Junior Nordisk

Home Umræður Umræður Klettaklifur Junior Nordisk

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45936
    Björk
    Participant

    Á netvafri rakst ég á síðu og sé þar að um helgina fer fram norðurlandamót ungra klifrara. Samkvæmt keppnislista eru þar á meðal tveir íslenskir drengir, gaman að því og vonandi gengur þeim vel.

    Flottur veggurinn:
    http://www.klatring.no/media/Vegg_Sogndal_web.jpg

    http://www.klatring.no/

    #50773
    Siggi Tommi
    Participant

    Af hverju í ósköpunum er ekki gerður svona flottur leiðsluveggur í Laugardals- eða Egilshöll?
    Það væri algjör snilld.

    Það fer nú ekki sérlega mikið fyrir þessu, nær kannski ca. 5m frá vegg og mætti skerma af með neti eða dúk eins og gert er sums staðar erlendis í svona sölum.

    Einhvern tímann skildist mér að menn hafi verið að ræða þetta við ÍTR vegna Egilshallar en ég geri ráð fyrir að okkar fulltrúar hafi talað fyrir daufum eyrum á þeim bænum.

    En gangi ykkur vel, Hjalti og Kristó.
    Meik öss prád! :)

    #50774
    0703784699
    Meðlimur

    Held við getum verið stolt af okkar mönnum…þeas ef ég kann ennþá að lesa úr Excel.

    http://www.sogndalklatreklubb.no/ (Sjá Complete List)

    kv.Himmi

    #50775
    Skabbi
    Participant

    Ég fæ ekki betur séð en að þeir hafi átt gríðargott mót og verið okkur, og sér, til sóma.

    Glæsilegt piltar, til hamingju!

    Skabbi

    #50776
    2802693959
    Meðlimur

    Glæsilegur árangur drengir. … óska hér með eftir einkaviðtali í Útiveru fyrir… janúarblaðið.
    kv,jgj

    #50777

    Flott hjá ykkur Hjalti og Kristó.

    #50778
    2806763069
    Meðlimur

    Djöf… massalingar! Frábær árangur, glæsileg framistaða og björt framtíð!

    Treystum á ykkur til að bæta upp fyrir þetta 14:2 fíaskó, og allt annað sem þessir skandinavar hafa gert á okkar hlut í gegnum aldirnar!

    #50779
    Anonymous
    Inactive

    Frábært að heyra svona góðar fréttir og það væri nú gaman að reyna að nota svona meðbyr til að fara fram á það við yfirvöld að almennilegur leiðsluveggur verði staðreynd í einhverjum að þeim fjölmörgu íþróttahöllum sem risið hafa á höfuðborgarasvæðinu undanfarin ár.
    Klifurkveðja Olli

    #50780
    0405614209
    Participant

    Ég ræddi þessi veggjamál á sínum tíma við ÍTR og Laugardalshöllina og Egilshöllina. Þetta var á sínum tíma þegar nýbúið var að setja upp aðstöðuna í Klifurhúsinu. Það var nú ekki tekið neitt sérstaklega illa í þetta þá en undirtónninn var þó sá að sjá hvort að klifursportið myndi vaxa sem almenningsíþrótt eða fara aftur í það að vera fámennur lokaður hópur.
    Ég tel að það sé búið að sýna fram á að framtakið með opnun Klifurhússins hefur heldur betur komið klifursportinu á kortið og líklega stunda fleiri klifur í dag í Reykjavík en skíði (ef horft er til allrar þessarar fjárfestingar í skíðalyftum og öðrum búnaði og svo er aldrei neinn snjór og því allt lokað).
    Með frækilegri frammistöðu Íslendinga á mótinu er sannarlega kominn grundvöllur fyrir því að herja um bætta aðstöðu.
    Gef kost á mér í vinnu ef óskað er eftir.
    Kveðja
    Halldór

    #50781
    Sissi
    Moderator

    Vá!

    Gott að Kristó er lélegur í morðingja, annars væri ekki hægt að vinna hann í neinu – hehehe…

    Siz

10 umræða - 1 til 10 (af 10)
  • You must be logged in to reply to this topic.