Vestmannaeyar

Vestmannaeyjar eiga sér langa og mikla klifursögu sem er nokkuð frábrugðin klifri á öðrum klifursvæðum landsins. Klifur í Vestmannaeyjum hefur meira verið partur af lífinu í eyjum frekar en íþrótt til að stunda. Eggjataka, fiskþurrkun, vitabygging, aðgengi að beitilandi í úteyjum, björg úr sjávarháska.

Oft á tíðum má finna kaðla, keðjur eða þrep og er þetta klifur því einna skyldast via-ferratta klifri eins og það þekkist úti í heimi.

Vestmannaeyjar eru að lang mestu leiti úr móbergi og bergið því þess eðlis að ekki er hægt að setja algjört traust á einstaka hand og fótfestur en er þó að stóru leiti mjög fast af móbergi að vera.

Eitt sportklifursvæði með einni skráðri leið er að finna í Hásteinsgryfju.

Leiðarlýsing

Taka þarf bát til Heimaeyjar, Herjólfur gengur frá Landeyjarhöfn og mögulega munu göng verða grafin þarna út á einhverjum tímapunkti.

Kort

Skildu eftir svar