimur

Við Leifur Örn létum ekki þessar fádæma góðu ísaaðstæður fram hjá okkur fara en héldum okkur sólarmegin og hlémegin (það var logn) fjalla. Fórum í Grafarfossinn og bjuggumst við fjölmenni enda frost nægt. Ólíkt því sem áður var (þetta er eins og með Stardalinn forðum) þá kom engin í Grafarfoss þennan fallega dag. Nægur ís í „orginalinum“ og nokkrum afbrigðum „direktsins“… og það batnar bara ef marka má kuldan í kortunum.
Þarna var vissulega kallt í skugga en algert logn og svo kom sólin um miðjan foss og þá var gaman að lifa.
Góð byrjun á mjög svo lofandi vetri.