Re: svar: Bíldudals-grænar baunir

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Bíldudals-grænar baunir Re: svar: Bíldudals-grænar baunir

#53802
AB
Participant

Ég þakka fyrir skipulagningu og góða stemningu. Óheyrilega fallegt svæði með frábærum klifurmöguleikum. Ég minnist þess ekki að hafa átt betri ísklifurdag. Fjórtán klukkustundir í aftursæti Hilux voru vel ásættanlegur fórnarkostnaður fyrir svona upplifun.

Og kjötsúpan var afbragð.

Kveðja,

AB