Freyr Ingi

Svör sem þú hefur skrifað

25 umræða - 176 til 200 (af 252)
  • Höfundur
    Svör
  • in reply to: Silvretta bindingar #53129
    Freyr Ingi
    Participant

    hehehhe… Rétt, hef átt svona splitt-kitt í mange or en ekki farið útí það splitta plötu og mála og skrúfa og mauva.

    Einfalda lausnin á touring vandanum var að fá sér bara skíði fyrir svoleiðis nokk.

    Svo rædar man bara púðrið á FISK!

    „Þó maður eigi skíði er maður alltaf Brettari inn við beinið“

    Kv,

    FIB

    in reply to: Skíði #53094
    Freyr Ingi
    Participant

    Susss!

    Alveg gargandi treiler maður.

    Rúnar er ekki málið að sýna þetta í Ísafjarðarbíó á Ísfesti ´09.

    Er ekki annars örugglega bíóhús á Ísó?

    FIB

    in reply to: Smá uppörvun fyrir veturinn #53065
    Freyr Ingi
    Participant

    Þessi gæi er með þetta allt á hreinu!

    http://www.youtube.com/watch?v=Qd8bHA53wko&feature=related

    Kv,

    FIB

    in reply to: Hnappavallamaraþon #52905
    Freyr Ingi
    Participant

    Hæ,

    ég ætla líka að minna á Hnappavallahátíðina!

    Ef að þáttakendur eru feimnir við að skrá sig og velja sér leiðahóp má alltaf koma og hvetja. Dúskar og mínípils sérstaklega mikið velkomin.

    Fjör og gaman, vei.

    Aldrei að vita nema glænýtt samkomutjald Ísalp verði vígt á völlunum.
    FIB

    in reply to: Gönguleið upp í Stardal #52887
    Freyr Ingi
    Participant

    Svona líka DUGLEGIR!!

    Hvet alla til að fara í Stardal til að kíkja á kletta og nýmálaðar stikur.

    FIB

    in reply to: Victory, victory, we have summit! #52865
    Freyr Ingi
    Participant

    Vei! en gaman fyrir ykkur. Myndir og ferðasögur fáum við að sníkja af ykkur við færi.

    Annars er greinilegt að Ísalparar hljóta að vera allir utandyra að gera eitthvað uppbyggilegt því annars væru hamingjuóskirnar margafalt fleiri hér á þessum vef :o)

    Íslenski alpakúbburinn óskar ykku til hamingju með fjallið og toppinn og vonar að þið eigið næs ferð heim!!

    Freyr Ingi

    in reply to: Frábær stemmari á pólsku kvöldi #52857
    Freyr Ingi
    Participant

    jamm, alveg sammála.

    sponsið frá kjötpól rann vel ofnaí nærstadda og myndirnar frá Grænlandi svaka fínar maður. Merkilegt hve fáir Íslendingar leggja leið sína þangað yfir.
    En alla vega áttum við góðar stundir með pólverjunum í gær.

    FIB

    in reply to: BÍÓ og SÖGUSTUND #52787
    Freyr Ingi
    Participant

    Hlöðubíó í Skíðadal er ekki afleit hugmynd. En hvort sem myndin verði sýnd þar eður ei er augljóslega akkur að því fá verkið norður yfir heiðar.
    Varð nefnilega þess heiðurs aðnjótandi að fá forskot á sæluna og forsá myndina á föstudagskvöldinu og get með sanni sagt að þarna er metnaðarfullt og skemmtilegt myndband á ferðinni.

    Virkilega flott mynd og hamingjuóskir til Ingvars og hinna sem að myndinni komu!

    Hvet því alla í bíó og vonandi kemst myndin norður svo sem flestir fái að sjá.

    Myndasýningin hans Simon er svo á miðvikudaginn kl. 20:00 í FÍ.

    FIB

    in reply to: Olli #52790
    Freyr Ingi
    Participant

    Síminn hans Olla er 8247195.

    in reply to: Brennivín #52726
    Freyr Ingi
    Participant

    Ekki viss um að top rope komist undir þakið, en leiðin fékk gráðuna M9+ á sínum tíma vegna þess að skalinn náði einfaldlega ekki hærra at the time. Hann bætti semsagt tveimur M gráðum ofaná kerfið með klífa Brennivín.

    Freysi

    in reply to: Cintamani styrkur? #52703
    Freyr Ingi
    Participant

    Já ókei,

    frestur til umsókna er semsagt til 15. maí og verða úrslit kunngjörð 1. júní.

    umsóknir sendist á drangann@gmail.com

    best að enda á þessum nótum:

    „Það er von okkar hjá Cintamani og ÍSALP að þessi árlegi styrkur verði hvatning til ungra og efnilegra Íslenskra fjallamanna og að hann stuðli að áframhaldandi velgengni og framförum í fjallamennsku á Íslandi.“

    kv,

    Freysi

    in reply to: Brennivín #52716
    Freyr Ingi
    Participant

    jaaa veit ekki með Haukadalinn en klippti sjálfur í bolta í Valshamrinum á sunudaginn var (í lopapeysu) og sá þá að inni í Eilífsdal er allt spekfeitt ennþá. En í hvaða fasa klakinn er veit maður nátturlega ekki nema kíkja eitthvað nær.

    Stuðkveðjur til Kanada!

    Freysi

    in reply to: Cintamani styrkur? #52700
    Freyr Ingi
    Participant

    Sæll Tryggvi,

    málið er að upphaflega kemur hugmyndin ekki frá Ísalp heldur fjallamanninum Jökli Bergmann. Á sínum tíma seldi hann Cintamani hugmyndina að leiðangursstyrknum og er það vel enda frábært framtak og glæsilegt að að Cintamani vilji halda áfram að styrkja íslendinga með stóra fjalladrauma.

    Díllinn er semsagt þannig að Ísalp kemur aðeins að þessum styrk með því að leggja til einn mann í 3 manna dómnefnd.
    Á síðasta ári var það Skarphéðinn Halldórsson sem gegndi því á móts við Harald Örn Ólafsson og Jökul Bergmann sem eru fastráðnir dómarar.
    Þeir teljast þó áfram vera Ísalp-arar

    Í fyrra komu inn 3 styrkbeiðnir og sú sem hljóta átti styrkinn var ferð niður til Patagoniu, nánar tiltekið á Fitz Roy.
    Flott ferð en vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna varð ekkert úr þeim plönum á síðasta ári.

    Eins og staðan er núna veit ég ekkert um þessa árs styrk.
    Hvorki hvort skilafresturinn verði framlengdur aftur eða hvort einhverjar umsóknir hafi þegar borist.

    Ég skal aftur á móti grafast fyrir um málið og láta vita þegar eitthvað fréttist.

    Góðar stundir.

    Freysi

    in reply to: tips skinna? #52628
    Freyr Ingi
    Participant

    Jú, rétt. Botnssúlur voru vissulega í svipuðum dúr á laugardaginn.

    En S-gilið í botni Grafardals hlýtur að vera spennó. Hvað kallast annast sá partur fjallsins sem það slöngugilið hlykkjast niður?

    Og hvaða þyrlumambó er þú að tala um Karl?!

    Freysi

    in reply to: tips skinna? #52624
    Freyr Ingi
    Participant

    Sæll, KID
    Skinnaði upp af KR skála Skálafelli í gærkveldi og lenti þar í dúndrandi aðstæðum. Ís og rifskaflar nánar tiltekið grunar mig að þetta séu almennt séð aðstæðurnar sem glíma þarf við á svipuðum slóðum.

    Annars ku vera gaman að skíða Móskarðshnúka hef ég heyrt.

    Minni svo á Ísalp ferð á Eyjafjallajökul á lördag!

    Freysi

    in reply to: Lagabreytingar og stefnumótun #52414
    Freyr Ingi
    Participant

    Palli þú ert nátturlega fenomon!

    Allatf hægt að treysta á gúd væbs frá þínum.

    Hvers konar rök eru það að allann þinn stjórnartíma hafi ekki þurft að breyta lögunum? Þýðir það að þá skuli það aldrei gert eða?

    Lestu þetta yfir aftur á hægum snúning og þess vegna á hverjum degi fram að aðalfundi og sjáðu hvort þetta skánar ekki aðeins.

    FIB

    in reply to: Úreltur búnaður #52326
    Freyr Ingi
    Participant

    OLLI!!!!

    Kommon maður, ertu enn með seinnastríðs pottlokið??

    Skamm, þú veist betur! ;o)

    F.

    in reply to: ástand Tindfjallaskála #52291
    Freyr Ingi
    Participant

    Sæl Hrafnhildur og gleðilegan vetur sömuleiðis!

    Bara svona örstutt þá hafa okkur borist myndir úr Tindfjöllum við og við í vetur og þær hafa allar sýnt snjó í kojum, kojum með tiltörulega nýjum dýnum þó!!

    Kabissan er nothæf en að sama skapi viðkvæm, trekkspjaldið er eitthvað losaralegt.

    Gas og glænýtt helluborð eru þá til staðar.

    Vonandi nýtist þetta eitthvað.

    FIB

    in reply to: Búahamrar #52244
    Freyr Ingi
    Participant

    Eins og Andri segir fórum við Geiri ævintýralega skoru austan við 55 gráðurnar. Þekki ekki nánari deili á henni en hún reyndist prýðis skemmtun þó þunn væri. Hið sama má segja um hinar leiðirnar í B-hömrum, þunnar en allt að koma til.
    Gengum svo niður tvíburagilið og leist svo fjandi vel á eina sprænuna þar að við gengum í málið á meðan Andri og Eyþór gengu niður, enda tímabundnir menn á ferð.

    Tak for leljigheden!!

    Eru menn ekki annars að fara út um helgina?

    FIB

    in reply to: Stífir skór #52185
    Freyr Ingi
    Participant

    Super Guide
    stærð: 38 og 2/3

    in reply to: Helgin! #52193
    Freyr Ingi
    Participant

    3 teymi á ferð í Múlafjalli á sunnudag í fínum klaka, kertuðum, bröttum eða blautum, fór sem sagt allt eftir því hvert var leitað.

    Fínt, fínt og ofsa gaman í sósíal klifri!

    Veit ekki með myndirnar sem ég tók.
    Tæknin er nefnilega eitthvað að stríða mér en by the way, flottar myndir hjá Olla maður… ekki eintómar rassmyndir.

    Kv,

    Freysi

    in reply to: STÓRIR plast skór #52176
    Freyr Ingi
    Participant

    Sýnist enginn þekkja svona STÓR-fót.

    Er þetta framleitt í þessum stærðum?

    Gangi þér vel í leitinni.

    in reply to: Stífir skór #52184
    Freyr Ingi
    Participant

    já sæll,

    gæti verið að ég viti um svona par.
    Glænýtt og notalegt.
    skoða betur stærðina og læt þig veta.

    Freysi

    in reply to: Helgin #52154
    Freyr Ingi
    Participant

    Líst vel á, ég og Raggi mætum vaskir í Múla á morgun.

    FIB

    in reply to: Fréttir af Ísalp-klifri? #52114
    Freyr Ingi
    Participant

    Hvar er tvífarinn?

    Hélt um tíma að það væri ísþilið sem við lékum okkur í á laugardag og sést á myndunum frá strákunum. Þ.e austan við hinn eiginlega Einfara.. það er skoruna sjálfa.

    En nú er ég ekki viss, er tvífarinn kannski íslínan á hægri vængnum inni í Einfaraskorunni? Hmmm.

    Hvað segja menn um það?

    FIB

25 umræða - 176 til 200 (af 252)