Re: svar: 55°

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur 55° Re: svar: 55°

#53369
2006753399
Meðlimur

Við byrjuðum daginn í skorunni fyrir ofan Hveragerði við þriðja mann þar sem Jón Þorgrímsson var með í för, þar var með eindæmum íslaust og var leiðin því nefnd „boran“.

Þetta er þó eflaust skemmtilegt svæði í réttu árferði og ekki var verra að sjá nýja hverinn sem blæs þarna inni í miðjum skógi beint fyrir neðan hamrana eftir stóra skjálftann í sumar.

Eftir lautarferð í Hveragerði var svo ferðinni heitið í Búhamrana eins og áður kom fram þar sem við sáum til Garðbæinganna.

Góður dagur á fjöllum og fínn ís í Búhömrum.