Re: Kosningaklifur í Eilífsdal

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Esja – Vesturbrúnir Re: Kosningaklifur í Eilífsdal

#54117
Siggi Tommi
Participant

Fór við fjórða mann í síðvetrar ísklifur í Eilífsdal í þessum afar dvergvaxna „frostakafla“.
Með í för voru Skarphéðinn taðskegglingur frá Bergþórshvoli, Guðlaugur granítklettur úr Klobbavogi og Björgvin lapin kulta perkele kenndur við Retro.
Ætlunin var að príla Tjaldsúlurnar og ef gæfan lofaði kannski lauma sér upp Tjaldið í leiðinni. Súlurnar gengu vel en þegar undirritaður var kominn hálfa leið inn í Tjaldið gaf gæfan ei meir og skynsemin sagði að lengra skyldi ei haldið og ég beilaði. Eflaust hefði verið hægt að klifra hærra en andlátsóttinn bar mig ofurliði. Var því sigið niður á þræðingu og tímabilið hvatt með virktum enda var það með þeim bestu síðustu ár þó það hafi verið hálf aumt eftir festivalið góða fyrir Westan.

BTW. Þið eruð sennilega 2 mánuðum of seinir að byrja ísklifurferilinn, strákar. Eina sem hangir uppi núna er Eilífsdalurinn og hann á nokkrar vikur eftir og bara safe á köldum dögum. Ekki beint ofanvaðsvænt…
Einfarinn í Eilífsdal er mjög léttur ef þið eigið nokkrar skrúfur til að leiða fyrstu 10-20 metrana.
Annars eru skemmtilegar leiðir í Skarðheiðinni. NA-hryggurinn á Skessuhorni í klassískur og svo eru miðlungs erfiðar klifurleiðir upp á Skarðhorn og Heiðarhorn. Auk þess eru náttúrulega erfiðari leiðir, t.d. upp NV-vegg Skessuhorns en það er líklega einum of fyrst þið eruð að byrja í pakkanum.