- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
22. janúar, 2006 at 20:41 #46532
RobbiParticipantÞað var múgur og margmenni í skessuhorni í dag. NA-hryggurinn var klifinn af hvorki meira né minna en 12 manns. Var þar á ferð stór hópur frá HSSR, Bjöggi og Skabbi flutu með, og rétt á undan okkur voru Ágúst og Skyler (kani af vellinum). Það má með sanni segja að það hafi verið fjölmennt.
Leiðirnar á fésinu sitthvoru megin við Rifið litu út fyrir að vera í aðstæðum, en þó máske eylítið þunnar. Massa dagur.
Robbi22. janúar, 2006 at 20:50 #50196
SissiModeratorKíktum á Grafarfoss í gær, Steppo, Hálfdán og undirritaður. Kertin í veggnum hægra megin voru að yfirgefa svæðið eitt af öðru, enda rigning og 3 stiga hiti. Fórum Granna í staðinn og var það prýðileg skemmtun, svona í vætunni.
Sissi
22. janúar, 2006 at 21:08 #50197
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantFerlega ljót prjónahúfa fannst frosin við eitt íshaftið á NA hryggnum rétt fyrir neðan toppinn. Húfan er gul-rauð-græn-blá röndótt og með flís fóðri. Ef einhver hefur grátið sig í svefn yfir að hafa glatað henni má sá hinn sami hafa samband við mig. agustth@gmail.com
Annars var töluverður ís í norðurhlíðum Hafnarfjalls og Villingadalur er örugglega góður. Ekkert að gerast í búhömrum. Sharing is caring.
23. janúar, 2006 at 09:46 #50198
Siggi TommiParticipantSjá myndir frá Skessuhorni á http://www.hssr.is/adminimages/myndir.asp?flokkur=155
Þar sjást m.a. aðstæður á NV-veggnum þokkalega. Annars á Robbi betri myndir sem teknar voru nær veggnum.
25. janúar, 2006 at 20:46 #50199
SkabbiParticipantHæ
Hér gefur að líta nokkrar myndir frá ferð HSSR á Skessuhornið síðastliðin sunnudag, séð með augum leikmanns…
http://www.vonlausa.org/gallery/view_album.php?set_albumName=album44&page=1
Skabbi
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.